Læknablaðið - 15.11.2008, Síða 18
■ FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
(1). Aðildarríki Evrópusambandsins, auk íslands,
Noregs og Liechtenstein, hafa gert samkomulag
um rafræna heilbrigðisþjónustu með aðgangi að
sjúkraskrám og sendingu lyfseðla án landamæra
hvar sem er í Evrópu (14). Fjarþjónustan breiðist
ört út, skilar hvað mestu í dreifbýlið og þjónustu
sem annars hefði ekki verið sinnt (15).
Rafræn heilbrigðisþjónusta á íslandi er lakari
en hjá mörgum þjóðum þrátt fyrir vaxandi tölvu-
og netnotkun með tölvur á 92% heimila landsins
og net hjá 88% árið 2008 (N=1630, 79% svörun)
og almennri notkun aðgangslykla að heimabanka
(16) . Alþjóðlegar mælingar 2006-2007 á almennri
nýtingu upplýsingatækni sýndu Dani, Svía og
Finna í forystu en ísland einu Norðurlandaþjóðina
sem dróst aftur úr miðað við fyrri mælingar
(17) . Gagnvirk heilsufarskerfi geta bætt lífsgæði
almennings, lágmarkað byrði sjúkdóma og styrkt
sjálfshjálp öryrkja og langveikra (10,18). Notendur
telja þau auka öryggi sitt og skilning á eigin
heilsufari (8, 9, 10, 18), þeir eflist, verði betur
upplýstir og áhrifameiri (8).
Engar rannsóknir eru til um afstöðu almenn-
ings á íslandi til aðgangs að eigin heilbrigðis-
upplýsingum og þjónustu á netinu. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna skilning, viðhorf
og óskir Islendinga um aðgang að eigin heilbrigð-
isupplýsingum og þjónustu TR á netinu. Tilgátur
voru settar fram um marktækan mun á sjónarmið-
um öryrkja með >75% örorkumat og annarra ís-
lenskra þegna með rétt til almannatrygginga.
Aðferð
Gerð var könnun með lýsandi sniði og póstsendum
spurningalista, þar sem bornir voru saman tveir
hópar: 1) öryrkjar sem voru örorkulífeyrisþegar
Tafla 1. Fjöldi og hlutfall þátttakenda - hópar, aldur, kyn.
Hópar Aldur Karlar Konur Fjöldi Hlutfall®
<= 30 ára 6 12 18 8,6%
H1 31-40 ára 8 19 27 12,9%
Öryrkjar 41-50 ára 17 36 53 25,4%
48,7% 51-60 ára 26 32 58 27,7%
61-67 ára 20 33 53 25,4%
H1 - Samtals 77 132 209 100,0%
<= 30 ára 16 30 46 20,9%
H2 31-40 ára 20 32 52 23,7%
Aðrir 41-50 ára 25 38 63 28,6%
þegnar 51-60 ára 22 17 39 17,7%
61-67 ára 9 11 20 9,1%
H2 - Samtals 92 128 220 100,0%
Allir samtals 169 260 429
Hlutfall kynja 39,4% 60,6% 100,0%
a) Hlutfall aldurshópa.
með >75% örorkumat og fengu örorkulífeyri
samkvæmt almannatryggingalögum á íslandi,
samtals 11.272 (Hl) og 2) aðrir með rétt til
almannatrygginga sem hér nefnast aðrir þegnar,
samtals 172.468 (H2). Heildarþýðið var allir
íslendingar, 16 til 67 ára, búsettir á íslandi, alls
183.740 einstaklingar. Úrtakið var 1400 manns
sem skiptist í tvo 700 manna hópa (H1 og H2).
Starfsmaður TR framkvæmdi slembival í hópana
samkvæmt verklagsreglum. Spurningalistar til
hópanna voru aðgreindir með mismunandi litum
til að fyrirbyggja rangflokkun og sá fyrirtækið
Umslag ehf. um aðskildar póstsendingar til hópa
samkvæmt skráðum fyrirmælum. ítrekunarbréf
voru send öllum þátttakendum tveimur vikum
síðar.
Mælitækið var, að fengnu leyfi höfunda, byggt
að hluta til á rannsókn (8) um viðhorf, skilning og
óskir notenda heilbrigðisþjónustu við hörtnun og
innleiðingu rafræns aðgangs notenda hjá heilsu-
gæslu í Oxford. Spurningar voru samtals 56, nafn-
breytur og raðbreytur, sem voru fullyrðingar með
fimm svarmöguleikum, frá sammála til ósammála.
Spurt var um aldur, kyn, fjölda heimilismanna og
búsetu, aðgengi og notkun tölvu og nets, sam-
skipti við TR og reynslu af aðgangi að eigin heil-
brigðisupplýsingum. Raðbreytuspumingar tóku
til aðgangsréttinda að eigin heilbrigðisupplýs-
ingum, aðgangs að eigin heilbrigðisupplýsingum
og þjónustu TR á netinu. Einnig var spurt um
þjónustuþætti TR og æskilega staðsetningu al-
menningsaðstöðu netaðgangs. Mælitækið ásamt
fylgibréfi var forprófað á blönduðum hópi 11
þátttakenda á aldrinum 25-60 ára. Starfmenn TR
veittu einnig aðstoð við mælitækið með yfirlestri
og ráðgjöf.
Gagnasöfnun var framkvæmd frá miðjum
nóvember 2004 fram í janúar 2005 að fengnu
leyfi Vísindasiðanefndar (VSNb2004100005/03-
1) og tilkynningu til Persónuverndar. Svörum
þátttakenda með 50% auð gildi eða meira var
eytt, eftir það höfðu allir yfir 85% gildar breytur.
Tölfræðileg úrvinnsla var unnin í SPSS forriti
útgáfu 13,0. Lýsandi tölfræði var notuð á allar
breytur og kí-kvaðratpróf með Pearson's prófi fyrir
marktækni á hlutfallslegan mun raðbreyta miðað
við H1 og H2, lýðfræðibreytur og netnotkun.
Raðbreytuspumingar voru flokkaðar efnislega
í sex flokka með þremur til sjö spurningum og
gert Wilcoxonpróf með forritinu R, útgáfu 2.6.0,
til að greina mun spumingaflokka gagnvart H1
og H2, búsetu og netnotkun. Öryggismörk fyrir
marktækni vom 95%. Svarhlutfall innan hópa var
vegið miðað við fjölda í þýði og vegið svarhlutfall
notað fyrir útkomu á heild, þar sem hópar öryrkja
og annarra þegna voru misstórir. Þáttagreining
730 LÆKNAblaðið 2008/94