Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 77

Læknablaðið - 15.11.2011, Síða 77
Mæling á blóðþynningu tengdri dabigatrani getur reynst hjálpleg til að koma i veg fyrir of mikla útsetningu fyrir dabigatrani, þegar viðbótar áhættuþættir eru til staðar. Próf sem kannar virkjaðan tromboplastíntíma (aPTT) er víða framkvæmt og það gefur til kynna áætlaða blóðþynningu af völdum dabigatrans. Hjá sjúklingum sem eru með blæðingu eða eiga á hættu að fá blæðingu getur aPTT prófið verið gagnlegt til að aðstoða við að ákvarða hvort blóðþynningin sé of mikil. Samt sem áður hefur aPTT prófið takmarkað næmi og það hentar ekki til nákvæmrar mælingar á blóðþynningaráhrifum, sérstaklega ef plasmaþéttni dabigatrans er há. Gæta skal varúðar við túlkun hárra aPTT gilda. Ef þörf krefur ætti að framkvæma næmari próf eins og kvarðaðan þynntan trombíntíma (dTT). Sjúklingar sem fá bráða nýrnabilun verða að hætta meðferð með Pradaxa. Takmörkuð gögn eru fyrirliggjandi um sjúklinga < 50 kg. Eigi alvarlegar blæðingar sér stað skal hætta meðferð og finna uppruna blæðingarinnar. Efni sem geta aukið á blæðingarhættu má ekki gefa samhliða Pradaxa eða gæta varúðar ef þau eru gefin samhliða. Milliverkun við P-glýkóprótein örva: Búast má við að samhliða notkun með sterkum P-glýkóprótein örvum (eins og rifampisíni, jóhannesarjurt, karbamazepíni eða fenytóíni) minnki þéttni dabigatrans í plasma og ber að varast notkun þeirra. Skurðaðgerðir og inngríp: Sjúklingar á meðferð með dabigatran etexílati sem gangast undir skurðaðgerðir eða aðrar aðgerðir eru í aukinni hættu á blæðingu. Því geta inngrip með skurðaðgerðum kallað á að notkun dabigatran etexílats sé hætt tímabundið. Gæta skal varúðar þegar meðferð er hætt tímabundið vegna inngripa og hafa verður eftirlit með blóðþynningu. Útskilnaður dabigatrans hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi getur tekið lengri tíma. Þetta skal íhuga fyrir hvaða inngrip sem er. í slíkum tilvikum getur storkupróf hjálpað til við að ákveða hvort stöðvun blæðingar sé enn ófullkomin. Reglur varðandi stöðvun meðferðar fyrir inngrip eða skurðaðgerðir eru: Nýrnastarfsemi (CrCL) > 80ml/mín, áætlaður helmingunartími ~ 13 klst.: dabigatran meðferð stöðvuð fyrir valfrjálsar skurðaðgerðir 2 sólarhringum áður ef mikil blæðingarhætta eða meiriháttar skurðaðgerð en 24 klst. áður ef venjuleg blæðingarhætta. Nýrnastarfsemi (CrCL) > 50-< 80ml/mín, áætlaður helmingunartimi ~ 15 klst.-. dabigatran meðferð stöðvuð fyrir valfrjálsar skurðaðgerðir 2-3 sólarhringum áður ef mikil blæðingarhætta eða meiri háttar skurðaðgerð en 1-2 sólarhringum áður ef venjuleg blæðingarhætta. Nýrnastarfsemi (CrCL) > 30-< 50ml/mín , áætiaður heimingunartími ~ 18 klst.: dabigatran meðferð stöðvuð fyrir valfrjálsar skurðaðgerðir 4 sólarhringum áður ef mikil blæðingarhætta eða meiriháttar skurðaðgerð en 2-3 sólarhringum áður (> 48 klst.) ef venjuleg blæðingarhætta. Ef þörf er á bráðu inngripi á að stöðva meðferð með dabigatran etexílati tímabundið. Skurðaðgerð/inngripi á að fresta ef mögulegt er þar til a.m.k. 12 klst. eru frá síðasta skammti. Ef ekki er hægt að