Læknablaðið - 15.12.2012, Síða 50
UMFJÖLLUN O G GREINAR
„Hápunkturinn þarf að
vera á réttum stað”
- segir Hjálmar hagyrðingur
„Ég er fæddur og uppalinn í Vagnbrekku
í Mývatnssveit. í því samfélagi er mikil
vísnahefð og margir forfeður mínir og
skyldmenni hagyrðingar. Ég lærði mikið
af vísum og kvæðum bæði heima og í
skólanum og það þjálfaði brageyrað í
æsku. En menn voru samt ekki endilega
að flíka kveðskap sínum og fóru vel með
það," segir Hjálmar Freysteinsson heim-
ilislæknir á Akureyri sem nýverið gaf
út vísnabókina Lán í óláni sem hefur að
geyma kveðskap hans frá liðnum árum og
áratugum.
Hjálmar er með þekktari hagyrðingum
landsins og hefur tekið þátt í ýmsum hag-
yrðingasamkomum og á margar fleygar
stökur. Hann kveðst þó ekki hafa byrjað
vísnagerðina að ráði fyrr en á mennta-
skólaárum. „Ef ég setti saman vísur sem
krakki eða unglingur þá hef ég gleymt
því öllu núna," segir hann léttur í bragði.
En í Menntaskólanum á Akureyri sprakk
hagyrðingurinn út og Hjálmar gerði sér
lítið fyrir og vann vísnakeppni skólans
öll fjögur árin sem hann var þar við nám.
„Pétur Pétursson vinur minn og læknir
hér á Akureyri segir það hafa verið með
skárri hefðum í þeim skóla."
I formála að bókinni segir Hjálmar að
kveðskapurinn hafi „allur orðið til í þeim
eina tilgangi að skemmta sjálfum mér og
öðrum. Sumt er reyndar til komið vegna
þátttöku í hagyrðingasamkomum, þar
sem yrkisefni eru ákveðin af öðrum og
oft lagðar fyrir hinar furðulegustu spurn-
ingar. Stærsti hlutinn er þó það sem kallað
„Þetta er tilraun til
að gera tilveruna
agnarlítið skemmti-
lcgri," segir Hjálmar
Freystcinsson um
vísnagerð sína.
hefur verið tækifærisvísur, vísur tengdar
atburðum og umræðuefnum í samfé-
laginu. Oftar en ekki er reynt að benda á
spaugilegan flöt málanna og gera þannig
tilveruna agnarlítið skemmtilegri."
Og þá liggur beint við að spyrja hvort
alvarlegri ljóðagerð hafi ekki slæðst með á
stundum.
„Það er voðalega lítið. Ég hef aðeins
reynt að gera söngtexta en alvarlega ljóða-
gerð hef ég alveg látið öðrum eftir."
Hann segir að sér hafi komið á óvart
hversu mikill áhugi er fyrir vísnagerð.
„Þetta lifir góðu lífi með þjóðinni og til
eru í dag kornungir hagyrðingar sem
eiga framtíðina fyrir sér. Tækifærisvísur
eru hluti af alþýðumenningu þessa lands
og eru oftar en ekki eins konar brandari
um einhvern tiltekinn atburð eða ein-
stakling. Til þess að vísa sé vel heppnuð
þarf hápunkturinn að vera á réttum stað,
í lok vísunnar. Ég byrja því oftast á seinni
partinum og prjóna síðan framan við. En
það er álitamál hvort það þjóni tilgangi að
gefa út slíkan kveðskap þar sem tilefnið
gleymist yfirleitt fljótt. Vísurnar þurfa því
gjarnan inngang eða skýringu þegar frá
líður en það má ekki vera í of löngu máli
til að bera ekki vísuna ofurliði."
Hagyrðingar landsins hafa tekið
tæknina í þjónustu sína og eiga sér svæði
á netinu sem kallast Leirnetið. „Þar eiga
hagyrðingar samfélag og kveðast á og
setja inn vísur og vísuparta. Þannig er
maður í sambandi við hagyrðinga alls
staðar á landinu hvenær sem manni dettur
í hug."
Við ljúkum þessu spjalli við hagyrð-
inginn snjalla Hjálmar Freysteinsson með
vísu er hann orti vorið 2003 eftir tveggja
vikna dvöl á sælueyjunni Krít.
Ögn ég vitkast við það hlýt,
er víða um heiminnfér ég.
Eftir að ég komfrá Krít
krítískari er ég.
Sykehuset Innlandet HF
Centre for Laboratory Medicine in Lillehammer
Innlandet Hospital Trust (Sykehuset Innlandet HF) counts approximately 8 500 employees.
Activities include somatic hospitals in the cities of Lillehammer, Gjovik, Hamar, Elverum,
Kongsvinger and Tynset.
Department of Clinical Chemistry
The Department of Clinical Chemistry is located in the Centre for
Laboratory Medicine in Lillehammer. The Centre for Laboratory
Medicine delivers laboratory services to all hospitals and counts
approximately 220 employees.
For more information, please visit www.sykehuset-innlandet.no.
Senior Consultant
Full time position. The Senior Consultant will be taking part in the
department's diagnostic activities, as well as being responsible for
the medical communication towards prescribers and expected to
contribute to the department's development. The department is
willing to accommodate for personal development and research.
The position will report to Head Senior Consultant. The position
holds possibilities for advancement.
Required Competencies:
• Norwegian authorization/professional recognition in Clinical
Chemistry with specialist training
• Sufficient language skills: Norwegian and English
Contact details:
Head Senior Consultant: Jon Elling Whist, Phone: +47 90 16 55 57,
e-mail: Jon.Elling.Whist@sykehuset-innlandet.no or
Head of Department: Lisbeth Vedde, Phone: +47 91 56 49 94,
e-mail: Lisbeth.Vedde@sykehuset-innlandet.no
Application deadline: 19. December 2012
How to apply: All applications are to be registered electronically via WebCruiter.
Please visit www.sykehuset-innlandet.no,
where you will fmd our vacant positions and link i_i CI C C c/rxo /íct
to webcruiter, including the application form HbLoh ® ® ® S0R-0ST
for medical doctors. ®
678 LÆKNAblaöið 2012/98