Læknablaðið - 15.11.2008, Page 47
UMRÆÐUR 0 G
LÆKNAFÉLAG
F R É T T I R
í S L A N D S
Yfirvofandi kjarasamningar lækna mörkuðu
alla umræðu fundarins báða dagana og fulltrúi frá
Capacent kynnti niðurstöður könnunar á viðhorf-
um lækna til þess að fara í aðgerðir ef ekki semdist
við ríkisvaldið.
Formenn ýmissa innri stofnana félagsins fjölluðu
um starfsemi hverrar um sig og eftir hádegisverð í
Hlíðasmára hlýddu menn á Gylfa Zoéga prófessor
í hagfræði við HÍ fara með spádóma um fjár-
málamarkað þjóðarinnar og má fullyrða að þar hafi
engu verið logið. Hann spáði versnandi lífskjörum
næstu 12-18 mánuði en á hirrn bóginn bötnuðu kjör
fólks þareð frítími fjölskyldunnar ykist.
Lækningaminjasafn í Nesi var umfjöllunar-
efni málþings LÍ og Félags áhugamanna um sögu
læknisfræðinnar á laugardeginum á Háskólatorgi.
Þar var skeggrætt um hið ófædda safn, um Nes og
lækna sem þar sátu, minjar sem er að finna þar í
jörð og um upphafsmann alls þessa: Jón Steffensen.
Af umræðum yfir og allt um kring pallborðið í lok
þingsins má í það minnsta slá því föstu að engum
viðstaddra er sama um lækningaminjasafnið.
Það er merkilegt að lesa lokaorð Guðmundar
Hannessonar rituð 1918 um stofnun LI í ljósi alls
sem ný öld hefur fært okkur og hætt við því að
stofnendur félagsins snúi sér við í gröfinni þegar
þeim verður ljóst í hvað afkomendur þeirra hafa
eytt tíma sínum og þreki. „Mitt í öllum harðind-
unum, þrátt fyrir alla dýrtíð og styrjöld, byrja nú
íslenskir læknar árið með þessari félagsstofnun,
víllausir og alls ósmeikir, til þess að búa betur í
haginn fyrir komandi ár. Illviðri og hvers konar
óáran bitnar ekki síst á íslenskum læknum og engir
sjá meira af hvers konar eymd og volæði. Þeir hafa
þó ekki gugnað til þessa, og eitthvað meira mun
þurfa til þess að draga úr þeim kjarkinn en þessi
illviðri og óáran, sem nú gengur yfir."
Hannesson G. Læknafélag íslands. Læknablaðið 1918; 4:1-2.
LÆKNAblaðið 2008/94 759