Læknablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 14
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKNIR
Sjúklingar með sýkingu í táragöngum fengu
hvorki sýklalyf í æð né um munn og eru því ekki
teknir með í þessa útreikninga. Þeir gengust hins
vegar allir undir aðgerð þar sem táragöngin voru
hreinsuð og gefin voru staðbundin sýklalyf í sjö
daga með góðum árangri.13
Auk sýklalyfjagjafar var einhvers konar aðgerð
framkvæmd hjá 55 af 57 þar sem unnt var að
leggja á það mat (97%). Hér var litið á það sem
aðgerð ef sýkt svæði var hreinsað, svo sem
úthreinsun á greftri og brottnám á aðskotahlut
líkt og getnaðarvarnarlykkjunni. Algengast var
að bæði aðgerð og lyfjagjöf væri beitt, eða í 89%
tilvika.
Umræður
Hér eru kynntar niðurstöður lýðgrundaðrar
afturvirkrar rannsóknar á geislagerlabólgu á
íslandi á 24 ára tímabili, frá 1984 til 2007. Leitað
var að sjúklingum bæði út frá ICD-greiningum
og niðurstöðum vefjarannsókna. Mótuð voru
greiningarskilmerki í fimm liðum og út frá
þeim fundnir 66 einstaklingar sem gjaldgengir
voru í rannsóknina. Þar sem sjúkdómurinn er
flókinn í greiningu er líklegt að vægari tilfelli og
sjúklingar sem meðhöndlaðir voru á klínískum
grunni einvörðungu hafi ekki allir skilað sér í
rannsóknina. Meðalaldur sjúklinga í rannsókninni
var 45 ár sem er mjög svipað og í öðrum
samantektarrannsóknum.3'7
Líkt og fram hefur komið í öðrum rannsóknum
á geislagerlabólgu voru flestir sjúklingar með
sýkingu á hálsi og andliti. í þessari rannsókn
er hlutfallið 42% en í öðrum rannsóknum á
bilinu 32-55%,6' 7 en hafa ber í huga varðandi
allan samanburð að fá tilfelli eru á bak við hvert
prósentustig. Hugsanlegt er að einhver tilfelli hafi
ekki skilað sér í okkar rannsókn og eru sýkingar í
höfði og hálsi þar líklegastar. Geislagerlabólga á
hálsi og andliti er gjarnan tengd slæmri tannhirðu3
og því má telja líklegt að einhver tilfelli hafi verið
meðhöndluð alfarið af tannlæknum.
Fjöldi sýkinga í táragöngum kom verulega
á óvart en þær voru níu, eða 14% af heildinni.
Hefur þeim sjúklingum verið lýst sérstaklega í
annarri grein.13 í öðrum samantektarrannsóknum
um geislagerlabólgu hefur hvergi verið minnst
sérstaklega á sýkingar í táragöngum og því
engar niðurstöður til viðmiðunar. Ljóst er að
geislagerlabólga í táragöngum er afar sjaldgæf14-15
en talið er að sýkillinn komist inn í táragöngin með
öfugstreymi frá munnholi eða með fingri vættum
í munnvatni.16 Ákveðið var að skoða einstaklinga
með táragangasýkingu sérstaklega því við töldum
að meinafræði og meingerð þessara sýkinga
væri með öðrum hætti en annarra sýkinga á
höfði og hálsi. Þannig var meðalaldur þessara
sjúklinga hærri en hjá öðrum sjúklingum með
sýkingar á höfði og hálsi, kynjahlutfall var annað,
greiningartöf marktækt lengri og sýkingarnar
alltaf staðbundnar.13 Einnig vekur athygli að
átta af níu sýkingum greindust á seinni hluta
tímabilsins sem gæti samrýmst uppsöfnuðum
greiningarvanda.
Aðeins einn einstaklingur greindist með
sýkingu í brjóstholi (2%). Þetta er mun lægra
hlutfall en vænta mátti, en erlendar rannsóknir
benda til að sýkingar í brjóstholi séu að minnsta
kosti 15% allra tilvika.1-5'7 Um var að ræða sýkingu
í berkjuholi (endobronchial actinomycosis) sem
er sjaldgæf birtingarmynd geislagerlabólgu í
brjóstholi. í ljósi þessara niðurstaðna má velta fyrir
sér hvort geislagerlabólga í brjóstholi sé vangreind
hér á íslandi. Geislagerlabólga ætti að vera inni í
mismunagreiningu þeirra sem fá endurteknar en
óútskýrðar öndunarfærasýkingar, sérstaklega hjá
karlmönnum 30-50 ára3'17 með slæma tannheilsu
og sem hafa misnotað áfengi.
Lægra hlutfall sjúklinga var með sýkingu í
kviðarholi en búast mátti við, eða 11%. Líklegt er
að verklag okkar við skiptingu tilfella í kviðarhol
og grindarhol hafi haft áhrif á þetta hlutfall.
Þegar um var að ræða útbreidda sýkingu í
kjölfar lykkjunotkunar voru tilfelli flokkuð sem
grindarholssýking í ljósi þess að upphafsstaður
sýkingar var í legi. í kviðarholi getur sýkillinn
jafnframt tekið sér bólfestu ef slímhúð í maga
eða ristli rofnar við áverka, skurðaðgerðir eða
sjúkdóma.18
Alls greindist 21 kona með geislagerlabólgu
í grindarholi, eða 32% af heildarþýðinu. Þetta
er margfalt hærra hlutfall en í öðrum saman-
tektarrannsóknum6-7 en þær rannsóknir sem hér
er miðað við eru frá áttunda áratugnum. Ljóst
er að tilfellum geislagerlabólgu í grindarholi fer
fjölgandi nú á seinni árum í kjölfar notkunar
á getnaðarvarnarlykkjunni.1 Almennt er talið
að sjálft legið sé laust við bakteríur og hafa
rannsóknir sýnt að skammvinn sýklun verður
í legholi við ísetningu lykkjunnar.19 Talið er að
lykkjan geti valdið rofi á legslímu sem opnar
bakteríunni leið inn í dýpri vefi.1
Mikinn fjölda tilfella grindarholssýkinga í
þessari rannsókn má einnig skýra með því
að leitað var að sjúklingum út frá jákvæðum
vefjasýnum. Sex konur fundust fyrir tilviljun með
þessum hætti eftir útskaf vegna frumubreytinga
í leghálsi. Þær voru hafðar með í rannsókninni
á grundvelli greiningarviðmiðs um aðskotahlut
sem í þeirra tilviki var getnaðarvarnarlykkja. Segja
má að þessar konur hafi haft geislagerlabólgu á
326 LÆKNAblaðið 2010/96