Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.07.2010, Side 38

Læknablaðið - 15.07.2010, Side 38
UMRÆÐA 0 G FRÉTTIR FYRIR SYKURSJÚKA Nýtt fræðsluefni fyrir sykursjúka „Það hefur sýnt sig í rannsóknum að hópfræðsla skilar betri árangri en einstaklingsbundin fræðsla," segir Arna Guðmundsdóttir sérfræðingur í innkirtlasjúkdómum. Arna stofnaði fyrirtækið Insula í fyrra sem veitir þjónustu og fræðslu við fólk með sykursýki og í vetur tók hún upp nýtt fræðsluefni sem hefur skilað góðum árangri erlendis. skilar betri árangri, en hlustun, sjón og þátttaka skilar bestum árangri." Arna segist hafa séð kennsluefnið fyrir sykursjúka á ráðstefnu í fyrra og í desember fór hún sérstaka ferð til Skotlands til læra að halda fræðslunámskeið sem byggir á efninu. Fyrsta námskeiðið hélt hún í febrúar og árangurinn fór fram úr björtustu vonum. Arna segir að hún hafi velt því talsvert fyrir hvemig hún gæti eflt fræðsluna til skjólstæðinga sinna og leitað að aðferð sem sameinaði bæði árangur og hagkvæmni. „Einstaklingsbundin fræðsla tekur langan tíma og í venjulegu 15 mínútna viðtali gefst varla tími til annars en nauðsynlegustu rannsókna svo fræðslan um sjúkdóminn, nauðsynlegar breytingar á lífsstíl og sjálfseftirlit verður gjarnan útundan. Sykursýki er þess háttar sjúkdómur að sjúklingar geta frætt hver annan, miðlað af reynslu sinni og sérstaklega á þetta við um nýgreinda sjúklinga sem þurfa á miklum stuðningi og fræðslu að halda. Það hefur líka sýnt sig að með því að beita skipulögðum aðferðum í hópfræðslu næst mun betri árangur en ef læknirinn eða hjúkrunarfræðingurinn heldur fyrirlestur yfir skjólstæðingnum um hvað , hann eigi og verði að gera. Kennslufræðilegar navar rannsóknir hafa sýnt fram á að hlustun eingöngu Sigurjónsson skilar minnstum árangri í kennslu, hlustun og sjón Hér sést hvernig einstakir þættir sykursýkinnar eru lagðir upp sem umræðuefni. Umræðuhringur „Kennsluefnið er þróað af Alþjóðasamtökum sykursjúkra (IDF) í nánu samráði við lækna og heilbrigðisstarfsfólk. Efnið er ætlað þeim sem eru með sykursýki af tegund 2 en kennsluefni fyrir sykursýki 1 er í vinnslu." Efnið er byggt upp á vissan hátt eins og borðspil þannig að þátttakendur sitja umhverfis stórt myndskreytt kort, og segja má að „leikurinn" hefjist á byrjunarreit og síðan er farinn eins konar umræðuhringur þar sem staldrað er við ákveðna fræðslu- og umræðupunkta á kortinu. Auk þess eru dregin spjöld þar sem þátttakendum er gert að tjá sig um tiltekin atriði. Leikbeinandinn er læknir eða hjúkrunarfræðingur sem hefur fengið þjálfun í að stjórna námskeiðinu og þess er gætt að allir þátttakendur séu virkir og ekki sé staldrað of lengi við eitt umræðuefni á kostnað annars og allt sem máli skiptir komist á framfæri. Skýrt er tekið fram að leiðbeinandinn megi ekki tala meira en sem nemur 20% af tímanum því eins og áður sagði er þetta ekki fyrirlestur heldur jafningjafræðsla. Samstarfsmaður Örnu við námskeiðahaldið er Svanhildur Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðingur sem hefur starfað um árabil á barna- og lyflæknis- deildum Landspítala. „Við köllum þetta samtalskort og þau eru fjögur talsins og hvert þeirra tekur til ákveðinna þátta í þróun sykursýki 2. Kortin eru á ensku en þau eru svo myndræn að við höfum ekki séð ástæðu til að þýða textann, heldur gerum það einfaldlega jafnóðum ef og þegar þess þarf. Hvert kort er hugsað sem tveggja klukkustunda umræðunámskeið." Fyrsta kortið er fyrir nýgreinda sjúklinga þar sem lögð er áhersla á grunnfræðslu um sjúkdóminn, hvað er sykursýki, hvað er insúlín og hvernig þróast sjúkdómurinn. Annað kortið snýst um einkenni sykursýki, fylgikvilla, eftirlit, 490 LÆKNAblaðið 2010/96

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.