Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2008, Síða 82

Læknablaðið - 15.11.2008, Síða 82
 HUGLEIÐING HOFUNDAR Orð í belg - um ástarmálið íslensku Kristín Helga Gunnarsdóttir ■HflflH ■ Kristín Helga Gunnarsdóttir (1963) hefur starfað sem fararstjóri, flugfreyja og fréttamaður, á Bylgjunni og Stöð 2. Frá 1998 hefur Kristín Helga sinnt ritstörfum, skrifað fjölda barnabóka og gert þætti fyrir sjónvarp og skrifað pistla í blöð og tímarit. Fyrstu barnabækur Kristínar Helgu Gunnarsdóttur voru Elsku besta Binna mín (1997) og Bíttu á jaxlinn Binna mín (1998) slógu rækilega í gegn og komu Kristínu Helgu strax í hóp vinsælustu barnabókahöfunda landsins. Hún hefur meðal annars fengið Barnabókaverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur, Bókaverðlaun barnanna og Vorvinda, árlega viðurkenningu íslensku IBBV-samtakanna fyrir bækur sínar. ■ Hér er þessi mannvera og hún er fullkomin. Barnalæknirinn lét þessi orð falla um leið og hann rétti okkur foreldrunum yngstu dótturina og út- skrifaði hana af fæðingardeild. Orðin voru hlaðin merkingu. Hér er þessi mannvera. Heil mannvera var mætt og átti allt sitt undir þeim sem við tók. Og ég velti því fyrir mér hvort hún myndi höndia hamingjuna, heiisuna og alla veröldina. Og hún er fullkomin, sagði hann. Manni er kennt að enginn sé fullkominn - eins og til þess að draga úr þeim mikilfengleik sem eitt líf er. Ég ákvað þó að vera sammála lækninum. Ætli allir séu ekki fullkomnir sem draga andann og lifa. Hið fullkomna er síbreytilegt og samofið úr ótal fellingum sorga og sigra. Ein manneskja er full- komið kraftaverk í öllum sínum margbreytileika - þegar hún nærist, andar, hlær og grætur, hrasar, rís aftur á fætur, vaknar og sofnar. Þegar hún elskar og hatar. Orð falla til jarðar allt í kringum okkur. Þau falla eins og sólargeislar, milt regn, hægur andvari og hlýr sunnanvindur. Þau geta líka skollið á eins og haglél, norðangarri, stormur og stórhríð. Sum orð látum við sem vind um eyru þjóta. En til eru þau orð sem við stingum í vasa og geymum sem nauðsynlega næringu í nesti. Vertu til staðar, hér og nú - án þess að dæma, sagði jógakennari við nemendur á mánudags- kvöldi í miðborginni. Ég greip orðin. Vertu til staðar. Vertu meðvitaður og í sam- bandi. Hlustaðu á þinn eigin andardrátt og finndu fyrir sjálfum þér. Hér og nú. Njóttu stundarinnar og gríptu hana. Þú átt þessa stund, ekki stundina í gær og ekki stund morgundagsins. Og án þess að dæma, bætti jógakennarinn við. Þessi orð veittu mér frelsi til að vera án þess að dæma sjálfa mig og aðra - losa mig við fordóma, þröngsýni og reiði. Orð skulu standa, sagði einhver. Það getur vel verið í sumum tilfellum. En við getum grafið í sandinn þau orð sem hefðu ekki átt að falla og sett í vasann orðin sem við nærumst á og byggja okkur upp sem mannverur. Yfir hafið í gegnum fjölmiðla er hrópað: Have a nice day! Arum saman náðu frónskir ekki upp í þessa tilgerð, en smám saman þykir sjálfsagt að kalla á eftir vinum út í frostið: Njóttu dagsins! Og það hlýnar um nokkrar gráður við orðin sem legg- jast yfir herðarnar eins og notaleg ábreiða. Lúnir foreldrar lágu síðla kvölds í hjónarúmi þegar lítill uppfirmingamaður læddist inn og hvísl- aði í myrkrinu: „Takk fyrir daginn. Hann var góður þessi dagur." Með það tipplaði snúður til baka í sína holu. Hann skildi eftir sig galdra og bjó til hefð sem fylgdi honum til fullorðinsára. Að þakka sam- ferðafólki sínu fyrir einn dag í einu er vísbending um að viðkomandi njóti stundarinnar. Og uppfinn- ingamaður segi ég þar sem litli maðurinn gerði til- raunir með orð og framköllun hlýrra strauma. Orð eru verkfæri tilfinninga, viðkvæmt listform og smíðaviður samskipta. Skoðum sögnina stóru sem umfaðmar allt - sögnina sem vefur sig eins og loðinn trefill umhverfis þá sem hennar njóta. Sögnin að elska. Árið 1970 sagði enginn Islendingur upphátt að hann elskaði annan. Menn hvísluðu það í eyra í rökkri og muldruðu ofan í bringu á ögurstundu. Engum frónverja kom til hugar að segja slíkt stundarhátt í dagsbirtu. Sögnin að elska var þeim óviðráðanleg. Menn sáu sögnina á prenti og hún rann yfir sjónvarpsskjáinn endrum og sinnum þegar erlendir þættir voru þýddir, en þá voru þeir yfirleitt að vestan. Bandarískir nýttu sér sögnina til daglegs brúks, en þóttu fyrir það væmnar væluskjóður. Stöku sinnum hljómaði „I love you" frá sjón- varpinu og maður lagðist í gólfið af skömm yfir því að sitja við tækið þegar hryllingurinn skall á. Verst var er foreldrarnir voru viðstaddir þegar ælovjú- slím lak skyndilega yfir skjáinn. Maður greip fyrir augu, stóð jafnvel upp, sneri sér einn hring, dæsti þunglega og lét sig svo hníga niður í stólinn aftur. Oftast voru íslenskir þýðendur snarráðir og var ælovjú-slími snarað yfir á ástkæra og ylhýra sem: Mér þykir afar vænt um þig. Allir önduðu léttar þegar sögnin að elska var gengisfelld í þýðingu og dregin inn fyrir skynsemismörk íslenskrar hugs- unar. En svo þroskast þjóð og lærir að vera ekki hrædd við tilfinningar. Hún lærir að hættan felst ekki í fallegum sagnorðum, heldur í því að nota þau ekki. Þannig höfum við hér á hjara veraldar lært að nota sögnina að elska. Við höfum lært að það er ekki nóg að finna elskuna innra með sér. Það þarf að koma henni frá sér. Systur sem eru uppfinningamenn hafa komið á órjúfanlegri hefð í sinni fjölskyldu. Þær spyrja sitt fólk reglulega og tilgerðarlaust: Var ég búin að segja þér í dag hvað ég elska þig mikið? Og nú er svo komið á landinu kalda að hörð- ustu naglar hefja hélaðan íslenskan daginn á því að líta í augu ástvinar og segja þessi heilandi orð sem bræða ísjaka: Ég elska þig. Það er enda við hæfi nú þegar samfélagsáhersl- an er á að við séum góð hvort við annað og munum að verðmætin felast í fólki en ekki í fjármunum. 794 LÆKNAblaöið 2008/94
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.