Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 96
Helgin 5.-7. desember 2014
Góðar uppskriftir ganga kynslóð fram af kynslóð.
Minningin um uppáhaldskökuna sem amma bakaði
fylgir okkur alla tíð. Bragðið, lyktin úr ofninum ...
Kökurnar verða ljómandi með Ljóma.
Ljóma smjörlíki er eingöngu
framleitt úr jurtaolíum og án
transfitu.
Ljóminn á skilið
það lof sem hann fær
Taktu þátt í Ljómaleiknum á Facebook – Facebook.com/ljomasmjorliki
Glæsileg Kenwood hrærivél í verðlaun.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
33
36
0
Piparkökur
Búa má til piparkökukarla (og konur) og
alls kyns fleiri skemmtilegar fígúrur úr
þessu deigi. Einnig hentar þetta deig fyrir
lítil piparkökuhús. Piparkökurnar eru ekki
mjög mikið kryddaðar svo þær henta vel
fyrir t.d. börn. Ef þið viljið meira krydd-
bragð, setjið þá 1 tsk af negul út í deigið.
Gerir um 40 piparkökur
Innihald
185 g spelti (gott að nota helming gróft og
helming fínt)
1 tsk bökunarsódi
3 tsk kanill
1/4 tsk múskat
6 msk kókosolía
115 ml hreint hlynsíróp (eða hrátt aga-
vesíróp fyrir mildara bragð)
4 msk rapadura hrásykur (eða annar
hrásykur)
Aðferð
Í stóra skál skuluð þið sigta saman bök-
unarsóda, kanil, múskati og spelti. Hrærið
vel.
Í aðra skál skuluð þið hræra saman
rapadura hrásykri, hlynsírópi og kókosolíu.
Hellið út í stóru skálina og hrærið öllu vel
saman.
Hnoðið deigið í smá stund til að allt
blandist vel saman. Pakkið deiginu inn í
plast og kælið í 30 mínútur eða lengur í
ísskápnum.
Skiptið deiginu í nokkra búta og fletjið með
kökukefli eða stórri glerflösku. Deigið ætti
að vera um 1 millimetri að þykkt.
Ef deigið festist við borð eða kökukefli er
ágætt að dreifa svolitlu spelti yfir borðið,
deigið og kökukeflið.
Skerið út deigið með t.d. kökuskurðar-
mótum (stjörnur, jólatré, piparkökukarla
og konur, hjörtu o.fl.). Gott er að miða við
um 5-7 sm í þvermál.
Klæðið bökunarplötu með bökunarpappír
og raðið kökunum á plötuna.
Bakið við 180°C í um 10-12 mínútur eða
þangað til kökurnar eru orðnar gullnar.
Þær eru ekki grjótharðar á þessum tíma-
punkti en munu kólna og harðna.
Gott að hafa í huga:
Ef kókosolían er hörð má stinga krukkunni
í heitt vatn í nokkrar mínútur þar til hún
verður fljótandi.
Ef kökurnar eru ekki harðar þegar þær
hafa kólnað má baka þær í um 5 mínútur
til viðbótar. Ef þær eru þykkar þurfa þær
aðeins lengri tíma en ella.