Læknablaðið - 15.05.2010, Side 54
■ UMRÆÐAR 0 G FRÉTTIR
BRÉF TIL BLAÐSINS
birtust í grein okkar í marshefti Læknablaðsins
og athugasemdirnar frá Herbalife breyta engu
þar um, niðurstöður okkar standa óhaggaðar.
Athugasemdir talsmanna Herbalife um þær
viðurkenndu aðferðir sem við beittum eru ekki
byggðar á gildum rökum.
Umfjöllun Herbalife um sjúkratilfellin er
ónákvæm og villandi og notkun þeirra á
hinni viðurkenndu WHO flokkun er óskiljanleg.
Starfsmenn Herbalife vilja útiloka mikilvægasta
tilfellið, það er nr. 4. Staðfest er að sjúklingurirm
var ekki að taka lyfið Zyban þegar lifrarbólgu
varð vart á nýjan leik. Sjúklingurinn hélt áfram að
taka birkiösku í seinna skiptið og einkenni gengu
til baka þegar neyslu Herbalife var hætt í bæði
skiptin. Auk þess hefur birkiaska ekki verið tengd
lifrarskaða. Það er því enginn vafi á að hér eru
örugg orsakatengsl.
Þeir vilja útiloka tvö tilfelli til viðbótar þar sem
sjúklingamir tóku lyf samhliða fæðubótarefnum.
Ekki er tilgreint nákvæmlega hvaða tilfelli þeir
eiga við. í þeim tilvikum þar sem sjúklingar voru
að taka lyf er í grein okkar gerð ítarleg grein fyrir
viðkomandi lyfjutu og rökstudd sú niðurstaða að
þau séu ólíkleg orsök.
Talsmenn Herbalife virðast hafa misskilið
almenna umfjöllun okkar um lifrarskaða af
völdum náttúmefna í inngangi greinarirtnar. Þeir
gefa til kynna að við höldum því fram að vömr
Herbalife innihaldi kava, ma huang, krossfífil og
hóffífil. Augljóst ætti að vera að þarna er verið að
fjalla almennt um náttúruvörur sem geta valdið
lifrarskaða en ekki um Herbalife. Þeir hafa líka
misskilið grein okkar varðandi það hvaða vörar
flestir sjúklinganna voru að taka, í greininni
kemur skýrt fram í töflu I hvaða vörur þarna var
um að ræða.
Talsmenn Herbalife fjalla í grein sinni í löngu
máli um grænt te, negul og aloe vera en sú
umfjöllun hefur litla þýðingu þar sem enginn
veit hverjir orsakavaldamir kunna að vera, það
er að segja hvað í þessum fæðubótarefnum kann
að valda lifrarskaða. Þetta kemur skýrt fram í
grein okkar en á bls. 170 stendur: „Aðeins er hægt
að geta sér til um orsakimar en líklegast virðist
að einhverjar af þessu vörum innihaldi eitraðar
jurtir". Það skiptir þó máli að negull og grænt
te eru þekkt af því að geta valdið lifrarskaða
sérstaklega ef magn efnanna er meira en ráðlagt
er en ekki er vitað hvort sjúklingamir sem um
ræðir tóku vörurnar í ráðlögðum skömmtum.3
Vangaveltur af þessu tagi em venjulegar og
fullkomlega eðlilegar í fræðigrein sem þessari. Það
er vel þekkt að oft er erfitt að finna nákvæmlega
hvaða innihaldsefni eða efnasamsetningar
valda lifrarskaða þegar náttúruefni eða lyf
eru annars vegar. Þótt ekki sé á þessu stigi
þekkt hvaða meingerð er að baki lifrarskaða í
tengslum við Herbalife notkun útilokar það ekki
orsakasamhengi. Umfjöllun á svipuðum nótum er
að finna í greinunum frá Sviss, Israel og Spáni þar
sem lýst var sambærilegum tilfellum.
Mikill fjöldi efna úr náttúrunni (náttúruefni)
hefur vel staðfestar aukaverkanir4 og fjöldinn allur
af fæðubótarefnum hefur verið tekinn af markaði
víða um heim vegna heilsutjóns sem þau hafa
valdið. Lyfjaframleiðendur hafa fyrir löngu fallist
á að lyf hafi aukaverkanir og það er mál til komið
að framleiðendur fæðubótarefna viðurkenni
þá staðreynd að fæðubótarefni geta líka haft
aukaverkanir.5 Með því að viðurkenna þessar
staðreyndir gætu framleiðendur fæðubótarefna
unnið með vísindasamfélaginu að því að bæta
öryggi fæðubótarefna í stað þess að vinna gegn
vísindamönnum á þessu sviði.
Svo virðist sem notkun fæðubótarefna fari
vaxandi víða um heim og þess vegna er enn meiri
ástæða til að fara varlega og vinna markvisst að
því að bæta öryggi þessa vöruflokks.
Höfundar hafa engin hagsmunatengsl.
Heimildir
1. Jóhannsson M, Ormarsdóttir S, Ólafsson S. Lifrarskaði
tengdur notkun á Herbalife. Læknablaðið 2010; 96:167-72.
2. Ignarro L, Heber D, Henig YS, Bejar E. Herbalife nutritional
products and liver injury revisited. J Hepatol 2008; 49: 291-3;
author reply 293-4.
3. Molinari M, Watt KD, Kruszyna, T et al. Acute liver failure
induced by green tea extracts: case report and review of the
literature. Liver Transpl 2006; 12:1892-5.
4. Jacobsson I, Jonsson AK, Gerden B, Hagg S. Spontaneously
reported adverse reactions in association with
complementary and altemative medicine substances in
Sweden. Pharmacoepidemiol Drug Saf 2009; 18:1039-47.
Bjömsson ES. Lifrarskaði af völdum lyfja. Læknablaðið 2010;
96:175-82.
366 LÆKNAblaðið 2010/96