Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 12

Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 12
Skuldum vafinn INNLENT Uppsagnir á uppsagnir ofan Þegar Grandi var stofnaður voru starfs- menn beggja fyrirtækjanna, ísbjarnar og BÚR um 800 talsins, á síðasta ári voru þeir 373 talsins og eftir nýjustu uppsagnir verða þeir rúmlega 300 á þessu ári, að sögn Sigurjóns Péturssonar. „Það er almennt viðurkennt sem þumalfingursregla að fyrir hvert eitt starf í framleiðslu myndist þrjú til fjögur sem afleidd störf í þjónustu. Þetta þýðir að hér í Reykjavík hafa horfið nærri tvö þúsund störf með samdrættinum í BÚR, ísbirnin- um og Granda. Pó hér á svæðinu hafi verið þensluástand á vinnumarkaði, þá er það ástand sem gæti horfið á mjög skömmum tíma. En þá verður ekki hægt að fjölga störfum hjá Granda, því það sem búið er að selja varanlega er afla- kvótinn", segir Sigurjón Pétursson. vinnslu var tap. Við stofnun Granda var vinnsla á Seltjarnarnesi og Meistaravöllum. sem hvort tveggja var lagt niður og starfsem- in færð í Örfirisey. Starfseminni var skipt upp í sérhæfingu þannig að það er einungis unninn karfi í Gandagarði og þorskur og ufsi í Norðurgarði. Pessi sérhæfing þurfti tvö hús. Hver er raunveruleg ástæða uppsagna verkafólksins? — Hún er sú sem fram hefur komið í fréttatilkynningu frá okkur, annars vegar rekstrarvandinn og hins vegar breyting á vinnsluaðferð, — við erum að bregðast við vanda með framleiðniaukandi aðgerðum. í sambandi við þessar uppsagnir er höfðað til skilnings fólksins. Spurt er hvort erfiðleik- ar í rekstri eða vélvæðing hafi valdið upp- sögnunum, vegna þess að Ragnar Júlíusson stjórnarformaður fyrirtækisins kvað ekkert samhengi vera milli uppsagnanna og styrks til bflakaupa, fólkinu hefði verið sagt upp vegna vélvæðingar. Hefur Ragnar rangt fyrir sér? — Ég er ekki sammála þessari skýringu. Þú ert ekki sammála þessari skýringu Ragnars Júlíussonar? — Nei, nei enda hef ég tjáð mig á annan veg. Það hefur löngum verið formúla að for- senda verulega aukins kaupmáttar verka- fólks sé mikil aukning framleiðni. Nú hefur framleiðnin á hvern starfsmanna aukist verulega á skömmum tíma, en engu að síður hefur kaupmáttur ekki aukist að sama skapi. Er formúlan vitlaus, að aukin framleiðni þurfi ekki að þýða hærra kaup? — Þetta er náttúrlega fullyrðing af þinni hálfu. Það hefur orðið mikil kaupmáttar- aukning það ég best veit. Og í annan stað hefur með bónus- og hóplaunakerfi verið framleiðniaukning, þannig að með aukinni framleiðni hafa báðir notið góðs af — fyrir- tækið og starfsmennirnir. Laun fólks hafa hækkað með auknum afköstum. Á undanförnum misserum hefur kvóta- hlutdeild höfuðborgarinnar rýrnað ali veru- lega? — Af Granda hálfu hefur þetta verið þannig að við höfum verið með 3 skip á aflamarki og 4 á sóknarmarki. Eins og sést af tölurn hefur okkur tekist á undanförnum ár- um að auka aflamagnið þrátt fyrir kvótakerf- ið, vegna þess að skipin á sóknarmarki hafa getað náð í meiri afla. Við gerum ráð fyrir því í ár að veiða 24 þúsund tonn eftir að Ásþór er farinn. Með honum fór kvóti upp á tæp 300 tonn. En sjórinn á síðasta orðið í þessu efni. — Meðal þess sem var tilgangur Granda við stofnun var að losa um eignir sem ekki eru not fyrir og það höfum við gert. Fyrir utan Meistaravelli og Seltjarnarneseignir. voru það vörubílar, vélar og fleira. Allt hefur þetta verið spurning um að reyna að nýta þær fjárfestingar sem eru til staðar og það höfum við gert. Það kom fram í fjölmiðlum að ekki hafi verið haldinn stjórnarfundur um bílakaup Granda fyrir Ragnar Júlíusson. Hver heimil- aði þau? — Um þetta hef ég það að segja: Ég veit ekki betur en haft hafi verið samband við alla stjórnarmenn í desembermánuði. Ég spurði stjórnarformanninn sérstaklega að því, og hann tjáði mér að búið væri að hafa samband við alla stjórnarmenn vegna þessa máls. Hver eru laun framkvæmdastjóra og ann- arra æðstu manna fyrirtækisins? — Ég tjái mig ekkert um launamál hér, sagði Brynjólfur Bjarnason framkvæmda- stjóri Granda að lokum. Fyrirtækið hefur selt fleiri eignir að und- anförnu. 250 þúsund í mánaðarlaun „Ég vil ekkert tjá mig um laun hér“ „sagði Brynjólfur Bjarnason forstjóri aðspurður um laun æðstu stjórnenda Granda. Samkvæmt heimildum Þjóðlífs var for- stjóri Granda með um 250 þúsund krónur í mánaðarlaun á miðju sl. ári. Þá var framleiðslustjórinn með 180 þúsund krónu mánaðarlaun, útgerðarstjórinn og fjármálastjórinn voru einnig með sömu mánaðarlaun. Næstu stjórar þar fyrir neðan voru með um 140 þúsund krónu mánaðarlaun. Stjórnarmenn fyrirtækis- ins fá milli 130 og 140 þúsund krónur í árslaun samkvæmt því sem kom fram í út- varpsviðtali við Þröst Ólafsson á Rás 2 lO.maí. 12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.