Þjóðlíf - 01.05.1988, Page 29

Þjóðlíf - 01.05.1988, Page 29
ERLENT Svíþjóð Græningjar gera usla Hér í Svíþjóð er nú runninn út framboðs- frestur til þeirra kosninga er fram eiga að fara í haust. Sextán flokkar og samtök hafa tilkynnt um áhuga á að öðlast sæti á sænska þinginu. Það eru því margir kallaðir en að öllum líkindum verða hinir útvöldu allmiklu færri. Ljóst er þó að Græningjar setja nú og munu eiga eftir að setja mark sitt á sænsk stjórmál. Undanfarið kjörtímabil hafa 5 flokkar átt sæti á þinginu. þrír borgaralegir og tveir sós- íalískir og verða sjálfsagt ekki stórar breyt- ingar þar á. Raunar hefur enn einn borgara- flokkur átt þingfulltrúa þar sem að Kristna lýðræðiseiningin (Kristen Demokratisk Sam- ling, KDS) kom formanni sínum á þing með tæknilegu kosningasamkrulli við Miðflokk- inn (Centern). Var þessi samvinna harðlega gagnrýnd af öðrum flokkum enda ljóslega tilraun til að sniðganga ákvæði stjórnarskrár- innar um 4% inngönguþröskuld. Reið hvor- ugur flokkurinn feitum hesti frá þessari sam- vinnu í síðustu kosningum og verður leikur- inn ekki endurtekinn í haust. Virðist því Ijóst að KDS hverfur af þingi því af eigin ramm- leik fara þeir ekki inn ef marka má kannanir. Um tvo flokka aðra er vafasamt hvort þingmenn fáist. Annars vegar er þar um að ræða kommúnistaflokkinn (VPK) sem átt hefur við mikla innri erfiðleika að stríða og hefur í skoðanakönnun eftir skoðanakönnun verið alveg við 4% mörkin, ýmist undir eða yfir. En hafa ber í huga að flokkurinn hefur áður iðkað þennan línudans og komist heill frá. Stafar það m.a. af því að ef ljóst er rétt fyrir kosningar að hætta er á ferðum. hlaupa ætíð þó nokkrir sósíaldemókratar undir bagga og kjósa VPK til að tryggja sósíalískan meirihluta á þingi. Hefur þessi hegðan að minnsta kosti tvisvar fleytt flokknum inn á þing. Trúlegast er því að VPK verði enn um sinn með fulltrúa á þingi. Hinn flokkurinn sem sérstaka athygli vek- ur eru sænsku græningjarnir (Miljöpartiet de gröna) en þeir eru hluti alþjóðlegrar hreyf- ingar umhverfisverndarsinna. Nú þegar eiga græningjar fulltrúa á þingum átta vestur- evrópskra landa, Vestur-Þýskalands, Aust- urríkis, Belgíu, Sviss, Finnlands, Portúgal, Ítalíu og Luxemborgar. Og nú virðist svo sem Svíþjóð verði níunda landið með græna þingmenn. Kannanir í haust og vetur spáðu sænska græningjaflokknum allt að 10% atkvæða. Síðan hefur heldur hallað undan fæti en þó virðist flokkurinn enn nokkuð öruggur um að komast á þing. Síðustu kannanir benda til Eva Goes málpípa Græningja þykir orð- hvöt í meira lagi. um 6.5% fylgis. Yrðu það óneitanlega mikil tíðindi ef Miljöflokknum tækist þetta því sex flokkar hafa ekki átt sæti á sænska þinginu síðan á öðrum tug þessarar aldar ef undan er skilið KDS-ævintýrið. Tíðindi yrðu þetta líka af annarri ástæðu. Flokkurinn neitar staðfastlega að taka þátt í þeirri fylkinga- pólitík sem í svo ríkum mæli einkennir sænsk stjórnmál. Flokkurinn vill hvorki fallast á að hann sé borgaralegur né sósíalískur og býður stuðning sinn (eða hlutleysi) þeim sem best uppfyllir kröfulista þeirra sem eðlilega snýst mest um umhverfismál. Um síðustu páska hélt flokkurinn ráð- stefnu í Uppsölum til að leggja línuna fyrir kosningarnar og negla saman