Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 35
VIÐHORF OG VISTKREPPA
er eðlilegt að menn ræði einstök atriði á gagnrýninn hátt. En við
eigum ekki að drepa málum á dreif með því að blanda óskyldum
málum inn í umræðuna.
• Þeim fyrirtækjum og hópum sem hafa verið fljót að tileinka sér
boðskapinn um vistkreppu vegnar oft betur en hinum sem berja
höfðinu við steininn.
• Islendingar hafa gert marga hluti vel í þessum málum (vistvænar
orkulindir og orkuberar) en annað illa (orkufrekir bflar og skip).
Hyggilegt væri að bregða nú hart við í því sem betur má fara.
• Viðhorf í orkumálum hér á landi og erlendis taka nú örum breyt-
ingum. Orkuflutningskerfið er ekki lengur hliðstætt vegakerfinu
og það segir nú til sín á margan hátt í orkumálum okkar.
• Ymislegt bendir til þess að viðhorf stjómmálamanna af mismun-
andi litbrigðum séu nú að gerbreytast í umhverfismálum. Skoðanir
á þessum málum segi ekki lengur til um það hvort menn séu til
„hægri“ eða „vinstri“.
Að lokum er rétt að tilfæra hér frægt spakmæli frá Keníu sem lýsir kjarna
málsins. I rauninrú ættu allar ritsmíðar um umhverfismál að enda á því:
Við höfum ekki fengið jörðina til eignar frá foreldrum okkar;
við höfum hana að láni frá börnunum okkar.
Heimildaskrá
Bird, Kai, ogMartinJ. Sherwin, 2006. American Prometheus: The Triumph and
Tragedy ofj. Robert Oppenheimer. New York: Vintage Books [1. útg. 2005].
Bjarni Bragi Jónsson, Hjörleifur Guttormsson, Jakob Björnsson, Jakob
Jakobsson og Þorsteinn Vilhjálmsson, 1977. „Samræður um vistkreppu".
Náttúruverkur 4, 4—31 [Asgeir Daníelsson og Gylfi Páll Hersir stjómuðu
samræðunum].
Carson, Rachel, 1953. Hafið og huldar lendur. Þýð. Hjörtur Halldórsson.
Reykjavík: Mál og menning.
Carson, Rachel, 1962. Silent Spring. Boston: Houghton Mifflin.
Carson, Rachel, 1965. Raddir vorsins þagna. Þýð. Gísli Olafsson. Reykjavík:
Almenna bókafélagið.
Ecologist, Editors of The, 1973a. A Blueprint for Survival. Harmondsworth:
Penguin [frumútgáfa 1972].
33