Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 108
GUÐNI ELÍSSON
umdeilt málefni og hlýnun jarðar rdrðist vera í fjölmiðlasamfélaginu (þótt
almenn sátt sé um hana í rusindasamfélaginu). Við því er í sjálfu sér lítið
að gera annað en að leitast við að sannprófa þær upplýsingar sem menn
hafa undir höndum og aldrei að nota neitt sem vitað er að hefur verið
hrakið. Þeir sem vilja Kkt og Egill verja þá kenningu að allt sé í stakasta lagi
verða þó einnig að spjnja sig hvers vegna helstu upplýsingaveitur þeirra
eru heimasíður harðlínumanna yst á hægri armi stjómmálanna, hugveit-
ur eins og Cato Institute, American Enterprise Institute og Heartland
Institute. Það er einmitt til Heartland Institute sem Egill sækir heimild
sína í bloggfærslunni þar sem hann reynir að hrekja tengsl sín við hægri
harðlínuna og tóbaksvísindin. Þó er Heartland-hug\reitan eins og flestar
aðrar hugveitur frjálshyggjumanna á olíu- og tóbaksspenanum, en hún
hefur um langt skeið verið styrkþegi ExxonMobil og eimiig fengið vænar
fjárfúlgur frá tóbaksrisum á borð við Philip Morris.81 Er nema von að Arni
Finnsson spyrji hver sé loddarinn? Helstu álitsgjafar Egils í loftslagsmál-
um em harðlínumenn, fulltrúar þeirra afla sem hvað harðasta afstöðu taka
gegn vísindunum og raunveruleikanum.
Það er til marks um sérstöðu loftslagsumræðunnar að hún fer ekki
aðeins fram á vísindaráðstefhum, heldur einnig flmir dómstólum. Þaniúg
lýstd Hannes Hólmsteinn Gissurarson þrd yfir að dómari í breskum yfir-
rétti hafi komist að þeirri niðurstöðu að krdkmynd Gores, An Inconvenient
Tmth, „mættd sýna í skólum, en henni yrði að fylgja viðvörun, enda væm
í henni ýmsar hæpnar eða jafnvel rangar fulhnðingar, og miðaði dóm-
arinn þá við það, sem viðtekið væri í vísindaheiminum.“8- En eins og Arni
Finnson hefur bent á lætur Hannes hjá líða að nefha að „dómarinn taldi
mynd Als Gores í höfuðatriðum í samræmi tdð staðreyndir máls („Al Gore’s
presentation of the causes and likely effects of climate change in the film
was broadly accurate“). Þar með hafnaði dómarinn kröfu stefhanda um að
myndin yrði dæmd röng. Ennfremur hafnaði dómarinn kröfum stefhanda
um að banna sýningu myndarinnar í breskum skóluin.“ Árni segir enn-
fremur að draga verði þá ályktun af umfjöllun Hannesar í Lesbókinni og
öðmm fjölmiðlum að „hann hafi ekki kynnt sér frumheimildina - dóms-
81 Sjá m.a. &vo«Sea-eö-rannsóknarsíðuria sem ætlað er að rekja tilraunir Exxon til að
þvæla umræðuna um hlýnun jarðar: http://vrww.exxonsecrets.org/html/orgfacts-
heet.php?id=41; sjá einnig: Miles Grant: „Dismal science: Do Big Oil and Big
Tobacco share a similar smokescreen?", 4. mars 2008. http://gristmill.grist.org/
story/2008/3/4/155110/4814 [sótt 9.4. 2008].
82 Hannes Hólmsteinn Gissurarson, „Guðni gegn gagnrýnni hugsun", bls. 16.
IOÓ