Fréttatíminn - 05.12.2014, Blaðsíða 105
Bækur karl Ágúst úlfsson gerir upp nÁmsÁrin í ohio
Ég held að Spaugstofan hætti aldrei
Leikarinn og höfundurinn
Karl Ágúst Úlfsson gaf út á
dögunum bókina Aþena-Ohio
sem er safn útvarpspistla
sem hann sendi heim fyrir
rúmum tuttugu árum þegar
hann dvaldist í Bandaríkjunum
við nám. Hann segir pistlana
vekja upp góðar minningar, en
um leið skrýtna tilfinningu um
að lesa um sitt eigið líf.
k arl Ágúst Úlfsson hefur verið iðinn við skriftir í gegnum tíðina og eftir hann
liggja 16 vinsælar barnabækur um
Bjarnastaðabangsana í eigin þýð-
ingu. Einnig hefur hann skrifað fyr-
ir leikhús og sjónvarp sem og náms-
efni. Aþena Ohio er í smásagnastíl
enda voru sögurnar skrifaðar sem
útvarpspistlar.
„Þetta eru pistlar sem ég sendi
á Rás 2 þegar ég var í námi í Ohio
fyrir tuttugu árum. Það hafa margir
verið að spyrja mig í gegnum tíð-
ina hvort það væri hægt að nálgast
þessa pistla með einhverjum hætti
og þess vegna ákvað ég að demba
mér í það að gefa þetta út,“ segir
Karl Ágúst sem nam leikritun í há-
skólanum í Athens, Ohio. „Fyrst
þurfti ég auðvitað að skoða þá að-
eins því ég hafði ekkert leitt hugann
að þeim í öll þessi ár. Þá sá ég að
þetta eru allt litlar sögur. Sögur af
daglegu lífi Íslendings í hinum stóra
Kannski var þetta ekki nógu fyndið, segir Karl Ágúst Úlfsson. Mynd/Hari
heimi sem finnst auðvitað allt best
á Íslandi,“ segir Karl. Þetta er tími
sem ég hafði aldrei gert upp, átti
eftir að binda endahnútinn á hann,
svo mér þótti það ágætis hugmynd
að láta reyna á þetta.“
Þroskasaga manns
Karl Ágúst setti af stað söfnun á
Karolina Fund sem er vefsvæði
þar sem fólki gefst tækifæri til að
f jármagna hugmyndir sínar og
hugverk. Viðtökurnar létu ekki á
sér standa og náðist að fjármagna
framleiðslukostnaðinn. „Ég tók
meistaragráðu í leikritun og hand-
ritagerð þegar ég var búinn að
starfa í 10 ár sem leikari á Íslandi.
Ég hef alltaf verið að skrifa og þeg-
ar ég var að taka saman um daginn
hvað ég hef skrifað, þá er þetta þó
nokkur bunki,“ segir Karl. Þá er ég
ekki að telja með það sem liggur í
augum uppi, sem er Spaugstofan,
og gríðarlegt útvarps og sjónvarps-
efni sem henni tengist. Í rauninni
hef ég starfað miklu meira sem
höfundur en leikari.“
Þegar tuttugu ára gamlir pistlar
eru lesnir upp á nýtt, standast þeir
tímans tönn?
„Auðvitað hefur margt breyst,
og það er gaman að því að á þess-
um tíma var enginn með síma í vas-
anum og Internetið var ekki heldur
til, svo það var margt annað í gangi
í lífi fólks, segir Karl. Þetta gerist
líka fyrir þessa miklu Ameríku-
væðingu okkar Íslendinga, sem
hefur verið mjög hröð á síðustu
árum. Þarna er Ísland ekki þessi
litla Ameríka sem varð svo seinna,“
segir Karl. „Það var ekki kominn
McDonalds á Íslandi og enginn að
halda upp á Valentínusardag eða
Þakkargjörðina hér heima. Ég bý
til einhverskonar sögumann sem
er eyjarskeggi sem staddur er í
þessu stóra og ruglingslega sam-
félagi og skilur í rauninni ekki upp
né niður,“ segir Karl.
„Ég hafði ekkert litið á pistlana
síðan ég skrifaði þá þegar ég fór
að huga að útgáfunni, og það var
afskaplega kómískt að fara yfir þá
tuttugu árum síðar,“ segir Karl.