fresta skurðaaðgerð getur blæðingarhætta aukist. Blæðingarhættu ætti að vega á móti hversu brátt inngripið þarf að vera. Mænudevfina/utanbastsdevfina/mænustunaa: Aðgerðir eins og mænu- eða utanbastsdeyfing geta krafist að stöðvunarferli blæðingar virki fullkomlega. Hættan á myndun margúls í utanbasti eða í mænu getur verið aukin vegna áverka eða endurtekinna ástungna og vegna langvarandi notkunar utanbastsleggjar. Eftir að leggur er fjarlægður skulu líða a.m.k. 2 klst. áður en fyrsti skammturinn af dabigatran etexílat er gefinn. Hafa þarf eftirlit með stuttu millibili með þessum sjúklingum með tilliti til einkenna frá taugakerfi og einkenna um margúl í utanbasti eða í mænu. Siúklinaar eftir skurðaðaerð með aukna biæðinaarhættu: Sjúklinga í blæðingarhættu eða sjúklinga í hættu á of mikilli útsetningu, sérstaklega sjúklinga með miðlungsmikla skerðingu á nýrnastarfsemi (CrCL 30- 50 ml/mín), á að meðhöndla með varúð. Meðferð má hefja aftur þegar fullkominni stöðvun blæðingar er náð. Siúklinaar í mikilli lifshættu við aðaerð oa með innri áhættubætti á blóðseaamvndun: Takmörkuð gögn eru til um virkni og öryggi dabigatrans hjá þessum sjúklingum og skal því meðhöndla þá með varúð. Aðaerð við miaðmarbrot: Engin gögn liggja fyrir um notkun Pradaxa hjá sjúklingum sem fara í aðgerð vegna mjaðmarbrots og er því ekki hægt að mæla með meðferð. Hiartadreo: í III. stigs rannsókninni RE-LY var heildartíðni hjartadreps 0,82/ár fyrir dabigatran etexílat 110 mg tvisvar á sólarhring, 0,81/ár fyrir dabigatran etexílat 150 mg tvisvar á sólarhring og 0,64/ár fyrir warfarin, með aukinni hlutfallslegri áhættu fyrir dabigatran um 29% og 27% miðað við warfarin. Óháð meðferð, sást mesta raunáhættan á hjartadrepi í eftirfarandi undirhópum, með svipaða hlutfallslega áhættu: sjúklingar sem áður höfðu fengið hjartadrep, sjúklingar > 65 ára með annað hvort sykursýki eða kransæðasjúkdóm, sjúklingar með útfallsbrot vinstri slegils < 40% og sjúklingar með miðlungsmikla skerðingu á nýrnastarfsemi. Ennfremur sást aukin hætta á hjatadrepi hjá sjúklingum sem tóku samhliða asetýlsalicylsýru ásamt klópídógreli eða klópídógrel eitt og sér. Litarefni: Pradaxa hart hylki inniheldur litarefnið sunset yellow (E110) sem getur valdið ofnæmisviðbrögðum. Milliverkanir við önnur lyf og aðrar milliverkanir: Seaavarnarivf oa Ivf sem hindra samloðun btóðftaana: Meðferð með eftirfarandi lyfjum samtímis meðferð með Pradaxa hefur ekki verið rannsökuð og getur aukið blæðingarhættu: óþáttað heparín (UFH), heparín með lágan mólþunga (LMWH) og heparínafleiður (fondaparinux, desirúdin), segaleysandi lyf, GPIIb/llla viðtaka hemlar, tíklópídín, prasugrel, dextran, súlfínpýrazón, rivaroxaban og vítamín-K hemlar. Gefa má óþáttað heparín í skömmtum sem þarf til að halda bláæðaleggjum eða slagæðaleggjum opnum hjá sjúklingnum. Klópídógrel: í I. stigs rannsókn á ungum heilbrigðum karlkyns sjálfboðaliðum leiddi samhliða gjöf dabigatran etexílats og klópídógrels ekki til frekari lengingar á blæðingartíma háræða borið saman við klópídógrel einlyfjameðferð. Að auki reyndust AUCt við jafnvægi og Cmax við jafnvægi fyrir dabigatran og storkuáhrif fyrir tilstilli dabigatrans eða hömlun á samloðun blóðflagna fyrir tilstilli klópídógrels í meginatriðum vera óbreytt þegar samsett meðferð var borin saman við einlyfjameðferð hvors lyfs fyrir sig. Með hleðsluskammt 300 mg eða 600 mg af klópídógreli jókst AUCt við jafnvægi og Cmax við jafnvægi fyrir dabigatran um u.