Læknablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 59
UMRÆÐA 0 G FRÉTTI
LÆKNINGAMINJASAFNI
Dr. Steinunn Kristjánsdóttir formaður námsbrautar ífomleifafræði við Háskóla íslands, Anna Þorbjörg Þorgrímsdóttir
safnstjóri og Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seitjarnarness.
Samstarf sem styður
við rannsóknir og kennslu
Hávar
Sigurjónsson
Fimmtudaginn 15. apríl undirrituðu í Nesstofu
Steinunn Kristjánsdóttir formaður námsbrautar í
fornleifafræði við Háskóla íslands, Anna Þorbjörg
Þorgrímsdóttir safnstjóri Lækningaminjasafn
Islands og Ásgerður Halldórsdóttir fyrir
hönd Seltjarnarnesbæjar, samning um sköpun
kennsluvettvangs í Nesi fyrir nemendur í
fomleifafræði við Háskóla íslands.
„Með samstarfi við háskólann styður
Lækningaminjasafnið við rannsóknir og kennslu
um leið og við aukum þekkingu okkar á
nærumhverfi Bjama Pálssonar og eftirmanna
hans í Nesi," segir Anna Þorbjörg safnstjóri. „í
Nesstofu er verið að útbúa sýningu um búsetu í
Nesi á því tímabili þegar Iandlæknir, ljósmóðir og
lyfjsali bjuggu í Nesi. Þar verður sögu lækninga
og lyfjagerðar í Nesi gerð góð skil en einnig
verður sagt frá daglegu lífi íbúanna. Frá 13. maí
til 3. júní mun safnið standa fyrir leiðsögn um
uppgraftrarsvæðið og sýninguna Saga og framtíð.
í fyrri fomleifarannsóknum á svæðinu hafa komið
í ljós gripir sem tengjast sögu lækninga, til dæmis
lyfjakrukka, lyfjaglös og lyfjaleifar."
Að sögn Önnu Þorbjargar er markmið
samkomulagsins að skapa vettvang fyrir verklega
kennslu í fornleifafræði og gera aðgengileg á einum
stað gögn sem tengjast fornleifarannsóknum í
Nesi. Námsbraut í fornleifafræði við HÍ mun
halda úti kennslu í vettvangsrannsóknum í
Nesi á hverju vori næstu 10 ár. Hefst fyrsta
vettvangsnámskeiðið 10. maí næstkomandi
og mun það standa yfir í einn mánuð.
í tengslum við fornleifarannsóknimar verður
boðið upp á leiðsögn fyrir almenning um
uppgraftarsvæðið og niðurstöður rann-
sóknanna verða kynntar jafnóðum í sýningum
í Nesstofu. Að rannsóknum loknum verður
gengið frá uppgraftarsvæðinu þannig að rústir
mannvirkjanna verða sýnilegar gestum svæðisins.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Lækningaminjasafns www.laekningaminjasafn.is.
LÆKNAblaðið 2010/96 371