Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Blaðsíða 104
GUÐNI ELÍSSON
sem birtist í fréttum Egils af væntanlegri komu Gores til landsins. Því
verður ekki neitað að sérfræðingar Egils í loftslagsmálum hafa um langt
skeið verið með sérkennilegasta móti, því þegar Gore og loftslagsneiiid
Sameinuðu þjóðanna (IPCC) fengu friðanærðlaun Nóbels „brá Egill á það
ráð að kalla til Hannes Hólmstein Gissurarson“ eins og Ami bendir á og
þá „voru Gore ekki [heldur] vandaðar kveðjumar“.68
Ami varpar fram þeirri spurningu hvort Hannes Hólmsteinn og annar
viðmælandi Egils, Glúmur jón Bjömsson, efnafræðingur og ritstjóri frjáls-
hyggjuvefsíðunnar Vef-Þjóðviljam,69 séu íslenskir fulltrúar tóbaksvísinda í
loftslagsmálum, en þetta em þau vísindi kölluð sem kostuð hafa verið af
olíurisanum ExxonMobil vegna þess að þau minna á vísindin sem tób-
aksfyrirtækin „keyptu til að afheita tengslum reykinga og ýmissa sjúk-
dóma“. Jafnffamt vaknar sú spuming hvort sjónvarpsmaðurinn ágæti Egill
Helgason sé lagstur í tóbaksHsindi líkt og ráðgjafar hans?
Egill er síður en svo á þeirri skoðun. I bloggfærslu sem hann birti á
heimasíðu sinrd, „Er heimilt að gagnrýna fræðin?“, segir haim Arna vera
atvinnumann „í umhverfisvernd“, sem líklega þýðir að hann sé ómarktæk-
ur. ° Egill segir að grein Hjörleifs sé „sama marki brennd. Maður hefur
vitlaust fyrir sér af því maður er ekki í réttu hði og tekur ekki undir með
því sem ‘allir’ em að segja.“ Ummælin sem spunnust út af bloggfærslunni
vekja þó upp spurningar um afstöðu þessa valdamikla samfélagsrýnis til
tóbaksvísindanna. Einn af lesendum Egils, Jón Þór Sturluson, setti fram
mikilvæga athugasemd sem hann bað um svar við. Jón Þór segir:
A1 Gore nefndi í erindi sínu í morgun að mikið misræmi væri á
milli umfjöllunar fræðimanna í ritrýndum tímaritsgreinum og í
almennri fjölmiðlaumfjöllun. Hann tilgreindi stórt úrtak (sem
ég kann ekki skil á) þar sem engin af 900+ vísindagreina hafnaði
hlýnun jarðar sem staðreynd. Ríflega helmingur blaðagreina
um þessi efhi (samkvæmt öðru úrtaki) bar í sér einhvers konar
68 Eins og minnst hefux verið á birti Egilf einnig viðtal við Nigel Lawson, fýrrum
fjármálaráðherra í stjórn Margaret Thatcher, um loftslagsmál í Silfri Egils (13.
apríl 2008).
69 Glúmur Jón var gagnrýninn á bók Gores An Inconvenient Truth í ritdómi um hana
í Þjóðmálum 2006. Sjá: ,Aht er gott sem endar vel“, Þjóómál: Tímarit um stjómmál
ogmenningu, 4. hefti 2006 (2. árg.), bls. 95-96.
70 Egill Helgason: „Er heimilt að gagnrýna fræðin?“, 8. apríl 2008. Sjá: http://eyjan.
is/silfuregils/2008/04/08/er-heimilt-ad-gagnntna-fraedin/ [sótt 8. nóvember
2008].
102