Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 55
Disney hringir ekki á hverjum degi
G reta Salome Stefánsdóttir er um þessar mundir stödd á Íslandi í jólafríi þar sem hún mun halda
íslensk jól og njóta þeirra í botn þar til hún
mun sigla aftur á vit ævintýranna í sól-
inni á Bahamas og Flórída eftir áramótin.
Undanfarna mánuði hefur tónlistar- og
söngkonan sungið og skemmt þúsund-
um manna á skemmtiferðaskipinu Dis-
ney Dream. Hún flytur eigið efni og bætir
einnig við þekktum og óþekktum lögum í
eigin útsetningu. Hún fékk starfið eftir að
hún sendi efnið sitt til bandarískrar um-
boðsskrifstofu í Los Angeles og Kanada.
En dreymir hana um að ljá teikni-
myndum Disney rödd sína?
„Ég held að líkingin við Elsu sé aðallega
tilvísunin í Ísland og ljósa hárið mitt. Ég
efast um að ég geri eitthvað svoleiðis en
ég er svo ótrúlega þakklát fyrir þetta
tækifæri sem ég hef fengið. Þetta er al-
gjört ævintýri,“ segir hún. Greta Salóme
er ein af okkar ungu og efnilegustu tón-
listarmönnum, uppalin í Mosfellsbænum
í faðmi fella og fjalla. Hún hefur ekki alltaf
farið troðnar slóðir í tónlist og leikið sér að
því frá unga aldri að blanda saman klassík
og dægurtónlist með einstökum hætti.
Ljúfa lífið í sólskinsparadísinni
„Disney hringir ekki á hverjum degi
svo maður verður að grípa tækifærin
þegar þau gefast,“ segir hún. En hvernig
skyldi tónlistarsnillingurinn Gréta eyða
deginum í sólskinslöndunum Flórída og
Bahamas sem hún flakkar á milli. „Ég
hef mjög mikinn tíma til þess að vinna
að nýrri tónlist og útsetningu hennar.
Það er mjög erfitt að láta sér leiðast. Ég
fer í tvær siglingar í hverri viku, þrjá og
fjóra daga í einu til skiptis til Flórída og
Bahamas. Ég á marga vini á Flórída og
eyði miklum tíma með þeim þegar ég
er þar. Í Nassau á Bahamas fer ég yfir-
leitt í bæinn og nota þráðlaus net á kaffi-
húsum til að vinna. Tvisvar í viku fer
áhöfnin á æðislega Disney einkaeyju,
sem er hitabeltis paradís, með eintómri
strönd og pálmatrjám. Ég nota tímann
til þess að hlaupa, fara í strandblak og
liggja á ströndinni á milli þess sem ég
vinn skrifstofuvinnuna í tónlistinni.
Þetta er mjög ljúft líf.
„Mig óraði aldrei fyrir því að ég ætti
eftir að lenda í svona ævintýri. Ég hef
reynt að seilast eftir draumum mín-
um en það hefur líka kostað heilmikla
vinnu. Hlutirnir gerast ekki af sjálfu sér,
þessi árangur er 90% vinna og 10% hæfi-
leikar. Það fylgir því að vera tónlistar-
kona að vera tilbúin til að fórna flestu
öðru. Ég vissi fyrir löngu að ég væri
reiðubúin til þess,“ segir Greta Salóme.
Eins og að spila í Eldborg á hverju
kvöldi
„Ég er virkilega þakklát fyrir tækifærið
og viðbrögðin við tónleikunum mínum
hafa verið mjög góð. Þetta er eins og
að spila í Eldborg á hverju kvöldi. Það
eru 4000 farþegar í hverri siglingu, tvær
sýningar á dag. Um 2.000 manns koma
á hverja sýningu og ég syng fyrir um
8.000 manns á viku. Ég er að átta mig
á því að ég er að vinna fyrir stærsta af-
þreyingarfyrirtæki í heimi, það þýðir
að gæðastaðallinn er gríðarlega hár.
Það er magnað að fá að vinna í svona
umhverfi. Ég hef frábæra aðstöðu um
borð í skipinu þar sem ég hef aðgang
að flygli og stúdíói til að taka upp. Tón-
listarfólkið heldur mjög mikið saman
hérna og ég hef eignast frábæra vini.
Þetta er í rauninni bara algjör draumur,“
segir Greta Salóme.