þ.b. 30-40%. Asetýlsalicylsýra: Áhrif samhliða notkunar dabigatran etexílats og asetýlsalicylsýru á blæðingarhættu var rannsökuð hjá sjúklingum með gáttatif í II. stigs rannsókn þar sem notuð var slembuð samhliða gjöf asetýlsalicylsýru. Byggt á tölfræðilegri aðhvarfsgreiningu getur samhliða gjöf asetýlsalicylsýru og 150 mg dabigatran etexílats tvisvar á sólarhring valdið aukinni blæðingarhættu frá 12% í 18% með 81 mg asetýlsalicylsýru og í 25% með 325 mg asetýlsalicylsýru. Af upplýsingum sem fengust úr III. stigs rannsókninni RE-LY sást að samhliða gjöf asetýlsalicylsýru eða klópídógrels með dabigatran etexílati, í skömmtunum 110 mg eða 150 mg tvisvar á sólarhring, getur aukið hættuna á meiriháttar blæðingu. Aukin tíðni blæðinga við samhliða gjöf asetýlsalicylsýru eða klópídógrels sást einnig með warfarini. Bólgueyðandi gigtarlyf (NSAID): Bólgueyðandi gigtarlyf gefin í stuttan tíma til verkjastillingar í tengslum við aðgerðir hafa ekki reynst tengjast aukinni blæðingarhættu þegar þau eru gefin samhliða dabigatran etexílati. Við langtíma notkun í RE-LY rannsókninni jók notkun bólgueyðandi gigtarlyfja blæðingarhættu um u.þ.b. 50% með bæði dabigatrani og warfarini. Því er ráðlagt, vegna blæðingarhættu, sérstaklega með bólgueyðandi gigtarlyf með helmingunartíma brotthvarfs > 12 klst. að fylgjast náið með einkennum um blæðingu. Heparín með lágan mólþunga (LMWH): Samhliða notkun heparíns með lágan mólþunga, eins og enoxaparin, með dabigatran etexílati hefur ekki verið sérstaklega rannsökuð. Eftir að skipt var úr 3 daga meðferð með 40 mg enoxaparin einu sinni á sólarhring undir húð, var útsetning fyrir dabigatrani lítilsháttar minni 24 klst. eftir síðasta skammt af enoxaparini en eftir að dabigatran etexílat var gefið eitt og sér (stakur 220 mg skammtur). Hærri and-FXa/FIIA virkni sást eftir gjöf dabigatran etexílats með enoxaparin formeðferð miðaða við eftir meðferð með dabigatran etexílati eingöngu. Milliverkanir tenadar umbrotaleiðum dabiaatran etexilats oa dabiaatrans: Dabigatran etexílat og dabigatran umbrotna ekki fyrir tilstilli cýtókróm P450 kerfisins og höfðu engin áhrif in vitro á cýtókróm P450 ensím úr mönnum. Því er ekki búist við milliverkunum milli skyldra lyfja og dabigatrans. Milliverkanir milli flutninaskerfa: P-glýkóprótein hemlar: Dabigatran etexilat er hvarfefni útflæðisdælunnar P-glýkópróteins. Búast má við að samhliða gjöf sterkra P-glýkópróteinhemla leiði til aukinnar þéttni dabigatrans í plasma. Hafi ekki verið mælt fyrir um annað er þörf á nákvæmu klínísku eftirliti (með einkennum blæðinga eða blóðleysis) þegar dabigatran er gefið samhliða sterkum P-glýkóprótein hemli. Storkupróf getur hjálpað til við að finna sjúklinga í aukinni blæðingarhættu vegna of mikillar útsetningar