Þjóðlíf - 01.05.1988, Blaðsíða 43

Þjóðlíf - 01.05.1988, Blaðsíða 43
MENNING Sæmundur Valdimarsson á vinnustofu sinni. „Einu sinni sagði mér sálfræðingur að verkalýðsleiðtogar berjist með kjafti og klóm fyrir því að halda stöðum sínum, af því þeir geti alls ekki til þess hugsað að fara að vinna á eyrinni aftur. Eflaust er þetta rétl. í sumum félögum hefur ekki verið kosið árum saman. Leiðtogarnir segja að það sé vegna þess hve erfitt er að halda kosningar. Lýð- ræðið er alltaf erfitt". Sæmundur flækir ekki málin með langlokum. En núna er hann búinn að draga sig út úr baráttunni, enda á sjötugasta aldursári. Samt fylgist hann með. Og þykir greinilega erfitt að horfa upp á þróun mála. Við tölurn lengi enn um verka- lýðspólitík. Hann lítur tortrygginn á penn- ann fljúga yfir blaðið: „Við skulum ekki móðga neinn“. Svo við vendum okkar kvæði í kross. Ég spyr um uppvaxtarár. „Ég er fæddur á Krossi í Barðastrandar- hreppi við norðanverðan Breiðafjörð“, segir Sæmundur. „Þangað var ekki akstursfært, svo annað hvort var farin sjóleið til Flateyjar eða landvegurinn til Patreksfjarðar. Fyrsta farartækið sem kom í sveitina var jeppi sem ég flutti þangað árið 1947 sjóleiðina frá Stykkishólmi. Svona jeppar voru kallaðir landbúnaðarjeppar. Til mótvægis við her- jeppana. En þetta voru að vísu allt Willys- jeppar. Hestarnir urðu svo hræddir við hann að þeir hlupu á fjöll þegar þeir heyrðu hljóð- ið...“ Menntunarmál voru svona með höpp- um og glöppum á þessum árum. Kreppuár- unum. Samt tók Sæmundur Valdimarsson fullnaðarpróf. Og það tvisvar sinnum! „Ég hafði fylgst að með bróður mínum sem var tveimur árum eldri og tók þess vegna fulln- aðarpróf ellefu ára gamall. Ég fékk prýðis- einkunnir ef ég man rétt, en svo sáu einhverj- ir vitringar að þetta gat vitanlega ekki geng- ið: Ellefu ára gömul börn tóku ekki fullnaðarpróf. Svo ég þurfti að taka það aftur tveimur árum síðar. Einhverra hluta vegna voru einkunnirnar ekkert betri þá. Ég veit ekki af hverju". Og þar með lauk skólagöngunni. Sæm- undur fór á vertíð í Vestmannaeyjum og Suðurnesjum þegar hann stálpaðist; hann fór á sfld; í vegavinnu og vann um skeið hjá hernum. Svo gifti hann sig 1948 og byggði hús í Kópavoginum og eignaðist börn og buru. Svona er hægt að gera langa sögu stutta! Árið 1953 réðst hann til Áburðarverk- smiðjunnar sem þá var raunar enn í bygg- ___ e__ ingu. „í Áburðarverksmiðjunni lærði ég eitt, að flýta mér aldrei með nokkurn hlut því það væri aldrei að vita nema maður væri settur í eitthvað annað verra“, segir Sæm- undur hæglætislega. Og brosir við. En hann var alls ekki iðjulaus, því í Kópavoginum byggði hann „tvö og hálft hús. Það þurfti að alltaf að bæta við einu herbergi fyrir hvern krakka sem kom í heiminn ..." Aðaláhugamálið var að ferðast um landið. Hann safnaði fallegum og sérkennilegum steinum. Steinarnir urðu að litfögrum and- litsmyndum: seinna fór hann að sanka að sér rekaviði og frumspýtukallarnir urðu til. Þessi þróun tók mörg ár. Sæmundur tók fyrst þátt í sýningu árið 1974. „Já, það var þjóðhátíðarárið. Á Kjarv- alsstöðum var heilmikil sýning af því tilefni. Guðbergur Bergsson tók sig til og efndi til sýningar á alþýðulist í Gallerí SÚM — til mótvægis við alvörulistina". Árin liðu og hægt og hljótt þróaðist spýtufólkið. Það var svo árið 1983 sem Sæmundur vakti fyrst veru- lega athygli fyrir myndlist sína. Þá opnaði Áburðarverksmiðjan nýtt húsnæði og Sæm- undur Valdimarsson sýndi rekaviðarfólk og margir hrifust. Árið eftir hélt hann einkasýn- ingu á Kjarvalsstöðum. „Það hefur nú sjálfsagt verið álitamál hvort það ætti að sýna svona myndlist í sjálfu musterinu“, segir Sæmundur „en það var nú svo undarlegt að það var alvöru listafólk sem var hrifnast af verkunum mínum“. Nú hefur hver einkasýningin rekið aðra, síðast á Kjar- valsstöðum í vor. „Ég fékk mjög góð og vinsamleg viðbrögð. í umsögnum var það að vísu rækilega undirstrikað að þetta væri al- þýðulist — eða naívismi". Sæmundur bregð- ur ekki svip. „En það er þá ágætt að vera fremstur meðal jafningja á þeim vett- vangi...“ Öll verkin á sýningunni seldust, nema tveir afar stórir kallar. Og svo einn lítill sem var dálítið öðruvísi en hinir. „Já, ég verð víst að breyta litla greyinu. Refsa honum fyrir laka frammistöðu“, segir listamaðurinn og reynir að vera strangur á svipinn. „Já, ég breyti þeim oft“, segir hann. „Oft eru þeir lengi í vinnslu hjá mér. Ég fæ hugmyndir jafnóðum og ég vinn“. Hvernig líður honum eftir að hafa haldið stóra sýningu eins og í vor? „Ég er algerlega tómur fyrst á eftir. En ég er að vona að ég geti varið meiri tíma í þetta núna þegar hillir undir að ég hætti að vinna. Hvort ég sakna þeirra?“ Sæmundur verður hugsi. Spyr svo varfærnislega: „Er ekki alltof gróft að líkja þessu við að láta frá sér börnin manns? Mig skiptir mestu að þeir fari til einhverra sem þykir vænt um þá. Heldurðu að fólki þyki þetta ekki væmið? En það er mest um vert að fólkinu mínu líði vel. Þess vegna get ég aldrei gefið neitt frá mér nema ég sé viss um að viðtakandum þyki vænt um það“. Hrafn Jökulsson 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82

x

Þjóðlíf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.