Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 54

Læknablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 54
■ UMRÆÐAR 0 G FRÉTTIR BRÉF TIL BLAÐSINS birtust í grein okkar í marshefti Læknablaðsins og athugasemdirnar frá Herbalife breyta engu þar um, niðurstöður okkar standa óhaggaðar. Athugasemdir talsmanna Herbalife um þær viðurkenndu aðferðir sem við beittum eru ekki byggðar á gildum rökum. Umfjöllun Herbalife um sjúkratilfellin er ónákvæm og villandi og notkun þeirra á hinni viðurkenndu WHO flokkun er óskiljanleg. Starfsmenn Herbalife vilja útiloka mikilvægasta tilfellið, það er nr. 4. Staðfest er að sjúklingurirm var ekki að taka lyfið Zyban þegar lifrarbólgu varð vart á nýjan leik. Sjúklingurinn hélt áfram að taka birkiösku í seinna skiptið og einkenni gengu til baka þegar neyslu Herbalife var hætt í bæði skiptin. Auk þess hefur birkiaska ekki verið tengd lifrarskaða. Það er því enginn vafi á að hér eru örugg orsakatengsl. Þeir vilja útiloka tvö tilfelli til viðbótar þar sem sjúklingamir tóku lyf samhliða fæðubótarefnum. Ekki er tilgreint nákvæmlega hvaða tilfelli þeir eiga við. í þeim tilvikum þar sem sjúklingar voru að taka lyf er í grein okkar gerð ítarleg grein fyrir viðkomandi lyfjutu og rökstudd sú niðurstaða að þau séu ólíkleg orsök. Talsmenn Herbalife virðast hafa misskilið almenna umfjöllun okkar um lifrarskaða af völdum náttúmefna í inngangi greinarirtnar. Þeir gefa til kynna að við höldum því fram að vömr Herbalife innihaldi kava, ma huang, krossfífil og hóffífil. Augljóst ætti að vera að þarna er verið að fjalla almennt um náttúruvörur sem geta valdið lifrarskaða en ekki um Herbalife. Þeir hafa líka misskilið grein okkar varðandi það hvaða vörar flestir sjúklinganna voru að taka, í greininni kemur skýrt fram í töflu I hvaða vörur þarna var um að ræða. Talsmenn Herbalife fjalla í grein sinni í löngu máli um grænt te, negul og aloe vera en sú umfjöllun hefur litla þýðingu þar sem enginn veit hverjir orsakavaldamir kunna að vera, það er að segja hvað í þessum fæðubótarefnum kann að valda lifrarskaða. Þetta kemur skýrt fram í grein okkar en á bls. 170 stendur: „Aðeins er hægt að geta sér til um orsakimar en líklegast virðist að einhverjar af þessu vörum innihaldi eitraðar jurtir". Það skiptir þó máli að negull og grænt te eru þekkt af því að geta valdið lifrarskaða sérstaklega ef magn efnanna er meira en ráðlagt er en ekki er vitað hvort sjúklingamir sem um ræðir tóku vörurnar í ráðlögðum skömmtum.3 Vangaveltur af þessu tagi em venjulegar og fullkomlega eðlilegar í fræðigrein sem þessari. Það er vel þekkt að oft er erfitt að finna nákvæmlega hvaða innihaldsefni eða efnasamsetningar valda lifrarskaða þegar náttúruefni eða lyf eru annars vegar. Þótt ekki sé á þessu stigi þekkt hvaða meingerð er að baki lifrarskaða í tengslum við Herbalife notkun útilokar það ekki orsakasamhengi. Umfjöllun á svipuðum nótum er að finna í greinunum frá Sviss, Israel og Spáni þar sem lýst var sambærilegum tilfellum. Mikill fjöldi efna úr náttúrunni (náttúruefni) hefur vel staðfestar aukaverkanir4 og fjöldinn allur af fæðubótarefnum hefur verið tekinn af markaði víða um heim vegna heilsutjóns sem þau hafa valdið. Lyfjaframleiðendur hafa fyrir löngu fallist á að lyf hafi aukaverkanir og það er mál til komið að framleiðendur fæðubótarefna viðurkenni þá staðreynd að fæðubótarefni geta líka haft aukaverkanir.5 Með því að viðurkenna þessar staðreyndir gætu framleiðendur fæðubótarefna unnið með vísindasamfélaginu að því að bæta öryggi fæðubótarefna í stað þess að vinna gegn vísindamönnum á þessu sviði. Svo virðist sem notkun fæðubótarefna fari vaxandi víða um heim og þess vegna er enn meiri ástæða til að fara varlega og vinna markvisst að því að bæta öryggi þessa vöruflokks. Höfundar hafa engin hagsmunatengsl. Heimildir 1. Jóhannsson M, Ormarsdóttir S, Ólafsson S. Lifrarskaði tengdur notkun á Herbalife. Læknablaðið 2010; 96:167-72. 2. Ignarro L, Heber D, Henig YS, Bejar E. Herbalife nutritional products and liver injury revisited. J Hepatol 2008; 49: 291-3; author reply 293-4. 3. Molinari M, Watt KD, Kruszyna, T et al. Acute liver failure induced by green tea extracts: case report and review of the literature. Liver Transpl 2006; 12:1892-5. 4. Jacobsson I, Jonsson AK, Gerden B, Hagg S. Spontaneously reported adverse reactions in association with complementary and altemative medicine substances in Sweden. Pharmacoepidemiol Drug Saf 2009; 18:1039-47. Bjömsson ES. Lifrarskaði af völdum lyfja. Læknablaðið 2010; 96:175-82. 366 LÆKNAblaðið 2010/96
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.