Þjóðlíf - 01.05.1988, Page 36

Þjóðlíf - 01.05.1988, Page 36
ERLENT Vestur — Þýskaland Jafnaðarmenn vinna stórsigur í Slésvík-Holtsetalandi Arthúr Björgvin á tali við Björn Engholm hinn nýja forsætisráðherra í Slésvík, en í janúarhefti Þjóðlífs var viðtal við þennan sigurvegara kosninganna — framtíðar kansl- araefni vestur- þýskra sósíaldemókrata? Það var dauft yfir Hclmut Kohl, kanslara Vestur-Þýskalands, þegar hann birtist á sjón- varpsskjánum að loknum kosningunum í Slésvík-Holtsetalandi þann 8. þessa mánað- ar. Kanslarinn hafði reyndar ærna ástæðu til að vera hnípinn, því flokksbræður hans, kristilegir demókratar, í fylkinu milli Norð- ursjávar og Eystrasalts, fengu heldur háðug- lega útrcið í kosningunum. Það var ekki nóg með að þeir töpuðu tæpum 10 af hundraði atkvæða frá kosningunum í fyrrahaust, held- ur misstu þeir bandamenn sína, frjálsa demó- krata af þingi og týndu þar með allri von um valdastóla í fylkinu næstu fjögur árin. Þessi von var reyndar orðin harla dauf. Eftir kosningarnar í fyrra kom upp sú staða að kristilegir og frjálsir demókratar höfðu samtals jafnmörg sæti (37) á fylkis- þinginu í Kíl og jafnaðarmenn að viðbættum þingmanni danska minnihlutans í Suður- Slésvík. Þessi hnútur leiddi til þess að ekki var hægt að mynda stjórn og efna varð til nýrra kosninga. Það eru vísast ýmsar ástæður fyrir því að kristilegir demókratar hafa sett jafn alvar- lega ofan hjá kjósendum í Slésvík-Holtseta- landi og raun ber vitni. Þar vegur þyngst á metum „Kílarhneykslið" fræga, sem upp kom í tengslum við síðustu kosningar í fylk- inu og er ótvírætt eitt mergjaðasta hneykslis- mál vestur-þýskrarstjórnmálasögu. Fyrrver- andi forsætisráðherra fylkisins, