Læknablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 20
FRÆÐIGREINAR
RANNSÓKN
Tafla 1. Árangur eftir meðgöngulengd (n= 239).'
Meðgöngulengd skv. leggangaómun <49 dagar 49-63 dagar P gildi mismunar
Alls 143 96
Ekki legtæming með sogi 132 (92,3%) 85 (88,5%)
Legtæming með sogi 11 (7,7%) 11 (11,5%) 0,32
‘Upplýsingar um meðgöngulengd vantaði hjá sjö konum.
þar sem meðgöngulengd var skráð samkvæmt
ómskoðun um leggöng (crown rump length).
Konumar fengu ítarlega fræðslu um gang
meðferðarinnar og hvers vænta mátti af verkun
lyfjanna og aukaverkunum. Síðan var hverri
konu gefin t. mífepristón 200mg (Mifegyn®) um
munn (dagur 1). Á þriðja degi fengu konurnar t.
mísóprostól 800pg (Cytotec®) um leggöng. Þetta
framkvæmdu konurnar sjálfar heima að morgni
og um tveimur klukkustundum síðar komu
konumar á kvenlækningadeild til aðhlynningar
og eftirlits í nokkrar klukkustundir. Fyrstu 67
konunum var fylgt eftir með þungunarprófi
og ómskoðun um leggöng á 18.-21. degi. Ef
þungunarpróf var jákvætt var mælt þ-hCG í
sermi og ef það var undir 2000 einingum og
innihald í legi <15mm samkvæmt ómskoðun
um leggöng (mælt sem mesta þykkt leghols í
langskurði (sagittal plane)) var eftirliti hætt.7 Að
öðrum kosti var eftirliti haldið áfram eða gerð
aðgerð, eftir því hvort innihald legsins var undir
eða yfir 15mm. Aðferð við eftirfylgni var breytt í
september 2006 og var næstu 179 konunum fylgt
eftir með þ-hCG mælingum í sermi á 1. og 8. degi
frá gjöf mífeprístóns. Ef þ-hCG hafði fallið um
meira en 50% milli mælinga var það metið sem
fullnægjandi meðferð.8 Hærri gildi gáfu tilefni til
ómskoðunar um leggöng og ef innihald legsins
var <15mm var eftirliti hætt en annars var gerð
aðgerð. Aðgerð var einnig gerð ef um óhóflega og
viðvarandi blæðingu (>2 vikur) var að ræða, óháð
niðurstöðum ómskoðunar eða mælinga á þ-hCG.9
varð veruleg aukning meðal þeirra sem kusu
lyfjameðferðina svo hlutfallið varð að meðaltali
21,4% þá 13 mánuði rannsóknarinnar sem eftir
voru.
Konurnar voru á aldrinum 16-45 ára (miðgildi
27 ár). Meðgöngulengd var á bilinu 35-63 dagar
(5-9 vikur, miðgildi 47 dagar) og 143 konur (58,1%)
voru með meðgöngulengd styttri en 49 daga (tafla
I).
Hjá 224 konum (91,1%) varð fullkomið fóstur-
lát án þess að gera þyrfti aðgerð. Hjá 22 konum
(8,9%) var gerð aðgerð. Af þeim sem fóru í
aðgerð var blæðing aðalábendingin í 18 tilfellum.
Fjórar konur fóru í aðgerð vegna verkja og/eða
innihalds í legi og hjá einni af þeim voru einkenni
um sýkingu (hiti og hækkun á CRP). Engin kona
var með áframhaldandi lífvænlega þungun eftir
lyfjameðferð.
Af þeim sem fóru í aðgerð þurfti ein kona
blóðgjöf og ein var lögð inn á gjörgæslu í tæpan
sólarhring vegna hás hita og gruns um sýklasótt
sem þó var ekki staðfest með ræktunum. Sýkla-
lyfjum var ávísað í tíu tilvikum (4,1%) vegna
gruns um sýkingu. Fjórar konur voru lagðar
inn vegna fylgikvilla án þess að gera þyrfti
legtæmingu (tvær höfðu þvagfærasýkingu og
tvær höfðu miklar blæðingar).
Blæðingar voru algengar fljótlega eftir gjöf
mífepristóns en engin kona lauk meðferð með
fullkomnu fósturláti innan tveggja sólarhringa frá
gjöf mífepristóns þannig að mísóprostól var gefið
í öllum tilfellum.
Af þeim sem fóru í aðgerð voru 11 með
meðgöngulengd undir 49 dögum eða 7,8% allra
með þessa meðgöngulengd (n=143). Af þeim sem
voru með meðgöngulengd 49-63 daga fóru einnig
11 í aðgerð eða 11,5% allra úr þeim hópi (n=96).
Ekki var marktækur munur á fjölda þeirra sem fór
í aðgerð undir 49 dögum og þeirra sem gengnar
voru 49-63 daga (p=0,32)(tafla I).
Tölfræði
Notað var kí-kvaðrat próf til að reikna hvort
marktækt fleiri hefðu farið í aðgerð með
meðgöngulengd 49-63 daga miðað við þær sem
gengnar voru <49 daga. Litið var á p<0,05 sem
marktækan mun. Að öðru leyti var notuð lýsandi
tölfræði við útreikninga á niðurstöðum.
Niðurstöður
Alls gengust 1417 konur undir fóstureyðingu
á Landspítala á rannsóknartímabilinu og voru
fóstureyðingar með lyfjum 17,4% þeirra (246).
Fyrstu fimm mánuðina fóru að meðaltali aðeins
3,9% í fóstureyðingu með lyfjum en eftir það
Umræða
Fóstureyðing með lyfjum eingöngu náðist í
rúmlega 91% tilvika og er það sambærilegt eða
aðeins lægra en það sem aðrar rannsóknir hafa
sýnt.1 Fullur árangur náðist í 92,3% tilvika þar
sem meðgöngulengd var innan við sjö vikur (49
dagar) en var í 88,5% við meðgöngulengd >7
vikur. Hér er um lítinn mun að ræða sem ekki var
tölfræðilega marktækur en aðrar rannsóknir hafa
sýnt betri árangur við styttri meðgöngu.1
Nokkrar rannsóknir hafa sýnt að ná má allt að
97-98% fóstureyðingu með lyfjum eingöngu og
er 91% heildarárangur því í lægri kantinum. Ein
skýring gæti verið sú að of fljótt hafi verið gripið til
332 LÆKNAblaðið 2010/96