Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Síða 109
EFAHYGGJA OG AFNEITUN
orðið sjálft - áður en hann fjallaði um dóminn. Þannig er skýrt af dóms-
orðinu að dómarinn setur meintar „villur“ Als Gores í gæsalappir til að
undirstrika að ekki er um eiginlegar villur að ræða heldur umdeild atriði.“83
Annar og þyngri dómur féll í apríl 2007. Þá kvað hæstiréttur Banda-
ríkjarma upp þann dóm að umhverfisstofnun Bandaríkjanna, EPA, hefði
fulla heimild til þess að „hamla gegn losun koldíoxíðs og annarra gróður-
húsalofttegunda og [bæri] í reynd skylda til þess. Rétturinn segir í dómi
sínum á mánudag að útblástur bíla falh undir loftmengun og því undir
stofnunina, sem á m.a. að ffamfylgja lögum um hreint loft. EPA verði að
sanna að lofttegundirnar valdi ekki skaða, ella hljóti stofnunin að beita
sér fyrir því að dregið verði úr losun.“84 Urskurðurinn skipti miklu og
leiddi til þess að harðlínumenn í hópi repúblíkana, með George W. Bush
í broddi fylkingar, neyddust til að draga í land og setja fram málamiðl-
unartillögur.85 Sönnunarbyrðin hefúr því færst yfir til afneitunarsinnanna.
Það er ekki lengur nóg að segja nei.
Hvað geta fjölmiðlar gen?
Sérkennilegt misræmi má greina á milh sáttar vísindasamfélagsins um
orsakir og afleiðingar loftslagsbreytinga og fréttaflutnings vestrænna
fjölmiðla, þar sem allt önnur mynd birtist af umræðunni. Með reglulegu
millihili berast okkur fregnir af því í dagblöðum og öðrum miðlum að
nýjar rannsóknir kollvarpi ríkjandi hugmyndum í loftslagsrannsóknum.
Okkur er sagt að vísindalega sáttin sé orðum aukin, hún sé einungis kenn-
ing eða grófar ýkjur sem hampað sé af umhverfisvemdarhreyfingum. A
meðan er ógjörlegt fyrir almenning að átta sig á hinu sanna í málunum.
Rannsóknarspurning M.T. og J.M. Boykoffs, sem ég minntist á hér
að framan, var þegin að láni frá bandaríska rannsóknarblaðamanninum
og Pulitzer-verðlaunahafanum Ross Gelbspan sem segir í bók sinni The
Heat is On (1997) að aðalvandinn í fréttaflutningi af loftslagsrannsóknum
figgi í uppeldi blaðamanna sem hefur verið kennt að sýna sanngirni með
83 Arni Firmson: „Farvel Lomborg“, Herðubreið, 2. tbl. 2007, bls. 86. Því má ekki
heldur gleyma að kvikmynd Gores er heimildarmynd sem er ætlað að vekja áhorf-
endur til vitundar um breytingar á veðurfari jarðar, en ekki vísindaskýrsla. Það er
því ósanngjamt að leggja þann mælikvarða á hana.
84 „Þjarmað að Bush í loftslagsmálum“, Morgnnblaðið 4. apríl 2007, bls. 17.
85 Sjá t.d. fréttina „Frómar hugsjónir eða undanbrögð“ þar sem sagt er frá því að
George W. Bush hafi óvænt kynnt nýja umhverfisstefnu, aðeins fáum dögum fyrir
leiðtogafund G8. Morgunblaðið 6. júní 2007, bls. 27.