Þjóðlíf - 01.05.1988, Qupperneq 22
INNLENT
Efasemdir hafa
vaknaö um aö
arkitekt sé best til
þess fallinn aö upp-
fylla kvaöir um að
gera „yfirlit yfir nátt-
úrufræöirannsóknir í
héraöinu jafnframt
ástundun eigin
rannsókna í þjóð-
garðinum eöa
nágrenni hans“ eins
og til er ætlast.
mann. Aðild að Náttúruverndarþingi eiga
ýmis félagasamtök og stofnanir sem tengjast
náttúru og gróðurvernd. „Það er tilviljun
háð hver er valin í stjórn. Ef einhver stendur
upp og heldur glimrandi góða ræðu er hann
kosinn í ráðið. Menntun eða reynsla er ekk-
ert aðalatriði í þeim tilvikum. Þetta gerir það
að verkum að fólk sem lítið eða ekkert veit
um náttúruvernd er í sumum tilvikum sett
yfir fólk með sérmenntun og reynslu", sagði
maður sent þekkir vel til innan ráðsins í sam-
tali við Þjóðlíf.
Fyrrverandi starfsmaður Náttúruverndar-
ráðs tók undir þetta sjónarmið í samtali við
Þjóðlíf og taldi að skoðanir ráðsmanna
gengju oft og einatt í berhögg við álit starfs-
manna sem þó væru málum best kunnugir.
Hann taldi brýnt að settar yrðu reglur um
það hvernig valið er í Náttúruverndarráð —
enda mikið í húfi. Starfssvið ráðsins verður æ
víðtækara, það er m.a. umsagnaraðili um
allar meiriháttar framkvæmdir til dæmis á
sviði vegagerðar og fiskeldis. Að auki starfa
hjá ráðinu tugir landvarða á sumrin og það
hefur yfirumsjón með þjóðgörðunum í
Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum auk mikils
fjölda friðlýstra svæða um allt land. Þá hefur
ráðið umsjón með margháttuðunum rann-
sóknum og fræðslu uin náttúru landsins.
Það að ráðinn var arkitekt sem þjóðgarðs-
vörður þegar völ var á sérmenntuðu fólki
með mikla reynslu þykir vísbending um
ófagleg vinnubrögð. í svarbréfi til Jafnréttis-
Áttum gott samstarf
við Sigrúnu
„Það er alveg á hreinu að samstarfið við
Sigrúnu var ágætt. Hún hafði náttúrulega
ákveðnar skoðanir og þurfti að taka
ákvarðanir sem stundum voru óvinsælar í
sveitinni“, sagði Axel Yngvason, bóndi að
Ási í Kelduhverfi í samtali við Þjóðlíf.
Sigrún vann við þjóðgarðinn í Jökulsár-
gljúfrum í fimm ár og þurfti að hafa náið
samstarf við heimafólkið að Ási.
„Það mæddi mikið á Sigrúnu, enda vita
Islendingar ekki hvað þjóðgarður er“,
sagði Axel. „Hún stóð að mestu leyti ein í
þessu til að byrja með og það starf var
mjög erfitt og krefjandi. Við hér á Ási
áttum mikil samskipti við Sigrúnu, enda
var hún hérna meira og minna. Auðvitað
vorum við stundum á öndverðum meiði,
en hún kom fram af sanngirni við okkur".
Þjóðlíf leitaði einnig til Agnars Ingólfs-
sonar prófessors, og fyrrverandi vara-
manns í Náttúruverndarráði, en hann og
Sigrún unnu saman í Lífríkisnefnd ráðs-
ins.
„Við Sigrún unnum mikið saman í Líf-
ríkisnefndinni og það gekk mjög vel. Við
áttum gott samstarf", sagði Agnar að-
spurður um hvernig samstarf hans og
Sigrúnar hefði verið. „Ég var hættur í
ráðinu þegar þessi mál komu upp og veit
ekki hvernig þau hafa þróast. Ég átti hins
vegar gott samstarf við Sigrúnu að öllu
leyti".
ráðs eru m.a. tínd til þessi rök til að réttlæta
að gengið var fram hjá Sigrúnu: „Stefán hef-
ur dvalið langdvölum í Skaftafelli og þekkir
því staðinn og héraðið vel. bæði náttúru þess
og sögu. Eitt verka Stefáns er skólinn og
félagsheimilið á Hofi í Öræfum, sem hann
teiknaði og skipulagði frá grunni og hafði
síðan umsjón með byggingu hússins, og hef-
ur hlotið mikið lof heimamanna fyrir".
Það er ekki síst síðasta atriðið sem Elín
Pálmadóttir lagði áherslu á í samtali við
Þjóðlíf — hve Stefán sé vinsæll fyrir austan
og vel látinn. í þessu sambandi ýjaði hún
einnig að því að Sigrún gæti aldrei unnið með
fólkinu eða haft mannaforráð. Sömu sjónar-
mið og Náttúruverndarráð nefndi í síðasta
bréfinu til Jafnréttisráðs — í þeim tilgangi
einum að gera Sigrúnu tortryggilega.
Þrátt fyrir meintar vinsældir Stefán Bene-
diktssonar fyrir austan, hafa vaknað spurn-
ingar um hvernig arkitekt á að uppfylla
kvaðir um „yfirlit yfir náttúrufræðirann-
sóknir í héraðinu jafnframt ástundun eigin
rannsókna í þjóðgarðinum eða nágrenni
hans" eins og til er ætlast.
Eitt af skilyrðunum sem sett voru áður en
ráðið var í stöðu þjóðgarðsvarðar var að við-
komandi yrði að búa í Skaftafelli. Sam-
kvæmt heimildum Þjóðlífs gengust allir um-
sækjendur inn á það í samtölum við nefndar-
menn Náttúruverndarráðs. Þess vegna þótti
það skjóta skökku við þegar Stefán Bene-
diktsson bauð sig fram sem formaður Arki-
tektafélagsins í mars síðastliðnum — en
hann tók vel að merkja við stöðu þjóðgarðs-
varðar um síðustu áramót. Formennska í
Arkitektafélaginu mun einkar tímafrek og
erfitt þykir að reka félagið austan úr Skafta-
felli. Húsnæði fyrir Stefán verður tilbúið nú í
sumarbyrjun þegar gamli þjóðgarðsvörður-
inn flytur sig um set. Náttúruverndarráð
keypti húsakynni hans á síðasta ári eftir sér-
staka aukafjárveitingu. Elín Pálmadóttir og
Gísli Gíslason lögðu mikla áherslu á að Stef-
án byggi fyrir austan en kváðust ekki vita
hvað gert verður ef hann stendur ekki við
það.
Sem fyrr segir hefur Jafnréttisráð fellt
þann úrskurð að Náttúruverndarráð hafi
gengið í berhögg við lög um jafnrétti karla og
kvenna með því að sniðganga Sigrúnu
Helgadóttur. Jafnframt mæltist ráðið til að
Sigrún fái stöðuna þegar reynslutíma Stefáns
lýkur um áramótin. Ekkert hefur enn komið
fram sem bendir til þess að Náttúruverndar-
ráð ætli að verða við þeim tilmælum.
Hrafn Jökulsson
22