Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.11.2008, Qupperneq 7

Læknablaðið - 15.11.2008, Qupperneq 7
Heilsufar og efnahagsmál, ábyrgð lækna Kristinn Tómasson kristinn@ver.is Höfundur er sérfræðingur í geð- og embættislækningum hjá Vinnueftirlitinu. Health and Economy, the doctors responsibility Kristinn Tómasson, M.D. Dr.med, M.Sc. Medical director, Administration for Occupational Health & Safety Bíldshöfða 16 Reykjavík lceland Umræða um efnahagsþrengingar hefur ekki farið fram hjá neinum. Flutningur hefur verið stöðugur af válegum fjármálafréttum, sem margar hverjar eru torskildar og minna meir á véfrétt úr fornöld en frétt skrifaða í nútímafjölmiðlum. Mikilvægt er að læknar hugi að forystuhlutverki sínu í heil- brigðismálum þar sem útgjöld til heilbrigðismála geta minnkað á sama tíma og hagur fólks versnar og þar með geta þess til að hlúa sem best að heil- brigði sínu. í rannsókn á áhrifum efnahags á dánarmein í eina öld sýndi Brenner (1) tengsl hagvaxtar og lækkandi dánartíðni á síðustu 100 árum í Bandaríkjunum. Hann sýndi að með batnandi al- mennum hag lækkaði dánartíðni, en þó með þeim fyrirvara að mjög hraður uppgangur og hagvöxtur leiddi til aukinnar dánartíðni. í þessu samhengi er vert að hafa í huga að þeim sem eru verra settir efnahagslega og félagslega í samfélaginu er hætt- ara við flestum sjúkdómum, svo sem háþrýstingi (2), lungnasjúkdómum (3), og geðsjúkdómum (4) auk vel flestra annarra sjúkdóma. Það sem skiptir mestu máli til að viðhalda heilsu fólks er að það hafi trygga vinnu. Með tryggri vinnu helst regla á lífi fólks og fjölskyldna þeirra jafnframt sem þeim er tryggð afkoma. Það eru til margar rannsóknir sem undirstrika slæm áhrif atvinnuleysis á heilsu fólks, lífsgæði og ævilíkur (5) þannig að það er forgangsverk- efni að halda atvinnustigi háu. Þá verður einnig að undirstrika að þau fyrirtæki sem sinna góðri vinnuvemd og tryggja þannig heilsu starfsmanna eru líklegri til að famast betur þegar efnahagsleg áföll dynja yfir (6). Það sem læknar og heilbrigðisyfirvöld verða að hugsa til þegar skórinn kreppir í fjármálum er að án heilbrigðra einstaklinga verður enginn hag- vöxtur, velferð og velmegun. Grunnþáttur þessa felst í því að viðhalda fyrsta stigs forvömum. Við þurfum að tryggja að allir og þá sérlega þeir sem höllum fæti standa hafi tryggt húsaskjól með góðu hreinlæti og góðum mat. Þetta hljómar sjálfsagt, en til dæmis foreldrum sem standa höllum fæti getur reynst erfitt vegna efna sinna og heilsu að tryggja þetta. Til að verja heilsu fólks er brýnt að halda nið- urskurðarhnífnum frá ungbama- og mæðravemd, heilsugæslu í skólum og almennri heilsugæslu. Á öllum tímum, bæði góðum og óvissum, er vak- andi heilsugæsla með virka heimilislækna í broddi fylkingar án efa meðal brýnustu forvarna sem við getum kallað eftir foreldrum, börnum þeirra og al- menningi öllum til varnar og heilsubótar. Þessum skilaboðum um mikilvægi grunnþjónustu verður að halda skýrum og tryggja að niðurskurður bitni ekki á henni í heilbrigðiskerfinu. Reglubundnar heilsufarsskoðanir lækna vegna eftirlits með langvinnum sjúkdómum er mikil- vægur liður í að tryggja góða heilsu. Þetta ásamt lyfjatöku sem með fylgir er kostnaðarsamt fyrir einstakling og samfélag, en kvöl og kostnaður við að sinna því ekki er meiri en viðunandi er. Læknar þurfa að ganga eftir því að sjúklingar þeirra eigi völ á bestu meðferð, jafnvel í slæmu árferði, en þeir þurfa líka að huga að því að sjúklingur og samfélag geti ráðið við að greiða fyrir hana. Meðferð sem sjúklingur hefur ekki efni á virkar ekki, heilsufarseftirlit sem sjúklingur mætir ekki í vegna kostnaðar virkar ekki heldur. Læknar verða að sinna því forystuhlutverki sínu að vera leiðandi í ábyrgri umræðu um kostnað við að gæta að heilsu fólks hvort sem er í beinum forvömum sem koma í veg fyrir veikindi fólks og eflir heilsu þess, meðferð sjúkdóma, end- urhæfingu eða eftirmeðferð. Ef við læknar sinnum þessu vel getum við veitt sjúklingum, ráðamörtnum og samfélaginu bestu ráðgjöf og lagt þannig fram okkar skerf til að tryggja raunverulega velmegun. Heimildir 1. Brenner MH. Commentary: economic growth is the basis of mortality rate decline in the 20th century—experience of the United States 1901-2000. Int J Epidemiol 2005; 34:1214-21. 2. Grotto I, Huerta M, Sharabi Y. Hypertension and socioeconomic status. Curr Opin Cardiol 2008; 23: 335-9. 3. Hegewald MJ, Crapo RO. Socioeconomic status and lung function. Chest 2007; 132:1608-14. 4. Johnson JG, Cohen P, Dohrenwend BP, Link BG, Brook JS. A longitudinal investigation of social causation and social selection processes involved in the association between socioeconomic status and psychiatric disorders. J Abnorm Psychol 1999; 108: 490-9. 5. Jin RL, Shah CP, Svoboda TJ. The impact of unemployment on health: a review of the evidence. CMAJ 1995; 153: 529-40. 6. Kim J-Y, Paek D. Safety and health in small-scale enterprises and bankruptcy during economic depression in Korea. J Occup Health 2000; 42: 270-5. LÆKNAblaðið 2008/94 719
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.