Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.11.2008, Side 58

Læknablaðið - 15.11.2008, Side 58
 U M R Æ Ð U R O G FRÉTTIR S PÆ N S K A V E 1 K 1 N Steingrímur Matthíasson (1876-1948) var sonur Matthíasar Jochumssonar, prests og skálds, og tengdasonur Þórðar Thoroddsen. Hann lauk læknaprófi við Hafnarháskóla 1902. Var héraðslæknir í Akureyrarhéraði 1907-1936. Annaðist einnig kennslu við gagnfræðaskólann á Akureyri. Sinnti talsvert skrifum i þágu skólafræðslu og almenningsfræðslu. Gaf út: Heilsufræði. Alþýðubók og skólabók (Akureyri, 1914). Skrifaði um spánsku veikina á dönsku 1920 (11). ’Rannsóknir í öpum með 1918-veiruna endurgerða styðja þetta eindregiö (sbr. Kobasa D, el al. Nature 2007:445: 319-23). og gegnum þvagrásina ... Þetta er það, sem gerði þessa inflúenzu-sótt svo einkennilega og ægilegri en aðrar inflúenzu-sóttir, sem ég hefi séð". Þegar þessi orð voru skrifuð hafði Þórður verið starfandi læknir í þremur inflúensufaröldrum (1890, 1894 og 1900) áður en inflúensufaraldurinn 1918 kom til. í þessum fjórum faröldrum hafði hann stundað samtals 2880 sjúklinga þannig að reynsla hans af inflúensu var mikil. Það er því ótvírætt, að inflúensan 1918-1919 hefur verið afar slæm’1’. Auk inflúensueinkenna frá efri öndunarvegi, beinverkja, sótthita o. 1. skar inflúensan 1918 sig úr að því leyti, að lungnabólga og önnur einkenni frá neðri öndunarvegi voru mun algengari. Einkenni frá öðrum líffærum, sem alþekkt voru í spánsku veikinni, benda einnig til sýklasóttar (sepsis). Sýnir þetta að spánska veikin gat orðið fjölkerfa sjúkdómur líkt og þekkst hefur síðar um fuglainflúensutilfelli í mönnum (6). Skrif Steingríms Matthíassonar um inflúensuna 1918-1919 Steingrímur og aðrir læknar á Norðurlandi urðu að því best verður séð brautryðjendur í marktækum sóttvörnum hér á landi. Að undirlagi þessara lækna og með atbeina Páls Einarssonar, sýslumanns á Akureyri (og fleiri sýslumanna), og fulltingi stjórnvalda tókst að varna annarri bylgju inflúensunnar 1918 að berast um Norðurland og MYND 3. Lárus H. Bjarnason (1866-1934) lauk lögfræðiprófi frá Hafnarháskóla 1891. Varskipaður sýslumaður Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu 1894 og prófessor 1911 (var í hópi fyrstu prófessora við H.Í.). Varð hæstaréttardómari 1919 (sömuleiðis I fyrstu röð dómara við réttinn). Lárus var einnig alþingismaður í allmörg ár. Embættisferill lárusar var samkvæmt þessu óvenjulega glæsilegur. Lárus hafði forgöngu um stofnun hjúkrunarnefndarinnar í spánsku veikinni og var formaður hennar. Séra Árni Þórarinsson hefur í ævisögu sinni langan kafla um Lárus I starfi sýslumanns á Snæfellsnesi. Hann lofar röggsemi Lárusar og nefndi, að honum léti vel að stjórna fundum og það væri tekið til greina, sem hann segði (12). (Mynd úr Ljósmyndasafni Reykjavlkur, tekin árió 1900, Ijósmyndari óþekktur.) Austurland. Var þetta gert með því að banna allar ferðir á landi og setja skip, er komu að landi, í átta daga sóttkví. Þessum sóttvörnum var við haldið í fjóra mánuði eða vel fram á árið 1919. í Vestur- Skaftafellssýslu var annar dugandi sýslumaður, Gísli Sveinsson, er varði sitt svæði með líkum hætti. Talið er að þriðja bylgja spánsku veikinnar hafi hafist í mars 1919. Var hún í fyrstu talin vera kvefsótt, en fékk fljótt á sig farsóttarbrag: „Auk þess skellur hún á samtímis því að þriðja bylgjan gekk yfir heiminn og lagðist harðast á þau héruð sem áður höfðu sloppið við spænsku veikina" (1). Um 20. mars, að sóttvarnartímabilinu loknu, var fyrsta farþegaskipinu leyft að koma til hafnar á Akureyri. Steingrímur fór um borð í skipið. Þar voru allir við góða heilsu nema tveggja ára gamalt barn, sem að dómi skipslæknis hafði verið kvefað með hósta og hita, en var að batna. Steingrím grunaði, að um inflúensu væri að ræða og íhugaði að setja farþegana í einangrun. Af ýmsum ástæðum (meðal annars vegna fjölda farþega og fullyrðingar skipstjórans þess efnis, að tafir á ferðum skipsins myndu kosta mikil fjárútlát) varð hann að hleypa farþegunum í land. Tveimur til þremur vikum síðar var inflúensufaraldur kominn á flug á Akureyri og veiktust nær öll börn þar af inflúensunni. Börnin náðu sér yfirleitt fljótt og einungis eitt bam dó. Ýmsir fullorðnir fengu einnig væg inflúensueinkenni. í sveitum í Akureyrarhéraði veiktust allmargir fullorðnir og áberandi mismunandi illa eftir bæjum. f heild var bylgjan þó mun mildari en sú á undan hafði verið haustið 1918. Sagan sem Steingrímur Matthíasson segir er vel kunn úr læknisstarfi: Læknir er gegn betri vitund knúinn til undanláts af því, að hann skortir beinar sannanir máli sínu til stuðnings. Lárus H. Bjarnason og hjúkrunarnefndin 1918 Ekki er vitað hvað leiddi til þess að Lárus gekk á fund Jóns Magnússonar, forsætisráðherra, og stakk upp á stofnun hjúkrunarnefndarinnar. Má vera, að jafnröggsömum embættismanni og Lárus var, hafi runnið til rifja aðgerðarleysi stjómvalda í þeirri miklu vá, sem spánska veikin var í Reykjavík, og það hafi rekið hann á fund ráðherrans. Hinu má þó ekki gleyma, að unnusta sonar hans tók spánsku veikina og var ein af þeim fyrstu, sem létust af hennar völdum (12). Annað er og, að kollegi Lárusar, Jón Kristjánsson lagaprófessor, lést úr spánsku veikinni 9. nóvember, aðeins 33 ára gamall. Lárusi kann því að hafa verið tilfinningamál að leggja sitt af mörkum í baráttunni við þennan vágest. 770 LÆKNAblaðiö 2008/94 i

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.