Læknablaðið - 15.07.2010, Side 4
EFNISYFIRLIT
Frágangur
fræðilegra greina
Höfundar sendi tvær gerðir handrita
til ritstjórnar Læknablaðsins,
Hlíðasmára 8, 201 Kópavogi.
Annað án nafna höfunda, stofnana
og án þakka sé um þær að ræða.
Greininni fylgi yfirlýsing þess efnis
að allir höfundar séu samþykkir
lokaformi greinar og þeir afsali sér
þirtingarrétti til blaðsins.
Handriti skal skilað með tvö-
földu línubili á A-4 blöðum. Hver
hluti skal byrja á nýrri blaðsíðu í
eftirtalinni röð:
• Titilsíða: höfundar, stofnanir,
lykilorð á ensku og íslensku
• Ágrip og heiti greinar á
ensku
• Ágrip á íslensku
• Meginmál
• Þakkir
• Heimildir
Töflur og myndir skulu vera bæði
á ensku og íslensku.
Tölvuunnar myndir og gröf komi
á rafrænu formi ásamt útprenti.
Tölvugögn (data) að baki gröfum
fylgi með, ekki er hægt að nýta
myndir úr PowerPoint eða af
netinu.
Eftir lokafrágang berist allar greinar
á tölvutæku formi með útprenti.
Sjá upplýsingar um frágang
fræðilegra greina:
www.laeknabladid.is/fragangur-
greina
Umræðuhluti
Skilafrestur efnis í næsta blað
er 20. hvers mánaðar nema
annað sé tekið fram.
RITSTJÓRNARGREINAR
Steinn Jónsson
íslensk heilbrigðisþjónusta
á erfiðum tímum
459
Læknar munu taka þátt í aðhaldsaðgerðum og ekki víkja sér
undan kröfunni um hagraeðingu og lækkun ríkisútgjalda ef
sanngirni og hagkvæmnissjónarmið ráða för.
Þórarinn Gíslason
Eldgos og heilsa
Það er mikilvægt að við hefjumst strax handa við að afla
nauðsynlegra gagna svo unnt verði að draga ályktanir um
heilsufarsleg áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli.
461
FRÆÐIGREINAR
Sverrir Gauti Ríkarðsson, Yrsa B. Löve, Davíð Gíslason, Björn Rúnar Lúðvíksson
Árangur afnæmismeðferðar á íslandi 1977-2006
Tíðni ofnæmis hefur vaxið ört síðustu þrjá áratugi og er talið að 25-30% íbúa iðnrikjanna sýni
einkenni ofnæmis. Meðhöndlun byggist fyrst og fremst á fyrirbyggjandi meðferð þar sem brýnt
er fyrir ofnæmissjúkiingi að forðast ofnæmisvald, einkennamiðaðri meðferð og afnæmingu.
Afnæmismeðferð hefur verið beitt á ofnæmissjúklinga í næstum heila öld og er hún talin vera
eina meðferðin sem getur læknað ofnæmi varanlega
Hrund Þórhallsdóttir, Kristján Skúli Ásgeirsson, Ágústa Ólafsdóttir, Tómas Guðbjartsson 469
Kalkvakaóhóf vegna kalkkirtilsæxlis í brjóstholi -
sjúkratilfelli með umfjöllun
Þetta tilfelli sýnir að einkenni frumkomins kalkvakaóhófs geta verið margvísleg og
sjúkdómsmyndin óljós. Kalkkirtilsæxli geta fundist utan hálssvæðis, meðal annars í brjóstholi
eins og hér er lýst.
Jón Þorkell Einarsson, Ragnar Danielsen, Ólafur Skúli Indriðason, Tómas Guðbjartsson
Trefjagollurshús - sjúkratilfelli með umræðu
Lýst er sjaldgæfu fyrirbæri þar sem gollurshúsið þrengir að hjartanu og hindrar eðlilega fyllingu
þess. Afleiðingin er hjartaþilun með þróttleysi, mæði og bjúg. Trefjagollurshús getur komið í
kjölfar sýkinga, geislameðferðar, bandvefssjúkdóma og asbestmengunar, og greiningin oft
flókin og tafsöm. Yfirleitt er hluti gollurshússins skorinn burt.
Barbara Holzknecht, Hlíf Steingrímsdóttir, Bjarni A. Agnarsson 481
Tilfelli mánaðarins
456 LÆKNAblaðifl 2010/96