Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 73
64 fjölskyldan
Skilaboð um að barn tilheyri ekki fjölskyldunni
É g er með kvíðahnút í maganum í hvert sinni sem ég sæki dóttur mína. Það er ekki út af mömmu hennar, heldur eiginkonu minni. Ég veit aldrei hvaða móttökur dótt-irin fær. Stundum heilsar konan mín henni ekki og ef það gerist er það í áhuga-
lausum mæðutóni. Aðfinnslur um hvar hún setur töskuna og skóna fylgja venjulega á
eftir. Hún fær líka að heyra það ef hún klárar ekki mjólkina úr skálinni með mjólkur-
korninu, það fá stjúpbörnin mín líka en umburðarlyndi móður þeirra er meira og
tónninn annar.
Dóttir mín fær ósjaldan skilaboð frá konunni að hún tilheyri ekki fjölskyldunni,
þó hún orði það ekki. Henni þykir til dæmis sjálfsagt að ættingjar utan að landi fái
afnot af herbergi dóttur minnar, hvort sem hún er hjá okkur eða ekki. Þegar ég
mótmæli, fæ ég að heyra að dóttir mín „búi ekki hjá okkur“ hún sé bara á heim-
ilinu nokkra daga í mánuði. Hún sé meira eins og gestur en heimilismeðlimur. Ég
er þessu algerlega ósammála, auðvitað á dóttir mín heima hjá okkur líka. Ég finn
reiðina, já og sorgina, krauma í mér.
Sjaldan eru myndir eftir hana eða skraut sem hún kemur með úr skólanum sett á
ísskápinn eins og myndir hinna barnanna og sömu reglur virðast ekki gilda um dót-
ið hennar og þeirra. Þau fá að vaða í það þegar hún er ekki heima, en eigi að spyrja
hvort annað vilji þau fá eitthvað lánað. Ósjaldan eru geisladiskarnir hennar ekki á
sínum stað þegar hún kemur til okkar. Finn ég að hún er sár en segir ekki neitt.
Þegar hún getur ekki sofnað og lít ég til hennar, en svo lítið beri á. Konan mín
segir hana ekki vera smábarn og hún eigi ekki að stýra heimilislífinu þegar hún
kemur. Rétt eins og tilvist dóttur minnar eigi ekki að hafa neitt vægi í mínu lífi. Hún
er líka sífellt með athugasemdir á mig sem föður en bara sem föður hennar, en ekki
hinna barnanna á heimilinu. Ekki veit ég hvað konan mín segi ef ég gerði það sama
við hana.
Ég bið ekki konuna mína fyrir hana þegar ég þarf að fara eitthvað á kvöldin. Dótt-
irin finnur spennuna á heimilinu og er á nálum þegar hún sér eitthvað fararsnið á mér.
Ég reyni því oftast að taka hana með mér eða fá pössun fyrir hana hjá mömmu. Það er
heldur ekki jafn sjálfsagt að dóttir mín komi með í sumarfríin, eins og hennar börn.
Ég er hundleiður á því að það þurfi allt að fara í háaloft á heimilinu þurfi að ræða eða
gera eitthvað fyrir dóttur mína, en það er allt svo sjálfsagt sem snýr að hennar börnum.
Framkoma konunnar minnar er farin að bitna á samskiptum mínum við hana og hennar
börn sem annars hafa verið mjög góð. Mér líður eins og ég sé í framhjáhaldi með dóttur
minni þar sem ég fer á bak við konuna mína með ýmislegt er varðar hana. Það versta er
að er að ég get ekki talað um þessi mál við
konuna mína án þess að allt fari í háa loft
og hún segir: „Á nú að gera mig að vondu
stjúpunni?“
Einmana faðir og „vonda stjúpan“ er ekki
góð blanda, hvorki fyrir fullorðna né börn
sem eru eins og barómet á líðan foreldra.
Allar fjölskyldur eiga möguleika á að lifa
góðu lífi, óháð fjölskyldugerð. Sumar þurfa
meiri upplýsingar og stuðning en aðrar þeg-
ar tekist er á við verkefni sem þær þekkja
ekki eða eru illa undir búnar, og stundum
frá fagfólki. Að hlaupa í vörn, ræða ekki
málin, draga sig út úr samskiptum, fara í
felur, verða enn gagnrýnni og neikvæðari
er ekki vænleg leið til að byggja upp gott
fjölskyldulíf. Í vel starfhæfum fjölskyldum
er tekið á vandamálunum fljótt, í stað þess
að leyfa þeim að safnast upp. Það er ekki
vandamál að upp komi ágreiningur heldur
ef ekki er á honum tekið. Hver og einn þarf
að axla sína ábyrgð á stöðunni og hafa í
huga – að öll börn eru mikilvæg! Byggt á „Bréfi
frá föður“ á stjuptengsl.is
Einmana faðir og „vonda stjúpan“ er ekki góð blanda,
hvorki fyrir fullorðna né börn sem eru eins og barómet
á líðan foreldra. Allar fjölskyldur eiga möguleika á að
lifa góðu lífi, óháð fjölskyldugerð.
Eru börn konunnar mikil-
vægari en dóttir mín?
Valgerður
Halldórs-
dóttir
félagsráðgjafi
og kennari
heimur barna
Helgin 5.-7. desember 2014
Næstu þrjá sunnudaga munu ungir
sem aldnir geta rölt um Árbæjar-
safnið og fylgst með undirbúningi
jólanna eins og hann var í gamla
daga. Þar munu hrekkjóttir jóla-
sveinar gægjast á glugga og kíkja í
potta á meðan börn og fullorðnir fá
að föndra og syngja jólalög.
Guðsþjónusta hefst alla dag-
ana klukkan 14 í safnkirkjunni og
klukkan 15 er jólatrésskemmtun á
torginu þar sem sungin verða jóla-
lög og dansað í kringum jólatréð við
harmonikkuundirleik og kórsöng. Í
Árbænum verða fullorðnir og börn
með vasahnífa og skera út laufa-
brauð en á baðstofuloftinu verður
spunnið og prjónað. Í Kornhúsinu
fá börn og fullorðnir að föndra, búa
til músastiga, jólapoka og sitthvað
fleira en í Hábæ verður hangikjöt
í potti og gestum boðið að bragða
á nýsoðnu kjöti. Í hesthúsinu frá
Garðastræti verður svo sýnt hvernig
fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti
í gamla daga. Að vanda verður hægt
að orna sér í Dillonshúsi þar sem
boðið er upp á ljúffengar veitingar,
heitt súkkulaði og jólalegt meðlæti.
Sýningin opin sunnudagana 7.,
14. og 21. desember klukkan 13-17.
Aðgangseyrir er 1300 krónur fyrir
fullorðna en ókeypis er fyrir börn,
ellilífeyrisþega og öryrkja. Menn-
ingarkortið veitir ókeypis aðgang
að safninu. -hh
Árbæjarsafn undirbúningur jólanna
Gamlir dagar rifjaðir upp í safninu
Laugavegi 53 Sími 552 3737 opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Iana Reykjavík
húfum,
útigöllum,
jólafötum,
sængurgjöfum,
afmælisgjöfum
Mikið úrval af fallegum jólagjöfum....
Galli:
19.895,-
Allt fyrir
jólaprjónið
laugavegi 59
101 reykjavík
551 82 58
storkurinn@storkurinn.is
www.storkurinn.is