Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 107
EFAHYGGJA OG AFNEITUN
nokkuð á óvart. Egill upplýsir Jón Þór um að löngu hafi „verið sýnt fram á
að þessi könnun Oreskes [sé] mjög hæpin“ og vísar þar í grein eftir James
M. Taylor sem birt er á vefsvæði frjálshyggjuhugveitunnar Heartland
Institute. í greininni þallar Taylor um fræga gagnrýni dr. Benny Peiser
sem þóttist geta sannað að niðurstöður rannsóknar Oreskes væru rangar.
Síðan yfirlýsing Peisers birtist í febrúar 2005 hefur hann smám saman
verið neyddur til að draga í land. FjTSt viðurkenndi hann að forsendur
rannsóknar sinnar væru rangar þar sem úrtakið hjá honum var annað en
hjá Oreskes (Peiser takmarkaði leit sína ekki við ritrýndar raunvísinda-
greinar eins og Oreskes heldur tók inn greinar úr hug- og félagsvísindum,
auk óritrýndra texta). Síðan neyddist hann til þess að viðurkenna að þær
34 greinar sem hann taldi sig hafa fundið og áttu að gagnrýna ráðandi
hugmyndir vísindamanna um hlýnun jarðar væru líklega færri og dró þann
hluta gagnrýninnar til baka (hafa ber í huga að Oreskes fann enga grein af
þessu sauðahúsi). Þegar upp var staðið gat Peiser ekki lagt fram nema eina
vísmdagrein sem dró niðurstöður loftslagshlýnunar í efa, en sú grein var
gefin út af samtökum ohujarðfræðinga (AAPG — American Association of
Petroleum Geologists) og var auk þess ekki ritrýnd.'8 Af 34 greinum stóð
engin efdr. Ekkert stóð efdr af röksemdum Peisers og í yfirlýsingu til ástr-
alska sjónvarpsþáttarins Media Watch frá 12. október 2006 sagði hann: „Ég
held ekki að neinn efist um að við hfum á tímum hnattrænnar hlýmmar.
Eg efast ekki heldur um að yfirgnæfandi meirihluti loftslagsfræðinga er
sammála um að hlýindaskeiðið sem nú stendur yfir megi að mestu rekja
til mannlegra athafria.“79 Þetta segir höfundm rannsóknarinnar sem Egill
vísar til þegar hann heldur því fram að það hafi fyrir löngu verið sýnt fram
á að „könnun Oreskes [sé] mjög hæpin“.80
Það er erfitt fyrir leikmenn að hlaupa ekki á sig þegar íjallað er um jafii
James M. Taylor: „Survey Shows Climatologists Are Split on Global Warming“,
The Heardand Institute, 1. júní 2005. Sjá: http://www.heartland.org/Article.
cfm?artld=17181 [sótt 9. apríl 2008].
78 Sjá L.C. Gerhard og B.M. Hanson: ,A-d Hoc Committee on Global Chmate
Issues: Annual report“, AAPG Bulletin 84 (4), aprú 2000, bls. 466-471. Um þetta
má einnig lesa hér: http://scienceblogs.com/deltoid/2006/10/peiser_admits_he_
was_97_wrong.php [sótt 8. aprQ 2008].
0 Sjá fréttina „Bolt’s Minority View“ sem birtist á vefsíðu MediaWatch 30. október
2006: http://wtvrw.abc.net.au/mediawatch/transcripts/sl777013.htm [sótt 9. april
2008].
Ml Pennamir á Vef-Pjóðviljanum eru mjög gagnrýnir á könnun Oreskes. Þeir
greina t.d. frá gagnrýni Peisers 3. maí 2005. Sjá: http://www.andriki.is/default.
asp?art=03052005 [sótt 13. nóvember 2008].
io5