Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.12.2012, Síða 39

Læknablaðið - 15.12.2012, Síða 39
UMFJOLLUN O G GREINAR „Til þess að skilja á milli læknis- fræðilegra orsaka og lögfræðilegra þarf maður eiginlega að Itafa þekk- ingu á hvoru Iveggja," segir Ragnar jónsson bæklunarskurðlæknir og lögfræðingur. nægilega vel í einhverjum tilfellum vera sú að þeir hafa ekki kynnt sér lög og reglur um sjúklingatrygginguna nægilega vel. Það væri heppilegt að fjalla um þetta nánar með málþingi á Læknadögum." Hann bætir því við að læknar þurfi að kynna sér sjúklingatrygginguna og lög og reglur um hana þar sem skortur á upplýsingum til sjúklinga geti skapað lækninum aukna skaðabótaskyldu. „Það þarf að kynna þetta betur fyrir læknum og öðrum heilbrigðisstéttum sem eru með einkarekstur á heilbrigðissviði." Af skurðstofunni i möppurnar Ragnar lýsir daglegum störfum sínum þannig að þau séu í meginatriðum tví- þætt. „Ég er með stofu í Orkuhúsinu og tek þar á móti sjúklingum. Ég er hættur að skera en það er af öðrum ástæðum. Síðan sinni ég skýrslugerð og slysamati fyrir ýmsa aðila. Ég hef einnig verið ráðgefandi læknir fyrir Vátryggingafélag íslands síðan 1993 og hef sinnt ráðgjöf og mati fyrir Embætti landlæknis, ríkislögmann og ýmsa lögmenn er leita til mín vegna einstakra mála. Eðli málsins samkvæmt fer eftirspurnin eftir minni þjónustu eftir því hver situr við borðið á hverjum stað hverju sinni." Þegar mál kemur inn á borð til Ragnars þar sem meint óhapp eða mistök hafa átt sér stað fer ákveðið ferli í gang. „Yfirleitt er um óhapp að ræða en ekki mistök. Það er mjög sjaldan sem mistök hafa beinlínis átt sér stað, heldur er oftar keðja tilviljana sem veldur því að eitthvað fer úrskeiðis og þá er um óhapp að ræða sem enginn á beinlínis sök á en sjúkling- urinn getur engu að síður verið tryggður fyrir slíku. Matið er byggt á þeim gögnum sem liggja fyrir, svo sem sjúkraskrá við- komandi sjúklings en síðan er farið í að meta afleiðingarnar fyrir sjúklinginn. Hversu mikill miski eða örorka er afleið- ing atburðarins og þá er mikilvægt að greina á milli hvað eru afleiðingar áverk- ans/sjúkdómsins eða slyssins sjálfs og síðan þeirra meintu mistaka eða óhappa sem urðu til dæmis við aðgerð vegna þess. Þetta er oft ansi flókið og álitaefnin mörg. Hvað lögfræðina varðar er oftar um að ræða sönnun á orsakatengslum þar sem sanna þarf eða hrekja að það sem hrjáir einstaklinginn sé afleiðing slyss, mis- taka eða óhapps. Til þess að skilja á milli læknisfræðilegra orsaka og lögfræðilegra þarf maður eiginlega að hafa þekkingu á hvoru tveggja." Aðspurður um hvort skrefið frá bækl- unarskurðlækningum yfir í læknisfræði- legar og lögfræðilegar skýrslugerðir sé ekki nokkuð stórt, svarar Ragnar og brosir: „Úr hetjukírúrg í möppudýr? Jú eflaust er stórt skref þar á milli en það á sér auð- vitað langan aðdraganda. Mín sérgrein er hryggjarskurðlækningar og ég starfaði við það á Borgarspítalanum þar til sjúkra- húsin voru sameinuð. Þá hætti ég þar og var eingöngu með einkarekstur hér í Orkuhúsinu og sinnti aðgerðum í nokkur ár. Þá fannst mér það orðið ágætt og líkar vel að flétta læknisfræðina og lögfræðina saman með þessum hætti." LÆKNAblaðið 2012/98 667

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.