fyrir dabigatrani. Notkun ketókónazóls, cyklosporins, itrakónazóls og takrolímus er ekki ráðlögð. Gæta skal varúðar við notkun annarra sterkra P-glýkóprótein hemla. Ketókónazól: Ketókónazól hækkaði heildar dabigatran AUC0— gildi um 138% og Cmax gildi um 135%, eftir stakan 400 mg skammt og 153% og 149%, í sömu röð, eftir marga skammta af 400 mg ketókónazóli einu sinni á sólarhring. Ketókónazól hafði ekki áhrif á tíma að hámarksþéttni, helmingunartíma útskilnaðar og meðal dvalartíma í blóði. Samhliða notkun með ketókónazóli til inntöku er ekki ráðlögð. Amíódarón: Þegar Pradaxa var gefið samhliða stökum 600 mg skammti til inntöku af amíódaróni voru umfang og hraði frásogs amíódaróns og meginumbrotsefnis þess, DEA, nánast óbreytt. AUC og Cmax dabigatran etexílats jukust um u.þ.b. 60% og 50% hvort fyrir sig. Minnka skal skammt í 150 mg, tekinn sem 2 hylki af 75 mg af Pradaxa á sólarhring, hjá sjúklingum sem fá forvörn gegn VTE eftir valfrjáls mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti ef þeir eru á samhliða meðferð með dabigatran etexílati og amíódaróni. Mælt er með nákvæmu klínísku eftirliti þegar dabigatran etexílat er gefið samhliða amíódaróni og sérstaklega með blæðingartilvikum, einkum hjá sjúklingum með væga til miðlungsmikla skerðingu á nýrnastarfsemi. Kínidín: Kínidín var gefið í skammtinum 200 mg á 2 klst. fresti að heildarskammti 1000 mg. Dabigatran etexílat var gefið tvisvar á dag í 3 daga samfellt, á þriðja deginum annað hvort með eða án kínidíns. Dabigatran AUCt, við jafnvægi og Cma>, við jafnvægi hækkuðu að meðaltali um 53% og 56%, í sömu röð, við samhliða notkun kínidíns. Minnka skal skammt f 150 mg, tekinn sem 2 hylki af 75 mg af Pradaxa á sólarhring, hjá sjúklingum sem fá forvörn gegn VTE eftir valfrjáls mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti ef þeir eru á samhliða meðferð með dabigatran etexílati og kínidíni. Mælt er með nákvæmu klínísku eftirliti þegar dabigatran etexílat er gefið samhliða kínidíni og sérstaklega með blæðingartilvikum, einkum hjá sjúklingum með væga til miðlungsmikla skerðingu á nýrnastarfsemi. Verapamíl: Þegar dabigatran etexílat (150 mg) var gefið með verapamíli til inntöku hækkaði Cmax og AUC fyrir dabigatran en umfang breytingarinnar er mismunandi eftir tímasetningu lyfjagjafar og lyfjaformi verapamíls. Mesta hækkun dabigatran útsetningar sást við fyrsta skammt af verapamíl lyfjaformi sem losnar strax sem var gefið einni klst. fyrir inntöku dabigatran etexílats. Áhrifin voru stigminnkandi við gjöf lyfjaforms með lengdan losunarhraða eða við gjöf margra skammta af verapamíli. Því þarf nákvæmt klínískt eftirlit (með einkennum blæðinga eða blóðleysis) þegar dabigatran er gefið samhliða verapamíli. Hjá sjúklingum með eðiilega nýrnastarfsemi eftir mjaðmarliðskipti eða hnéliðskipti, sem fá dabigatran etexílat og verapamíl samhliða ætti að minnka Pradaxa skammt í 150 mg á sólarhring, tekinn sem 2 hylki af 75 mg. Hjá sjúklingum með miðlungsmikla skerðingu á nýrnastarfsemi sem eru á samhliða meðferð LÆKNAblaöið 2011/97 657
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.