Það er fótur fyrir öllum sögunum
þó ég færi í stílinn og ýki og geri
mér upp skoðanir. Þetta er svolítil
þroskasaga manns sem reynir allt
hvað af tekur að halda sjó í sam-
félagi sem hann botnar lítið í, og
kemst svo að því smátt og smátt
að kannski er þetta ekki svo bölv-
að þrátt fyrir allt. Kannski er ekki
allt betra á Íslandi,“ segir Karl.
„Ég reyndi alltaf að sjá kómísku
hliðina á þessu lífi sem var þá
svo frábrugðið okkar á Íslandi.
Það rifjuðust upp fyrir mér við-
brögðin sem pistlarnir fengu hér
heima á þessum tíma. Ég fékk góð
viðbrögð en svo voru sumir sem
voru tortryggnir út í þau viðhorf
sem ég var að viðra,“ segir Karl.
En kannski var það mér að kenna,
kannski var þetta ekki nógu fynd-
ið, eða nógu fáránlegt.“
m yndlistarmaðurinn Jón Óskar leiðir gesti Lista-safns Íslands við Frí-
kirkjuveg um sýningu sýna, Ný
verk, á sunnudaginn klukkan 14.
Jón Óskar er málari stórra flata og
verkin á sýningunni eru risastór og
agnarsmá, og allt þar á milli.
Jón Óskar stundaði nám við Scho-
ol of Visual Arts í New York á ní-
unda áratugnum og á að baki fjölda
einka- og samsýninga á Íslandi og
erlendis. Grunneiningin í myndlist
Jóns Óskars er og hefur ætíð verið
teikningin í sinni einföldustu, en
um leið margslungnustu mynd.
Mynd Hari
Sunnudagsleiðsögn
með Jóni Óskari
w
Stjórnandi
Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
Píanóleikari
Helgi Már Hannesson
,,Ég man þau jólin...”
Jólatónleikar
Í Seltjarnarneskirkju
Fimmtudaginn 11. desember
kl. 20:00
Miðaverð, 3.000 krónur
Einsöngvari
Valgerður Guðnadóttir
w
Stjórnandi
Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
Píanóleikari
Helgi Már Ha nesson
,,Ég man þau jólin...”
Jólatónleikar
Í Seltjarnarneskirkju
Fimmtudaginn 11. desember
kl. 20:00
Miðaverð, 3.000 krónur
Einsöngvari
Valgerður Guðnadóttir
w
Stjórnandi
Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
Píanóleikari
Helgi Már Hannesson
,,Ég man þau jólin...”
Jólatónleikar
Í Seltjarnarneskirkju
Fimmtudaginn 11. d ember
kl. 20:00
Miðaverð, 3.000 krónur
Einsöngvari
Valgerður Guðnadóttir
w
Stjórnandi
Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
Píanóleikari
Helgi Már Hannesson
,,Ég man þau jólin...”
Jólatónleikar
Í Seltjarnarneskirkju
Fimmtudaginn 11. desember
kl. 20:00
Miðaverð, 3.000 krónur
Einsöngvari
Valgerður Guðnadóttir
w
Stjórnandi
Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir
Píanóleikari
Helgi Már Hannesson
,,Ég man þau jólin...”
Jólatónleikar
Í Seltjarnarneskirkju
Fimmtudaginn 11. desember
kl. 20:00
Miðaverð, 3.000 krónur
Einsöngvari
Valgerður Guðnadóttir
Skíða- og snób
rettapakkar
20%afsláttur
• Svigskíði
• Fjallaskíði
• Gönguskíði
• Snjóbretti
Tökum notaðan skíða- og
brettabúnað upp í nýjan
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Faxafeni 8 // 108 Reykjavík
Sími 534 2727 // www.alparnir.is
www.alparnir.is Góða gæði
Betra verð
✓
✓
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR
LAUGARDAGINN 13. DESEMBER KL. 17.00 OG
SUNNUDAGINN 14. DESEMBER KL. 17.00 OG 20.00
MIÐASALA Á MIDI . IS OG WWW.KKOR. IS
MIÐAVERÐ KR. 4 .900
E I N S Ö N G V A R A R
HELGA RÓS
INDRIÐADÓTTIR
SÓPRAN
T R O M P E T L E I K A R A R
ÁSGEIR H. STE INGRÍMSSON
E IR ÍKUR ÖRN PÁLSSON
O R G E L L E I K A R I
LENKA MÁTÉOVÁ
P Á K U L E I K A R I
EGGERT PÁLSSON
S T J Ó R N A N D I
FR IÐRIK S. KRIST INSSON
BENEDIKT GYLFASON
DRENGJASÓPRAN
96 menning Helgin 5.-7. desember 2014