Fréttatíminn - 05.12.2014, Page 45
Fáðu þetta heyrnartæki
lánað í 7 daga
- án skuldbindinga
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
og fáðu Alta til prufu í vikutíma
Sími 568 6880
Prófaðu ALTA frá Oticon
Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Þjónusta á landsbyggðinni | Sími 568 6880
| www.heyrnartækni.is |
Að heyra vel er okkur öllum mikilvægt og ekki síst yfir
hátíðirnar þegar fjölskylda, vinir og ættingjar hittast til
að eiga góða stund saman. ALTA heyrnartækin gera þér
kleift að heyra skýrt og áreynslulaust í öllum aðstæðum.
ALTA eru fullkomnustu heyrnartækin frá Oticon, búin
þráðlausri tækni og algjörlega sjálfvirk.
sjúklingar einfaldlega deyi í flutningi milli
sjúkrahúsa vegna tækjabilunar á öðrum
hvorum staðnum,“ segir Þorgerður.
„Hjartastuðtæki sem er notað til að end-
urlífga fólk eru örugglega 15 ára gömul.
Myndir þú vilja eiga 15 ára gamlan síma
eða tölvu? En er allt í lagi að stuða afa þinn
með 15 ára gömlu stuðtæki?“ spyr hún.
Límbandið mikilvægast
„Eitt mikilvægasta tæki svæfingalækna á
Landspítalanum er límbandið. Við þurfum
sífellt að nota það til að tryggja að tækin
virki og treysta ýmsar tengingar við svæf-
ingarvélina, millistykki, filtera og fleira,
líma það saman með límbandi svo það detti
ekki í sundur í miðri svæfingu. Það er allt
margþvegið hjá okkur og endurnýtt þó að
það eigi að heita einnota,“ segir Þorgerður.
„Auðvitað viljum við gera allt fyrir fólk. Ég
legg örugglega meira á mig hérna heima
því þetta er fólkið mitt og þjóðin mín. Það
er miklu auðveldara að tala um tilfinningar
og sorg og dauða á sínu eigin tungumáli,
þó að ég hafi búið í Svíþjóð og 16 ár og tali
reiprennandi sænsku,“ segir hún.
Erfitt fyrir lækna að vera í verkfalli
Þorgerður segir að læknum þyki mjög erf-
itt að vera í verkfalli – og enn erfiðara þyki
henni að vera í verkfalli þegar stjórnvöld
hlusti ekki. „Ef Bjarni Benediktsson og Sig-
mundur Davíð fara ekki að gera eitthvað í
þessum málum getum við lokað Landspítal-
anum. Þetta eru ekki óraunhæfar launakröf-
ur lækna, þetta snýst um hvað er nauðsyn-
legt að gera til að snúa þessari óheillaþróun
í nýliðun læknastéttarinnar við,“ segir hún.
Hún segir að læknar hafi setið á hakanum
í launaþróun síðastliðin tíu til fimmtán ár.
„Við getum ekki snúið við núna, það væri
bara ábyrgðarleysi. Maður snýr ekki við í
miðri á. Þetta er samfélagslegt verkefni sem
þarf að klára,“ segir Þorgerður. Hún spyr:
„Er markmiðið hjá stjórnvöldum læknalaust
Ísland 2015? Ef svo er eru þau ekkert sér-
staklega langt frá því að ná því.“
„Ráðamenn þurfa að átta sig á því að þetta
er heilbrigðiskerfi Íslendinga sem er í húfi.
Þeir eiga börn, maka og foreldra sem geta
lent í slysi eða veikst alvarlega – eða þeir
sjálfir. En það er nú oft þannig að þegar
einhver þekktur einstaklingur leggst inn,
þá fær hann extra góða þjónustu. Hann fer
fram fyrir röðina, hann þarf ekki að bíða eft-
ir aðgerð. Hann er að öllum líkindum ekki
látinn liggja fram á gangi, inn á klósetti eða
inni á skoli eins og aðrir sjúklingar,“ bendir
hún á. „Skilaboðin eru skýr: Ef ekki tekst
að semja við okkur lækna, mun skapast svo
mikið neyðarástand eftir áramót að öryggi
sjúklinga verður ekki lengur tryggt. Það er
alveg ljóst,“ segir Þorgerður.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Er mark-
miðið hjá
stjórnvöldum
læknalaust
Ísland 2015?
Ef svo er eru
þau ekkert
sérstaklega
langt frá því
að ná því.
Um daginn þegar ég kom inn á
spítala var einn maður á heilaskurð-
vakt. Svo eru menn að væla yfir
Vaðlaheiðargöngum. Steingrímur J.
og Kristján Möller fá ekki jólakort frá
mér. Mér finnst þetta skrýtin for-
gangsröðum. Ég hef ekki hitt lækni
sem er sammála því að byggja nýjan
spítala. Það er hægt að gera margt
sniðugra fyrir 100 milljarða plús.
Árna heitnum fannst
sveltistefnan glórulaus
Systkinin Þorgerður og Árni eru alin
upp í Vesturbænum af hjónunum
Sigurði Árnasyni krabbameinslækni og
Helgu Erlendsdóttur, sem er klínískur
prófessor í lífefnafræði. Systkinin eru
alls fjögur. Árni var í viðtali í Frétta-
tímanum í ágústlok 2012, rétt eftir
að Þorgerður flytur heim. Hann lést í
nóvember sama ár. Árni skilur eftir sig
eiginkonu og tvö börn.
Árni hafði þetta að segja um ástandið í heilbrigðiskerfinu árið 2012:
Honum finnst sveltistefnan í garð Land-
spítalans vera glórulaus. „Oft er krón-
unni kastað fyrir aurinn. Það er ekki
boðlegt að tæki spítalans séu löguð
með límbandi. Ég veit ekki hversu oft
Björn Zoëga hefur sagt að heilbrigðis-
kerfið sé komið að þolmörkum, en fyrir
mitt leyti er kerfið löngu sprungið.
Stjórnendur Landspítalans kalla úlfur,
úlfur. Þeir verða að fara að læra að
standa í fæturna gagnvart þessari vit-
lausu forgangsröðun stjórnvalda,“ segir
hann. „Því á sama tíma og einstaklingar
á leikskólanum við Austurvöll reyna að
reisa sér minnisvarða hrynja stoðir heil-
brigðiskerfisins. Fólk hefur val um hvort
það fer til Húsavíkur eða ekki, en fólk
hefur ekki val um hvort það veikist.“
36 viðtal Helgin 5.-7. desember 2014