Þjóðlíf - 01.05.1988, Blaðsíða 20
INNLENT
Umdeild ráðning —
Jafnréttisráð mótmælir
Störf og starfshættir Náttúruverndarráös
hafa komist í sviðsljósið í kjölfar ráöningar
þjóögarðsvaröar í Skaftafelli. Þá var ráðinn
Stefán Benediktsson, arkitekt og fyrrverandi
þingmaður Bandalags jafnaðarmanna, en
gengið framhjá fjórum umsækjendum með
menntun og reynslu á sviði náttúrufræða og
líffræða. í febrúar s.l. felldi Jafnréttisráð svo
þann úrskurð að ráðning Stefáns hefði brot-
ið í bága við lög um jafna stöðu karla og
kvenna. f bréfi til Náttúruverndarráðs var
mælst til þess að eftir að reynslutíma Stefáns
lýkur um næstu áramót verði Sigrún Helga-
dóttir, líffræðingur, ráðinn. Sigrún hlaut
ekki stuðning innan Náttúruverndarráðs,
enda hefur m.a. komið á daginn að sumir
ráðsmenn sem í stöðuna völdu, lásu alls ekki
allar umsóknirnar. Jafnframt reyndu for-
maður ráðsins og fleiri að gera Sigrúnu tor-
tryggilega í óopinberu bréfi sem sent var
Jafnréttisráði. Þar var ýjað að því að Sigrún
væri ósamstarfshæf. í samtölum við blaða-
mann Þjóðlífs komu sömu fullyrðingar fram
— án nokkurs rökstuðnings. Maður sem vel
þekkir til innan Náttúruverndarráðs sagði
að „rógsherferð Náttúruverndarráðs væri
síðasta hálmstráið til að reyna að réttlæta
stöðuveitingu sem væri með eindæmum ófag-
leg“.
Staða þjóðgarðsvarðar í Skaftafelli var
auglýst til umsóknar þann 28. ágúst á síðasta
ári. Kagnar Stefánsson, sem gegnt hefur
starfinu frá upphafi, eða í um 20 ár, Iét af
störfum um síðustu áramót. Ragnar var
bóndi og ekki með sérstaka menntun á sviði
náttúrufræða, en Náttúruverndarráð lagði
mikla áherslu á að eftirmaður hans hefði
reynslu og menntun á því sviði.
Um stöðu þjóðgarðsvarðarins sóttu, auk
Sigrúnar og Stefáns, Haraldur Antonsson
búfræðingur, Jón Hjartarson skólastjóri og
Finnur Torfi Hjörleifsson lögfræðingur.
Náttúruverndarráð, sem valdi í stöðuna
var svo skipað á síðasta ári: Eyþór Einarsson
formaður, skipaður af menntamálaráð-
herra, Einar E. Sæmundssen landslagsarki-
tekt, Friðjón Guðröðarson sýslumaður, Jón
Gunnar Ottósson líffræðingur, Lára G.
Oddsdóttir forseti SÍN, Páll Líndal lögmað-
ur og Þóroddur F. Þóroddsson jarðfræðing-
ur.
Frá upphafi var ljóst að Friðjón Guðröðar-
son studdi Stefán Benediktsson, og það
sama gerði formaður ráðsins, Eyþór Einars-
son og varaformaður hans, Elín Pálmadóttir
blaðamaður sem situr alla fundi ráðsins en
hefur ekki atkvæðisrétt.
Skipuð var nefnd þriggja manna sem
skyldi ræða ítarlega við alla umsækjendur.
Nefndin var skipuð þeim Friðjóni, Eyþóri og
Gísla Gíslasvni framkvæmdastjóra Náttúru-
verndarráðs. Nokkuð ljóst er að bæði Frið-
jón og Eyþór höfðu þegar gert upp hug sinn
áður en þeir byrjuðu að ræða við umsækj-
endurna.
Sigrún Helgadóttir lauk BS gráðu í líffræði
frá Háskóla íslands vorið 1978 með jarðfræði
og landafræði sem aukagreinar. Haustið 1981
lauk hún mastersgráðu, M.Sc., frá Edin-
borgarháskóla í auðlindanýtingu. Lokarit-
gerð hennar þaðan fjallar um skipulag og
nýtingu þjóðgarða í þremur löndum, Bret-
landi, Bandaríkjunum og á íslandi. Sigrún
var landvörður í Jökulsárgljúfrum fimm
Elsa Þorkelsdóttir
„Órökstuddar dylgjur
Náttúruverndarráðs"
„í síðasta bréfinu sem Náttúruverndar-
ráð sendi okkur vegna málsins gefa þeir í
skyn að samskiptaörðugleikar valdi því
að Sigrún hlaut ekki starfið“, sagði Elsa
S. Þorkelsdóttir, framkvæmdastjóri Jafn-
réttisráðs. „Við getum vitanlega ekki tek-
ið mark á órökstuttum fullyrðingum á
borð við þær sem í bréfinu voru. Það er
algengt að atvinnurekendur beri fyrir sig
að tiltekin starfskraftur sé ósamvinnu-
þýður, en slíkt þarf að sanna t.d. með
yfirlýsingum frá samstarfsfólki eða yfir-
mönnum. í þessu tilviki var því ekki til að
dreifa. Náttúruverndarráð getur því ekki
kastað fram einhverjum dylgjum eins og
gert var í síðasta bréfinu“.
20