Þjóðlíf - 01.05.1988, Blaðsíða 15
INNLENT
upplýsingum eftir atvikum og fjöldi manns
hefur aðgang að gögnunum. Miðað við
tölvuvæðinguna erlendis erum við svo langt
á eftir að það er beinlínis hlægilegt“.
Þeir sem munu hafa aðgang að tölvuskrám
rannsóknarlögreglunnar verða allir starfandi
lögreglumenn og yfirmenn embættisins. Þeir
eru nú rúmlega fjörutíu.
Rannsóknarlögreglustjóri kvað líklegt að
nýja tölvukerfið yrði tekið í notkun í ein-
hverju samráði við tölvunefnd. í raun og
veru gerist þess hins vegar engin þörf, sam-
kvæmt upplýsingum frá Jóni Thors skrif-
stofustjóra í dómsmálaráðuneytinu og ritara
tölvunefndar. Lögreglan þarf ekki að ráð-
færa sig við neinn. Lögin sem voru sett til að
vernda einstaklinginn gegn kerfinu eru lek
að þessu leyti. Fyrir þann leka er hægt að
setja þegar lögin verða endurskoðuð á næstu
misserum.
Hrafn Jökulsson
Smíoar bara
fyrir stráka
Jafnréttisráð lauk afgreiðslu 15
mála á sl. ári. Athugasemdir
einnig gerðar þegar jafnrétti karla
er misboðið. Sex konur og einn
karl í Jafnréttisráði.
Fyrir skömmu kom út hjá Jafnréttisráði
skýrsla síðasta árs. Þar keniur fram að ráðið
fáuk afgreiðslu 15 mála árið 1987 og eru þau
af ýmsum toga. Þannig barst ráðinu ábend-
ing vegna endurútgáfu á Kennaratali, en á
eyðublaði sem sent var kennurum til útfyll-
ingar var einungis óskað upplýsinga um
móðurafa og föðurafa en ekki móðurömmu
og föðurömmu. Jafnréttisráð beindi þess
vegna þeim tilmælum til útgáfustjórnar bók-
arinnar að ekki yrði gerður greinarmunur á
kynjunum að þessu eða öðru leyti.
Ráðinu barst einnig kæra á síðasta ári frá
nokkrum nemendum eins grunnskólans í
Reykjavík vegna synjunar skólastjóra á að
stúlkur fengju kennslu í smíðum. Samskonar
kæra hafði borist árið áður. Jafnréttisráð
ítrekaði tilmæli til skólastjórans um að láta af
þessari mismunun og hafði einnig samband
við námsstjóra í handmennt í skólaþróunar-
deild. Aðlögunartími grunnskóla að breyttu
fyrirkomulagi er löngu liðinn, en þrátt fyrir
það var ákveðið í samráði við menntamála-
ráðuneytið að gefa enn nokkurn frest. I
skýrslu Jafnréttisráðs er tekið fram að náms-
stjórar í handmenntakennslu muni fylgjast
grannt með að grunnskólar vinni markvisst
að því að strákar og stelpur fái sömu kennslu
í þessu fagi sem öðrum.
Þá barst Jafnréttisráði ábending vegna
skipunar nefndar á vegum forsætisráðuneyt-
isins, og var þetta ntál af nokkuð öðrum toga
spunnið en flest önnur sem komu til kasta
ráðsins. Nefndin sú arna átti að koma fram
með tillögur um hvernig styrkja megi stöðu
fjölskyldunnar og því kölluð fjölskyldu-
nefnd. í þessa nefnd skipaði forsætisráð-
herra fimm konur — en engan karl.
Jafnréttisráð tók undir þessa ábendingu
og í bréfi til Þorsteins Pálssonar forsætis-
ráðherra, var lögð áhersla á að nefndir séu
bæði skipaðar körlum og konum — og bent á
að yfirleitt halli á konur í þeim efnum.
í Jafnréttisráði eiga nú sæti sjö manns:
Ásdís J. Rafnar formaður, Árni Gunnarsson
varaformaður, Þórunn Sveinbjörnsdóttir,
Sigurveig Sigurðardóttir, Hrafnhildur Stef-
ánsdóttir, Arndís Steinþórsdóttir og Ingi-
björg Magnúsdóttir. Sern sagt: Sex konur og
einn karl.
HJ
Þorsteinn Pálsson: Fékk vinsamlega
ábendingu um að í nefnd um fjölskyldu-
mál væri óeðlilegt að hafa eingöngu kon-
ur.
Árni Gunnarsson: Eini kariinn í sjö
manna Jafnréttisráði.
15