Læknablaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 4
EFNISYFIRLIT
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
birtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvöföldu
línubili á A-4 blöðum. Hver hluti
skal byrja á nýrri blaðsiðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á islensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku eða íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða af
netinu.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
B RITSTJÓRNARGREINAR
Kristján Sigurðsson 819
HPV bólusetning og legháls-
krabbameinsleit á íslandi
Samtökin ECCA hvetja aðildarlönd til öflugrar upp-
lýsingagjafar um leghálskrabba og HPV bólusetn-
ingu, sjá www.cervicalcancerpetition.eu/
Bertrand Lauth 823
Notkun metýlfenídats fyrir
börn með ofvirkni
Þrátt fyrir framfarir er Ijóst að áfram verður erfitt að
berjast gegn fordómum um geðlyfjagjöf hjá börnum.
■ FRÆÐIGREINAR
Helga Zoega, Gísli Baldursson, Matthías Halldórsson 825
Notkun metýlfenídats meðal barna á íslandi 1989-2006
Notkun metýlfenídats jókst töluvert frá upphafi rannsóknartímabils fram til ársins 2004 þegar ákveðnu
jafnvægi virðist hafa verið náð. Líkt og víða hefur notkun langverkandi lyfja aukist á kostnað stuttverk-
andi lyfjaforms. Samanborið við önnur Evrópulönd er notkun metýlfenídats á íslandi mikil.
Jón Snorrason, Guðrún Úlfhildur Grímsdóttir, Jón Friðrik Sigurðsson
Gátir á bráðadeildum geðsviðs Landspítala:
Viðhorf sjúklinga og starfsmanna
Umfang, eðli og framkvæmd gáta á deildunum virðist vera svipað og erlendis. i Ijósi mikilvægis gáta í
umönnun geðsjúkra og áhrifanna sem þær hafa á einkalíf sjúklinga er mikilvægt að setja um þær skýrar
verklagsreglur og klínískar leiðbeiningar.
Karl Kristjánsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Magnús R. Jónasson 841
Algengi, greining og meðferð þunglyndis og
kvíða sjúklinga í hjartaendurhæfingu
Algengi þunglyndis og kvíða er svipað og í öðrum rannsóknum hjá hjartasjúklingum. Ekki virðist ástæða
til að taka upp reglubundna skimun fyrir þessum kvillum. Endurhæfing, fjölbreyttur stuðningiur og
sérhæfð geðmeðferð drega verulega úr þunglyndi og kvíða.
816 LÆKNAblaðið 2007/93