Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2008, Page 208
GEORGE MONBIOT
sagði að elcki væri „pólitískt raunhæft“ að gera kröfu um lægra gildi.129
Simon Retallack frá Institute for Public Policy Research stóð þá upp og
minnti Sir David á að hlutverk hans sem helsta vísindamanns ríkisstjórn-
arinnar væri ekki í því fólgið að endurspegla himi pólitíska ramivenileika
heldur í því að upplýsa um vísindalegar staðreyndir. Rannsóknir Retallacks
sjálfs sýna að þegar magnið er 550 ppm eru möguleikarnir á því að korna
í veg fyrir að hlýnunin verði umfram 2°C einungis 10-20 prósent.Ll° Sir
David svaraði því til að ef hann mælti með lægri mörkum myndi hann
glata trúverðugleika sínum gagnvart ríkisstjórninni.
Eg held að mörg okkar séu í sömu stöðu og Sir David: ef þau taka þá
afstöðu sem vísindin krefjast í stað þeirrar sem stjómmálin krefjast, tæki
enginn mark á þeim.
En sú tilhugsun sem veldur mér mestu hugarangri er þessi. Eftir því
sem íbúar í ríku löndunum - jafnvel meðal sérfræðingastéttamia - vakna
til vitundar um það sem vísindin halda ffam, mun það að afneita loftslags-
breytingum verða jafh heimskulegt og að afneita Elelförinni eða fullyrða
að aktæmi megi lækna með rauðrófum. En viðbrögð okkar verða á þá leið
að krefjast þess að ríkisstjórnir bregðist við, en vona um leið að þær geri
það ekki. Við munum óska þess að ríkisstjórnir okkar þykist taka á mál-
unum. Þannig uppskerum við þá siðferðislegu ánægju sem hlýst af því að
segja það sem við vitum að er rétt, en sneiðum jafhffamt hjá óþægind-
unum sem fylgja því að breyta í samræmi við það.
Eg óttast að stjórnmálaflokkarnir í ríkustu löndum heims hafi nú þegar
gert sér grein fyrir þessu. Þeir vita að við viljum að sett séu ströng mark-
mið, en líka að við viljum ekld að þeim sé náð. Þeir vita að við munum
kvarta yfir því að þeim takist ekki að halda affur af loffslagsbreytingum, en
að við munum ekki fylkja okkur út á göturnar af þeim sökum. Þeir vita að
enginn hefur nokkru sinni efnt til uppþota til að krefjast meinlætis.
Þetta er nöturleg tilhugsun. En hún styrkir mig í þeirri trú að við verð-
um að gera þær breytingar sem nauðsynlegar eru á eins sársaukalausan
hátt og mögulegt er.
Ingibjörg E. Björnsdóttir þýddi
129 David King, ræða á ráðstefnunni „Decarbonising the UK“, 21. september 2005,
Church House, Westminster.
130 Simon Retallack, „Setting a Long Term Climate Objective: A Paper for the
International Taskforce on Climate Change“ (Institute for Public Policy
Research, október 2004): http://www.ippr.org.uk/ecomm/files/climate_objective.
pdf.