Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Blaðsíða 30
ÞORSTEINN VILHJÁLMSSON
nefndum málflntmingi sínum á árunum 1972-1974. A1 Gore hefur hins
vegar fengið meiri hljómgrunn, en hann mun hafa byrjað að klappa stein
umhverfisverndarinnar litlu síðar en þeir félagar, eða þegar hann var rétt-
ur og sléttur þingmaður á Bandaríkjaþingi, og hefur setið tdð sinn keip
síðan.
Hér er ekki þörf á að rekja feril Gores nánar eða málflutning hans; hann
er lesendum væntanlega kunnur. Atdyglisvert er að sjá hversu umdeildur
Gore hefur verið; þeim sem eru ósammála honum virðist vera alveg sér-
staklega í nöp við hann. Sennilega er það einmitt meðal annars vegna þess
að menn eiga ekki von á staðföstum málflutningi úr þessari átt, það er að
segja frá stjórnmálamanni sem hefur náð jafnlangt í bandarískum stjórn-
málum og hann hefnr gert. En þetta má líka lesa sem eitt táknið enn um
vaxandi gengi umhverfismálanna meðal almennings og í valdakerfinu.
Sumir andstæðingar Gores túlka rit hans og önnur verk sem svo að
hann fari með spár um dómsdag eða ragnarök, en ekki þarf að lesa lengi í
bók hans, Ovelkomna sannleikanum,34 til að sjá að það gerir hann einmitt
ekki, heldur leggur hann áherslu á að menn eigi sér ennþá undankomuleið
og vísar þá til dæmis í söguna af ósonmálinu sem sagt var irá hér á undan.
Því fer þannig fjarri að Gore telji öll sund lokuð eða að allt líf á jörðinni
sé í hættu eins og sumir virðast halda enda er sannleikurinn sá að spár mn
loftslagsbreytingar fela hvorki í sér endalok lífs á jörð né mamikynsins,
heldur aðeins verulegar truflanir sem betra sé að afstýra áður en þær skella
á. Hins vegar fer Gore stundum ut fyrir vébönd vísindanna þegar hann
tengir einstaka atburði veðrahvolfsins umsvifalaust við almennar loftslags-
breytingar; svo einföld eru málin yfirleitt ekki ffá sjónarmiði vísindanna.
Iiverjir eru með og á mót'ú
Oft er áhugavert að skoða hverjir eru með og á móti tilteknum málstað
sem upp kemur í opinberrri umræðu, og af hverju. Yfirleitt fer slíkt að
meira eða minna leyti efdr hagsmunum fólks eins og það skynjar þá sjálft,
annaðhvort beint af gögnum máls eða eftir matreiðslu álitsgjafa sem menn
treysta hver um sig. Einnig kemur fyrir að menn festast í einhverju gömlu
fari, mynda sér til dæmis skoðun út ffá einhverju landslagi sem var fyrir
löngu og komast svo engan veginn upp úr þeim hjólförum. Það er meðal
annars þess vegna sem stundum þarf að skipta um kynslóð til að hópar,
34 Gore, 2006/7.
28