Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 14

Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 14
INNLENT Rannsóknarlögreglan tölvuvæðist Kerfisbundin skráning á upplýsingum um einkahagi fólks. Nýr tölvubúnaður hjá rannsóknarlögreglunni. Samkvæmt lögum er lögreglan undanþegin leyfisveitingu frá tölvunefnd Rannsóknarlögregla ríkisins er nú að láta vinna fyrir sig forrit vegna tölvuvæðingar embættisins. Að sögn rannsóknarlögreglu- stjóra er aðeins meiningin að tölvufæra kæruskrána, þau gögn sem nú eru handfærð. Það vekur hins vegar athygli að lögreglan hlítir ekki sömu reglunr og aðrir varðandi eftirlit tölvunefndar sem starfar samkvæmt lögum um kerfisbundna skráningu á upp- lýsingum er varða einkamálefni. Ekki liggur ljóst fyrir hvaða upplýsingar verða færðar í tölvukerfi lögreglunnar. Lögfræðingur sem Þjóðlíf ræddi við kvaðst fullviss um að ef lögreglan fengi ekkert ytra aðhald skapaðist hætta á misnotkun. „Það er ekkert athuga- vert við það þótt rannsóknarlögreglan haldi skrár. Málið snýst hins vegar um það, hvað fer inn á þessar skrár — nöfn hvaða einstak- linga. Það hlýtur að þurfa að veita lögregl- unni aðhald eins og öðrurn. Það aðhald er ekki fyrir hendi núna". Lög um kerfisbundna skráningu á upp- lýsingum er varða einkamálefni voru fyrst sett árið 1981 og endurskoðuð fjórum árum síðar. Núgildandi lög falla úr gildi 31. desem- ber 1989 og í sumar hefst vinna við endurnýj- un þeirra, sem Tryggvi Gunnarsson og Þor- geir Örlygsson formaður tölvunefndar hafa umsjón með. í samtali við Þjóðlíf viðraði Þorgeir þá hugmynd að setja á stofn einskon- ar tilkynningaskyldu fyrir þá sem tölvuskrá upplýsingar um einkamálefni. Verði það gert þarf lögreglan að gefa tölvunefnd upplýsingar um skrár sínar. Eins og lögin eru túlkuð nú þarf lögreglan ekki að spyrja kóng eða prest um hvað er sett á skrár, svo fremi það brjóti ekki í bága við lögin. Það er raunar athyglisvert að í lögunum er hvergi vikið að lögreglunni, en hins vegar segir í þriðju grein: „Opinberum aðilum, þ.á.m. læknum ogsjúkrahúsum, erþó heimil skráning án vitundar eða samþykkis hins skráða, standi til þess sérstök lagaheimild eða skráning sé ótvírætt nauðsynleg vegna notagildis skránna". Bogi Nilsson rannsóknarlögreglustjóri rík- isins kvað ekki fyrirhugað að breyta skrám embættisins. Einungis væri verið að setja í tölvur það sem áður var handfært. Þær upp- lýsingar sem lögreglan skráir, samkvæmt upplýsingum Þjóðlífs, eru nafn þess sem yfir- heyrður er, heimilisfang, nafnnúmer, síma- númer, vinnustaður, nafn maka, nöfn for- eldra, vinahópur, gælunafn og fyrri afskipti Hverjir verða á tölvuskrám rannsóknarlögreglunnar? Hvaða upplýsingar verða færð- ar á skrárnar? Samkvæmt núgildandi tölvulögum þarf lögreglan ekki að gefa tölvu- nefnd neinar upplýsingar. Bogi Nilsson rannsóknarlögreglustjóri sagði í samtali við Þjóðlíf að miðað við tölvuvæðingu í öðrum löndum væri lögreglan hér hlægilega langt á eftir. rannsóknarlögreglunnar af viðkomandi. Hér er vert að undirstrika að hér er um að ræða alla þá sem koma til yfirheyrslu, þó á daginn komi að þeir tengist á engan hátt máli sem er til rannsóknar. Tölvuvæðingin mun auðvelda rannsókn- arlögreglumönnum störf á ýmsan hátt. Um það er hægt að taka eftirfarandi dærni: A er færður til yfirheyrslu vegna óupplýsts máls. A er á skrám lögreglunnar og þar eru nöfn úr kunningjahópi hans. Tölvan leitar u- ' þeirra allra í skránni, hvort sem þeir eru skráðir einhvers staðar sjálfir eða sem for- eldri, maki eða í kunningjahópi. Það er því ljóst að langfæstir þeirra sem á skrá lögregl- unnar eru hafa brotið af sér. Þjóðlíf hefur heimildir fyrir því að forritið sem verið er að útbúa geri m.a. ráð fyrir því að hægt sé að keyra það saman við aðrar skrár. Það þýðir t.d. að lögreglan getur sam- einað málaskrá við aðrar og alls óskyldar heintildir. Lögfræðingurinn sem áður var vitnað til og þekkir til mála innan lögregl- unnar nefndi sem dæmi að lögreglan gæti keyrt saman málaskrá sína og vanskilaskrá sem Reiknistofa Hafnarfjarðar heldur. „Á þann hátt væru þeir komnir með bæði per- sónulega hagi og fjármál manna á eina skrá. Lögregla í öðrum löndum heldur skrá yfir ótrúlegustu hluti og auðvitað þróast mál hér í sömu átt og þar þegar tölvuvæðingin er geng- in í garð. Ef ekkert verður að gert". í lögunum um skráningu upplýsinga um inkamálefni er kveðið á um að ekki megi keyra saman skrár frá tveimur aðilum. Það er í verkahring tölvunefndar að sjá til þess að það gerist ekki. Núverandi lög gera nefnd- inni ókleift að fylgjast með að löggæslan framfylgi því. Bogi Nilsson kvaðst hafa kynnt sér tölvu- skráningu víða erlendis, bæði austanhafs og vestan. „Þar hafa þeir miklu meiri upplýsing- ar um einstaklinga en við. Þar er kerfið víða samtengt þannig að menn geta líka bætt inn 14

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.