Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2008, Síða 35

Læknablaðið - 15.11.2008, Síða 35
S J FRÆÐIGREINAR ÚKRATILFELLI Broddþensluheilkenni - sjúkratilfelli og yfirlit Guðný Stella Guðnadóttir1 deildarlæknir Hannes Sigurjónsson1 deildarlæknir Þorbjörn1’4 Guðjónsson hjartalæknir Helga Ágústa Sigurjónsdóttir2 innkirtla- og efnaskiptalæknir Maríanna Garðarsdóttir3 röntgenlæknir Ragnar Daníelsen1 hjartalæknir Ágrip Broddþensluheilkenni einkennist af bráðri skerð- ingu á samdrætti vinstri slegils þar sem brodd- ur og miðhluti hans þenjast út, en kröftugur samdráttur er í grunnhluta. Heilkennið er mun algengara hjá konum. Líkamlegt eða andlegt álag getur verið orsakavaldur. Einkenni og teikn sjúklings líkjast bráðu kransæðaheilkenni með brjóstverk, breytingum á hjartalínuriti og hækkun á hjartaensímum. Ekki finnast marktækar þreng- ingar í kransæðum. Heilkennið er afturkræft. Lýst er þremur tilfellum af broddþenslu sem voru greind á hjartadeild Landspítala á 10 dögum í des- ember 2007. Inngangur Apical Ballooning Syndrome, sem við höfum kosið að nefna broddþensluheilkenni (BÞH) á íslensku, er hjartasjúkdómur sem nýlega hefur verið lýst í alþjóðlegum fræðum. I þessari grein er lýst fyrstu þremur tilfellum broddþensluheilkennis á íslandi. Heilkennið einkennist af bráðri afturkræfri truflun á samdrætti í miðhluta og broddi vinstri slegils og Tafla I. Hin ýmsu nöfn broddþensluheilkennis. Neurogenic Myocardial Stunning Apical Ballooning Syndrome Takotsubo Cardiomyopathy Stress induced Cardiomyopathy Ampulla Cardiomyopathy Broken Heart Syndrome Transient Left Ventricular Ballooning Syndrome öflugum samdrætti í grunnhluta hans sem leiðir til útþenslu brodds í slagbili. Hreyfitruflunin nær oft yfir meira svæði en næringarsvæði einnar kransæðar. Samdráttartruflunin gengur til baka á fáeinum dögum til vikum (1, 2). Einkenni og teikn sjúklingaima benda til bráðs kransæðasjúkdóms en ekki finnast marktækar þrengingar við krans- æðamyndatöku sem útskýra einkenni þeirra (3,4). BÞH hefur gengið undir ýmsum nöfnum, svo sem álagshjartavöðvakvilli eða Takotsubo hjartavöðva- kvilli (tafla I). Því var fyrst lýst árin 1990 og 1991 og var nefnt eftir hinni japönsku kolkrabbagildru Takotsubo, en útlit slegilsins í slagbili þykir minna á hana (mynd 1, mynd 2) (4). Karl Andersen14 hjartalæknir Lykilorð: broddþensluheilkenni, Takotsubo hjartavöðvakvilli, álagshjartavöðvakvilli. ■ mm ’Hjartadeild, 2innkirtladeild, 3myndgreiningadeild Landspítala, “læknadeild HÍ. Fyrirspurnir og bréfaskipti: Karl Andersen, hjartadeild Landspítala Hringbraut, 101 Reykjavík andersen@landspitali. is Mynd 1. Myndir teknar með segulómun ígegnum lengdarás vinstri slegils og vinstri gáttar. Mynd la og íb eru frá tilfelli 2 og sýna eðlilega pykknun á vegg vinstri slegilsins í grunnhluta hjartans (basis) (hægra megin við örvar) en nánast engan samdrátt í broddi hjartans (apex) (vinstra megin við örvar). Mynd la sýnir hjartað í lok hlébils og lb í lok slagbils. LÆKNAblaðið 2008/94 747
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.