stefnuskrá. Ráðstefnan vakti allmik'la athygli fjölmiðla en óvíst er að sú athygli verði flokknum til framdráttar í komandi kosningum. Lang- flestir fjölmiðla hafa lagt höfuðáherslu á þær hliðar flokksins er öfgasinnaðar þykja sem og þá þætti stefnuskrárinnar er líklegt er að þyki hlægilegir. Þannig var mikið veður gert út af þeim ummælum Evu Goes að nauðsyn- legt geti verið að brjóta lög þegar þau lög ógna lífi. Þótti ljóslega mikið til þess koma að manneskja er vildi setjast í löggjafarsam- kundu sænskra hvetti til lögbrota. Eva þessi (sem raunar má ýmislegt um líf vita, verandi sex barna móðir) er önnur af málpípum (sprákrör) græningja en svo nefna þeir þá tvo einstaklinga (karl og konu) er því hlutverki gegna að koma fram fyrir flokksins hönd t.d. í fjölmiðlum. Formann í venjulegum skiln- ingi hafa þeir engan. Þá er einnig fullljóst eftir þetta þing að innan flokks græningja eru miklar mótsetn- ingar sem ákaflega erfitt kann að reynast að brúa. Þannig virðist svo sem allstór hópur flokksmanna sjái enga ástæðu til að fagna því fari svo að flokkurinn komist á þing. Að þeirra mati er sérhvert samkrull við valda- stofnanir samfélagsins hættulegt hreinleika flokks og flokksmanna. Því beri að hafna algjörlega þingræðisleiðinni og einbeita sér að beinum aðgerðum. Mjög var þessi hópur þó í minnihluta á páskaráðstefnunni en eng- inn vafi leikur á að aðrir flokkar munu not- færa sér það í kosningabaráttunni að innan flokks græningja sé hópur hreinræktaðra stjórnleysingja. Raunar hefur það þegar sýnt sig að tvenns konar baráttuaðferðum verður beitt gegn græningjum í kosningabaráttunni. Annars vegar verða þeir sakaðir um ábyrgðarleysi, þekkingarskort og óraunsæi. Hins vegar verða kjósendur varaðir við að kalla yfir sig það stjórnleysi er fylgja kynni í kjölfarið ef á þing settist fólk sem óvíst væri hvar ætti heima á hinum hefðbundna vinstri/hægri kvarða stjórnmálanna. Hið fyrra er þraut- reynt ráð og hefur oft gefið góða raun. Þó mun það sjálfsagt nokkuð fara eftir því hversu mörg og stór mengunarslys verða ljós fyrir kosningar og hvort fólk tekur mark á tali um óraunsæi umhverfisverndarsinna. Segja má að græningjar hafi þegar unnið hálfan sigur í og með að allir flokkar leggja nú mun meiri áherslu en áður á að sýna sig sem hlynntasta umhverfisvernd. Sérhver stóru flokkanna hefur lagt fram sérstaka stefnuskrá í umhverfismálum. Meira að segja virðist sá flokkur er hér er lengst til hægri, Moderata Samlingsparti, reiðubúinn til að leggja einhver bönd á hinn frjálsa markað í þessu skyni. Hefur flokkurinn þó hingað til talið flest eða öll mannleg vanda- mál leysanleg með óbeisluðum markaðsöfl- um. Og í því ég skrifa þennan pistil dettur inn um bréfalúguna áróðursbæklingur frá sós- íaldemókrötum með þeirra nýja slagorði. „Hin rauða framtíð okkar er græn“. Svo jafnvel þó svo fari að sænskir græningjar komist ekki á þing í haust geta þeir glaðst yfir að tilvist þeirra hefur ýtt við hinum eldri flokkum og gert þeim ljóst að stór hópur kjósenda er reiðubúinn til að líta svo á að umhverfisvernd sé mikilvægasta mál kosn- inga, ekki aðeins í haust, heldur um langa framtíð. Lundi 30. apríl 1988/lngólfur V. Gíslason 29

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.