Þjóðlíf - 01.05.1988, Blaðsíða 11
INNLENT
Verður Ragnar
látinn fara?
Ragnar Júlíusson stjórnarformaður
Granda sagði Bynjólfi Bjanasyni í desem-
ber sl. að hann hefði haft samband við
alla stjórnarmenn fyrirtækisins vegna
bílakaupa þess handa honum (sjá viðtal
við Brynjólf). Pröstur Ólafsson stjórnar-
maður hefur hins vegar upplýst að Ragn-
ar hafi fyrst haft samband við hann í
marsmánuði og þá ekki til að leita sam-
þykkis hans heldur einungis til að láta
hann vita. Margir telja að þessar missagn-
ir séu nú orðnar þess eðlis að stjórn
Granda muni leggja að Ragnari að segja
af sér stjórnarformennsku.
Skuldabyrðin mun léttari
Segir Brynjólfur Bjarnason framkvœmdastjóri
Lítil og handahófskennd þátttaka Granda í fiskmörkuðum hefur verið gagnrýnd.
Samkvæmt ársreikningum 1987 eru lang-
tímaskuldir 237.4 milljónir, vextir og verð-
bætur um 95 milljónir og ef gengistap er
reiknað með þá hefur fyrirtækið þurft að
greiða í afborganir og vexti um 419 milljónir í
fyrra. Verður þessi upphæð ekki í kringum
hálfur milljarður í ár?
— Þessi upphæð er fjarri lagi. Arið 1987
voru þetta 220 milljónir og 1988 verða þetta
245 milljónir. Pað var skuldbreytt 120 mill-
jónum og tekin ný langtímalán að upphæð
um 170 milljónir króna. Þessi 50 milljón
króna munur dregst frá. Að viðbættum vöxt-
um voru þetta 220 milljónir árið 1987. í gróf-
um dráttum er þetta þannig að afborganirnar
eru um 140 milljónir á ári og vextir um 90
milljónir.
Nú hefur verið gengisbreyting, sem breytt
hefur skuldastöðunni og tap á fiskvinnslu
einnig það sem af er þessu ári. Hvað hafa
skuldir aukist mikið á þessu ári?
— Já. Við erum með um 600 milljónir í
erlendar skuldir, þannig að 6% gengisfelling
hækkaði erlendar skuldir urn 36 milljónir eða
svo.
Margir telja að vond skuldastaða fyrirtæk-
isins eigi rætur að rekja til þeirra skulda sem
Grandi yfirtók frá gömlu fyrirtækjunum?
— Vissulega má segja það. Granda var ýtt
sæmilega úr vör af eigendunum með góðri
eiginfjárstöðu en því er ekki að neita að
miklar skuldir fylgdu báðum fyrirtækjunum.
Pað sem að gerðist var að eigendurnir yfir-
tóku flestar langtímaskuldirnar við stofnun
fyrirtækisins, en eftir stóðu skammtíma-
skuldir hjá Granda. Við vorum allt árið 1986
og fram á mitt ár 1987 að fá breytingu á
skammtímaskuldum yfir í langtímalán til að
veltufé yrði ísæmilegu lagi, sem það oghefur
verið frá miðju sl. ári, þ.e. greiðslustaða
fyrirtækisins.
Hefur fyrirtækið minnkað undir þinni
stjórn?
— Pað fer eftir mælikvarða. í tonnum tal-
ið var heildarafli togara Granda 26.209 tonn,
1986 voru það 24.453. Hjá BÚR 1983 voru
veidd 24.500 tonn ef þú vilt fá samanburð.
Það er ljóst að í fyrirtækinu starfa færri
starfsmenn en í báðum fyrirtækjunum áður.
I fyrra voru 373 dagsstörf hjá fyrirtækinu og
eftir síðustu aðgerð. Það á að verða þannig
að það hafi fækkað um 100 til 150 manns frá
því bæði fyrirtækin voru starfandi.
í þann tíð var eitt frystihús til að vinna
aflann. Er þá ekki óhagkvæmt að reka tvö í
dag með vinnslu á svipuðum afla?
— Þessi frystihús bæði tóku á móti um 18
þúsundum tonna. A sínum tíma var einnig
unnin fiskur í skreið og saltfisk, en á þeirri
11
Skuldum vafinn