Læknablaðið - 15.07.2010, Síða 48
UMRÆÐA O G FRÉTTiR____________
Ifrá SJÚKRATRYGGINGUM ÍSLANDS
Breytingar á greiðsluþátttöku lyfja - hvað hefur áunnist?
Á undanfömum mánuðum hafa verið gerðar breytingar á
greiðsluþátttöku nokkurra lyfjaflokka. Hér er fjallað um áhrif
þessara breytinga á lyfjakostnað sjúkratrygginga. Þó verður að hafa
í huga að ýmsar aðrar breytingar hafa verið gerðar sem hafa áhrif
á lyfjakostnað, svo sem breyting á smásöluálagningu lyfja, hækkun
virðisaukaskatts, almenn hækkun á hlut sjúklings og verðlækkanir
á mörgum lyfja vegna verðendurskoðunar Lyfjagreiðslunefndar.
Einnig hefur gengi krónunnar mikil áhrif því verð meirihluta lyfja
er skráð í erlendri mynt sem uppreiknast mánaðarlega með útgáfu
nýrrar lyfjaverðskrár.
Breytingar sem gerðar hafa verið á greiðsluþátttöku lyfjaflokka
fela í sér að eingöngu hagkvæmustu lyf í hverjum lyfjaflokki
eru með greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Ef þau lyf reynast
ófullnægjandi geta læknar sótt um lyfjaskírteini fyrir dýrari lyfin.
Áhrifin af breytingunum hafa verið tvíþætt, notkun hagkvæmari
lyfja hefur aukist og verð á mörgum lyfjum hefur lækkað, allt að
60-70% verðlækkun á sumum lyfjum.
Áhrif breytinganna á lyfjakostnað sjúkratrygginga eru útskýrð
hér að neðan fyrir hvern lyfjaflokk. Upplýsingarnar eru fengnar
úr tölfræðigagnagrunni Sjúkratrygginga íslands (SÍ) og byggja
á afgreiddum lyfseðlum sem apótek senda SI með rafrænum
hætti. I tölfræðigrunninum eru eingöngu upplýsingar um
notkun lyfseðilsskyldra lyfja afgreiddra úr apótekum, en hvorki
upplýsingar um lausasölulyf sem seld eru án lyfseðils né lyf sem
notuð eru á sjúkrahúsum eða öðrum stofnunum.
Prótónpumpuhemlar og blóðfitulækkandi lyf,
ATC flokkar A02BC og C10
Greiðsluþátttakan breyttist 1. mars 2009.
Lyfjakostnaður sjúkratrygginga hefur lækkað um 460 millj.kr. vegna
prótónpumpuhemla og um 360 millj.kr. vegna blóðfitulækkandi
lyfja á einu ári frá mars 2009-febrúar 2010.
Lyf með verkun á renínangíótensín-kerfið, ATC flokkur C09
Greiðsluþátttakan breyttist 1. október 2009
Lyfjakostnaður sjúkratrygginga hefur lækkað um 220 millj.kr. frá
október 2009 til apríl 2010 (7 mánuðir) sem svarar til 380 millj.kr. á
ársgrundvelli.
Lyf sem hafa áhrif á beinbyggingu og beinmyndun,
ATC flokkur M05B
Greiðsluþátttakan breyttist 1. nóvember 2009
Lyfjakostnaður sjúkratrygginga hefur lækkað um 40 millj.kr. frá
nóvember 2009 til apríl 2010 (6 mánuðir) sem svarar til 80 millj.kr. á
ársgrundvelli. Við tilkomu samheitalyfja á markaðinn í apríl og júní
2009 kom fram lækkun fyrir gildistöku breytinganna.
-Lyf gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi,
ATC flokkar R03A og R03B
Greiðsluþátttakan breyttist 1. janúar 2010
I ljósi þess hve stutt reynsla er komin á breytingarnar er of snemmt
að draga ályktanir um hver ávinningurinn verður. I október-
desember 2009, rétt fyrir breytingarnar, var óvenju mikið afgreitt af
þessum lyfjum og því ekki raunhæft að meta ávinninginn fyrr en
eftir um það bil sex mánuði frá gildistöku breytinganna.
Lyfjakostnaður hefur lækkað samtals um 820 millj.kr. vegna
prótónpumpuhemla og blóðfitulækkandi lyfja á einu ári, og
samtals um 260 millj.kr. vegna blóðþrýstingslyfja og beinþéttnilyfja
frá október 2009 til apríl 2010. Um er að ræða raunsparnað og ef
leiðrétt væri fyrir gengi væri sparnaður mun meiri. Áætlað er að
lyfjakostnaður mirni lækka um 200-300 millj.kr. á ári vegna breytinga
á greiðsluþátttöku lyfja gegn teppusjúkdómum í öndunarvegi sem
tóku gildi 1. janúar 2010 og sömu fjárhæðir, það er 200-300 millj.kr.
á ári, vegna breytinga á greiðsluþátttöku þunglyndislyfja sem tóku
gildi 1. júní sl.
Guðrún I. Gylfadóttir
deildarstjóri
Halldór G. Haraldsson
sérfræðingur
Sjúkratryggingum Islands
500 LÆKNAblaðið 2010/96