Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Síða 185
AFNEITUNARIÐNAÐURINN
En einhvers staðar hlaut Bellamy að hafa fundið þessar tölur, þannig
að ég sendi honum tölvupóst og bað hann um að gefa mér upp heimildir
sínar. Eftir að ég hafði ítrekað beiðni mína nokkrum sinnum tjáði hann
mér að hann hefði fundið þær á vefsíðu sem kallast www.iceagenow.com.
Eg hvet ykkur til að heimsækja síðuna: hún er mikil furðusmíð. En þar
var raunverulega að finna allt það efni sem Bellamy vitnaði til í bréfi sínu,
þ.m.t. tölurnar um jöklana - eða að minnsta kosti eitthvað í Kkingu við
þær.
Frá því á árinu 1980 hafa meira en 55 prósent þeirra 625 fjalljökla,
sem World Glacier Monitoring-hópurinn í Zúrich fylgist með,
skriðið ffam.*20
Eleimildin fyrir þessu, sem Bellamy vitnaði einnig til í tölvupósti sínum
til mín, var tilgreind sem „nýjasta hefti tímaritsins 21st Centnry Science and
Technology“.
Tímarit þetta reyndist vera í eigu bandaríska milljónamæringsins Lyn-
dons Larouche. Hann hefur meðal armars haldið því ffam opinberlega að
breska konungsfjölskyldan starfræki alþjóðlegan eiturlyþahring,21 22 23
að Henry Kissinger sé njósnari á vegum kommúnista,24 að breska ríkis-
stjómin sé á valdi bankamanna af gyðingaættum,25 og að nútímavísindi
* Ef til vill rekur lesandinn augun í það að heimild Bellamys hélt því fram að af
625 jöklum væru 55 prósent að skríða fram, en Bellamy sjálfur hélt því hins vegar
ffam að 555 þessara jökla - eða 89 prósent - væru að skríða fram. Þessi tala virðist
ekki eiga sér neina stoð. En á venjulegu ensku (og íslensku) lyklaborði er talan
5 á sama lykli og táknið %. Sé ædunin að slá inn táknið %, en það ferst fyrir að
ýta um leið á „shift“-takkann, fæst talan 555 í staðinn fyrir 55%. Þetta er eina
útskýringin á þessari tölu sem mér kemur í hug. Þegar ég spurði Bellamy um þetta
atriði viðurkenndi hann að orðið hefðu „raffæn glappaskot“ (tölvupóstur ffá David
Bellamy, 5. maí 2005).
20 http://www.iceagenow.com/ Growing_Glaciers .htm.
21 Roger Boyes, „Blame the Jews“, The Times, 7. nóvember 2003.
22 David Bamford, „Turkish OfEcials Carpeted", Guardian, 30. júlí 1987.
23 Michael White, „Will the Democrats Wear this Whig?“, Guardian, 3. maí
1986.
24 Francis Wheen, „Branded: Lord Rees-Mogg, Intemational Terrorist“, Guardian,
21. ágúst 1996.
25 Útdrátmr úr Chip Berlet og Matthew N. Lyons, Right-Wing Populism in America:
Too Close for Ccrmfort (New York: Guilford Press 2000), endurútgefið á http://
www.pubHceye.org/larouche/synthesis.html.
183