Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.12.2012, Side 37

Læknablaðið - 15.12.2012, Side 37
UMFJOLLUN O G GREINAR „Sérhæfð úrræðifyrir þennan hóp eru góðfjárfesting ogforvörnfyrir samfélagið," segir Anna María jónsdóttir geðlæknir. og kannabisnotkun hefur fylgni við félags- lega erfiðleika. Kannabis fer yfir fylgju og getur valdið fósturskaða, klofnum hrygg, vatnshöfði og göllum í innra eyra, auk þess að geta valdið öndunarbælingu hjá barninu eftir fæðingu. Misnotkun verkja- lyfja sem innihalda kódein getur valdið fósturgöllum og NAS (Neonatal Abstinence Syndrome). Kókaín veldur æðasamdrætti í fylgju og minnkar flutning súrefnis og næringarefna til fóstursins og getur valdið heilablæðingu og/eða heilaskaða, vaxtar- seinkun, fylgjulosi og fósturláti. Óróleiki, krampar og aukin hætta á ungbarnadauða eru einnig fylgifiskar kókaínneyslu. Amfetamínneysla hefur svipuð áhrif á fóstur og kókaín og jafnvel verri, þar sem helmingunartími þess er lengri." Oft er um blandaða neyslu að ræða og þá er oft erfitt að meta afleiðingarnar, en almennt má segja að notkun fíkniefna auki hættu á léttbura- og fyrirburafæðingu. Alvarleg fráhvörf eftir fæðingu Jafnvel þó barnið sleppi við beinan líkamlegan skaða í móðurkviði er það ekki sloppið úr greipum neyslunnar við fæðingu. „Barnið getur upplifað fráhvarf ef móð- irin hefur neytt fíkniefna síðustu þrjár vikurnar fyrir fæðingu. Barnið er órólegt með aukinn vöðvatónus og sum börn geta fengið krampa. Börnin geta grátið í lengri tíma og erfitt er að róa þau. Svefnmynstur truflast, þau sofa lítið og eiga erfitt með að sofna og sofa grunnt. Næringarerfiðleikar með bakflæði og uppköstum eru algeng. Aukin tíðni lungnabólgu er eitt af einkennunum, einnig niðurgangur og börnin hnerra, geispa og svitna mikið. Blóðþrýstingur og líkamshiti sveiflast mikið og litabreytingar (marmorering) er stundum sjáanleg á húð barnsins. Fráhvarf hjá ungbarni getur verið lífshættulegt vegna ofþornunar og krampahættu og það getur þarfnast meðhöndlunar með lyfjum á vökudeild. Fráhvarfið er mismunandi eftir því hvaða efni móðirin notaði á meðgöngu og í hvaða skömmtum, en því fleiri efni sem móðirin hefur notað, því erfiðara getur fráhvarf barnsins verið." Anna María bætir því við þessa upp- talningu að skaðleg áhrif nikótíns skuli ekki síður vanmeta í þessu samhengi. „Nikótín inniheldur 1200 mismunandi efni sem mörg eru krabbameinsvaldandi, auk þess að auka hættu á fósturláti og sérstak- lega fósturdauða eftir 28. viku. Reykingar á meðgöngu auka líkur á fyrirburafæðingu, fylgjulosi og fyrirstæðri fylgju. Nikótínfrá- hvarf ungbarna veldur óróleika, svefnleysi, aukinni hjartsláttartíðni, hjartastækkun, óreglulegum andardrætti og niðurgangi. Það eykur einnig líkur á ungbarnadauða." Anna María segir að reynsla danskra heilbrigðisyfirvalda af því að fylgjast vel með þunguðum mæðrum og börnum þeirra hafi skilað mjög góðum árangri og því sé full ástæða til að taka mið af því við skipulag slíkrar meðferðar hérlendis. „Eft- irfylgni Familieambulatoriet í Hvidovre í Kaupmannahöfn hefur sýnt hversu góðum árangri er hægt að ná með skipulögðu starfi með foreldrum í fíkniefnaneyslu. Þar er markhópurinn skilgreindur sem börn 0-6 ára sem eiga foreldra í neyslu, mæður í neyslu eða með sögu um neyslu síðastliðin tvö ár, mæður sem eiga maka í neyslu og loks feður í neyslu. Viðkvæmustu börnin fá eftirfylgni í 6 ár en árangurinn er ótrúlega góður og sýnir sig í því að fyrirburafæð- ingum hefur fækkað úr 20% í 7%, léttbur- um úr 31% í 7%, súrefnisskorti í fæðingu úr 20% í 5%, börnum með fráhvarf sem þarfnast meðhöndlunar úr 85% í 60% og tekist hefur að minnka þroskatruflanir hjá börnunum úr yfir 90% í 11%, oftast vegna alkóhólskaða." Síðustu ár hefur verið aukið meðgöngu- eftirlit með mæðrum sem nota vímuefni í áhættumæðravernd á kvennadeild Land- spítala. Þessi þjónusta hefur örugglega dregið úr neyslu mæðra á meðgöngu á síðustu árum og þar með alvarlegum af- leiðingum neyslunnar fyrir barnið, en það er þó enn þörf á að styrkja þessa þjónustu og hlutverk FMB-teymisins er að vinna að bættri andlegri heilsu kvennanna á með- göngu, styrkja tengslamyndun við ófædda barnið og einnig að styrkja þjónustu við feðurna. „Það er einnig aðkallandi að byggja upp góða eftirfylgd við þessar fjöl- skyldur eftir fæðingu barnsins til að draga úr líkum á að foreldrið fari aftur í neyslu og einnig til að fylgjast með heilsu og þroska barnsins og fyrirbyggja vanrækslu og ofbeldi sem oft eru fylgifiskar neyslu áfengis- og annarra vímuefna." LÆKNAblaðið 2012/98 665

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.