Læknablaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 63
UMRÆÐA O G
F R É T T I R
F í F L
Hópmynd afFÍFLum
við gosstöðvamar á
Fimmvörðuhálsi,frá vinstri
Engilbert Sigurðsson,
Gunnlaugur Helgason, Jón
Trausti Sigurðarson, lnga
Lára Ingvarsdóttir, Harpa
Rúnarsdóttir, Hallgrímur
Guðjónsson, Magnús
Gottfreðsson og Tómas
Guðbjartsson. Ljósmynd
Finnur Sveinsson.
FÍFL vakna úr vetrardvala
Engilbert
Sigurðsson
Tómas
Guðbjartsson
Vordagskrá félagsins hófst með inngangsfyrirlestri
Tómasar Guðbjartssonar um háfjallaveiki á Hótel
Nordica. Breski gjörgæslulæknirinn Michael
Grocott flutti síðan erindi um háfjallarannsóknir
sínar á Everest. Um 650 manns sóttu dagskrána
og voru fjölmargir læknar og læknanemar í hópi
áheyrenda.
Gosið á Fimmvörðuhálsi í seinni hluta mars
gaf FÍFLum kærkomið tækifæri til að dusta rykið
af gönguskónum. Laugardaginn 27. mars var
gengið að gosstöðvunum frá Skógum mót köld-
um norðanblæstri. Rýnt var í spúandi eldgíga
og haldið meðfram nýrunnu hrauninu niður að
Hrunagili. Eins og stundum áður urðu meðlimir
í Jöklarannsóknarfélagi landlæknisembættisins
á vegi FIFLa, þar á meðal Steinn Jónsson og Sig-
urður Guðmundsson, en félagi þeirra, Hallgrímur
Guðjónsson, ákvað þennan dag að yngja upp og
slást í för með FIFLum.
FÍFL hefur ýmislegt á prjónunum á næstu
vikum. Aðra helgina í maí, 14.-16. maí, stendur
til að ganga á Þverártindsegg í Vatnajökli. Helgin
á eftir er til vara ef illa viðrar. Gos í Eyjafjallajökli
kann að setja strik í reikninginn. Gist verður tvær
nætur í bændagistingu á Hala í Suðursveit. Að
morgni laugardags verður ekið á jeppum torfarna
leið inn Kálfafellsdal og þaðan gengið á Eggina
(1554 m), framhjá skriðjöklinum Skrekk. Göngu-
leiðin er frekar brött en tekið skal fram að ekki er
um klifur að ræða. Gangan tekur um 10-11 klst.
Nauðsynlegt er að hafa meðferðis mannbrodda
og ísöxi. Aðalfararstjóri verður Þorvaldur Þórsson
hátindahöfðingi. Hámarksfjöldi þátttakenda er 20.
Nánari upplýsingar um þessa ferð og aðrar
ferðir á www.facebook.com (leita undir FIFL).
Einnig er hægt að fá upplýsingar hjá undir-
rituðum.
Að lokum má geta þess að í apríl birtist
vísindagrein eftir nokkra meðlimi FÍFL í High
Altitude Medicine and Biology. Það eru niðurstöður
úr rannsóknarleiðangri íslenskra og sænskra
lækna á tind næsthæsta fjalls Alpanna, Monte
Rosa (4559 m) í ágúst 2008. I leiðangrinum voru
meðal annars gerð taugasálfræðipróf og mælingar
á ensíminu S-100B í blóði. Þekkt er að ensímið
sé losað í blóð við súrefnisskort og sjúkdóma í
miðtaugakerfi, svo sem heilablóðfall. Ágrip úr
greininni er á Pubmed www.ncbi.nlm.nih.gov/
pubmed/20367486. Greinina má sjá í heild sinni á
vef bókasafns Landspítala.
Gengið á Þverártindsegg. Mynd: Valgerður Rúnarsdóttir.
LÆKNAblaðið 2010/96 375