Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 56
HALLDÓR BJÖRNSSON OG TÓMAS JÓHANNESSON
að takast á við slíkar sveiflur. Það er þ\i ekki unnt að draga ályktanir um
möguleika manna til að takast á við loftslagsbreytingar sem í vændum eru
út frá því að líf á jörðinni hafi áður gengið í gegnum mun meiri brejningar.
6. Ahrif hlýnunar jarðar eru minni háttar ogþað svarar ekki kostnaði að
koma í vegfyrir þau.
Algengasta útgáfa þessarar mótbáru eru tvær fullvrðingar í röð: í f\TSta
lagi hljótist einungis hófleg hlýnun af aukningu gróðurhúsalofttegunda
og í öðru lagi valdi afleiðingamar ekki slíkum búsifjum að það borgi sig
að leggja út í kostnaðarsamar aðgerðir til að draga úr losun. Fyrri stað-
hæfingin er í raun skyld mótbáru 3, en staðhæfingunni er auðvelt að s\rara
með því að vísa til þess að niðurstöður margra rannsókna benda til þess
að sú hlýnun sem hlýst af tvöföldun gróðurhúsalofttegunda sé á bilinu
2-4,5°C. Mjög ólíklegt er að hlýnunin sé minni en 1,5°C en ekki er hægt
að útiloka gildi hærri en 4,5°C.7 Hvað varðar afleiðingar hlýnunar þá hefur
væg hlýnun augljóslega mixmi áhrif en mikil hlýnun. Vinnuhópur II hjá
IPCC tók saman rannsóknir á afleiðingum hlýmmar. Samantekt þeirra
sýnir mjög greinilega að þó að hófleg hlýnun hafi sumstaðar jákvæð áhrif,
þá getur jafnvel væg hlýnun á sumum svæðum haft skaðleg áhrif á \dstkerfi,
vatnsauðlindir o.fl. Ef hlýnunin fer yfir 2-3 °C verða víðtæk og stórfelld
skaðleg áhrif.8 Kosmaður þess að gera ekkert vex með hækkandi hita, en ef
draga á úr losun svo hiti jarðar nái jafnvægi skiptir máli að grípa til aðgerða
fljótlega. Ef beðið er með aðgerðir þarf niðurskurður á losun að verða
hraðari, sem er kostnaðarsamara. Skýrsla vinnuhóps III hjá IPCC fjallar
ýtarlega um þetta atriði.9 Eitt afbrigði þessarar mótbáru er að peningum
til þess að draga úr losun sé betur varið í annað, svo sem að berjast gegn
fátækt, sjúkdómum, vatnsskorti o.fl. Slík áþján kann að versna með aukn-
um loftslasrsbrevtingum og því þurfa aðgerðir gegn þeim einnig að núða að
A blaðsíðum 498 og 499 í WGI-AR4 er fjallað ýtarlega um aðferðir ril að meta
þá hlýnun sem hlytist af tvöföldun gróðurhúsalofttegunda og útskýrt hvers vegna
besta mat IPCC er á bilinu 2,0-4,5°C.
8 Samantekt á áhrifum stigvaxandi hlýnunar má sjá í skýrslu vinnuhóps II, t.d.
töflum TS.3 og töflu 19.1. Þetta atriði er einnig rætt hjá Gabrielle Walker og
David King, The Hot Topic: What We Gan Do About Global Wartning. Greystone
Books 2008, 6. kafla.
9 Mat á möguleikum og kostnaði við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda er
umfjöllunarefni vinnuhóps ]H en einnig er fjallað um þetta efni í skýrslu breska
hagffæðingsins Nicholas Stem, The Economics of Clitnate Change: The Steni Review.
Cambridge, Cambridge University Press 2007. Skýrslunni má hlaða niður ffá
vefsetri breska fjármálaráðtmeytisins (www.hm-treasury.gov.uk).
54