Hárin duttu úr boganum
„Þetta hefur þó ekki alltaf verið dans á
rósum, ég hef verið pínu óheppin líka,“
segir hún og hlær. „Tveimur vikum áður
en ég kom heim var ég að halda stóra
tónleika og í miðju fiðlusólói duttu öll
hárin úr boganum á fiðlunni minni svo
ég gat ómögulega spilað meira. Ég varð
að redda þessu með því að hneigja mig
í miðju lagi. Sumir héldu bara að þetta
væri hluti af sýningunni og fyrirfram
ákveðið sem það var auðvitað ekki.
Svona nokkuð getur komið fyrir hvenær
sem er og fyrir hvern sem er, “ segir
hún og hlær.
Ást á milli heimsálfa
Kærasti Gretu Salóme til síðustu fjög-
urra ára heitir Elvar Þór Karlsson, með-
eigandi í Svanhvíti efnalaug. Elvar hefur
ekki séð mikið af kærustunni á þessu
ári en þau eru sammála um að láta sam-
bandið ganga þrátt fyrir að búa í sitt
hvorri heimsálfunni. „Það eru mikil for-
réttindi að hafa hann með mér í þessu,
hann hefur stutt mig 100 prósent. Við
áttum mjög góðan tíma saman í sumar
þegar við fórum í þriggja vikna frí til
Flórdía og lágum þar í sólinni. Síðan
fórum við til New York og fengum jól í
hjartað á heimleiðinni. Aðstaðan sem ég
hef úti er frábær og hann getur verið hjá
mér eins mikið og hann getur. Okkur
finnst báðum þetta vera ævintýri sem
er þess virði að fórna ýmsu fyrir,“ segir
Greta Salóme.
Forfallið jólabarn
En að jólum heima á Íslandi: „Ég er fæ
fiðring í september þegar ég sé jóla-
skreytingarnar í IKEA. Ég er forfallið
jólabarn, það er eiginlega alveg hræði-
legt,“ segir hún og brosir. Hjá mér hafa
jólin almennt byrjað í október með und-
irbúningi fyrir jólatónleika, nema núna.
Jólin eru mér mikils virði, ég er alin upp
á heimili þar sem ekki má stugga við
neinum hefðum. Við borðum yfirleitt
hamborgarhrygg, smákökurnar hennar
mömmu tilheyra þessari hefð og jóla-
boðin gera jólin svo hátíðleg. Mér er það
lífsnauðsynlegt að vera heima hjá pabba
og mömmu um jólin,“ segir hún.
Skortur á jafnrétti er menningar-
lega rótgróið vandamál
Það vakti athygli þegar Greta Salóme
tjáði sig á facebook um jafnréttismál og
vísaði í rannsókn frá Háskóla Íslands
þar sem fram kom að yfir 90% allra stef-
gjalda renni til tónlistarkarla en undir
10% til tónlistarkvenna. Ein af ástæð-
unum er skortur á kvenkynsþáttastjórn-
endum í útvarpi. Tölfræðin talar sínu
Gretu Salóme Stefánsdóttur hefur verið líkt við Elsu í teiknimyndinni
Frozen sem er langvinsælasta teiknimynd Disney veldisins um þessar
mundir. Tónlistar- og söngkonan hefur upplifað ævintýri lífs síns þar sem
hún hefur verið á siglingu með skemmtiferðaskipinu Disney Dream í fjóra
og hálfan mánuð og spilað og sungið fyrir 8.000 manns í hverri viku.
Ferillinn
Greta Salóme
lifir fyrir tónlist en
hún hóf tónlistar-
nám í Suzukiskóla
Íslands og var
síðar í Allegro
Suzukiskólanum.
Þaðan lá leiðin
í Tónlistarskóla
Reykjavíkur. Árið
2008 útskrifaðist
hún úr Listaháskóla
Íslands með B.Mus
gráðu í fiðluleik og
einnig lærði hún við
Stetson University
í Flórída þar sem
kennari hennar var
Routa Kroumou-
vitch.
Greta Salóme
útskrifaðist með
meistaragráðu í
tónlist árið 2012 og
gaf út sína fyrstu
plötu sama ár og
var það Sena sem
gaf út þá plötu.
Hún er tónskáld,
söngkona og
textahöfundur. Lag
hennar, Mundu eftir
mér, var valið sem
framlag Íslands
til Söngvakeppni
Evrópskra sjón-
varpsstöðva í Bakú
árið 2012.
Hún hefur starfað
sem fiðluleikari við
Sinfóníuhljómsveit
Íslands frá 2008 og
þangað til núna í
haust 2014.
Greta Salóme Stefánsdóttir hugsar
vel um heilsuna o gtekur vel á því í
Boot Camp. Ljósmynd/Hari
Framhald á næstu opnu
46 viðtal Helgin 5.-7. desember 2014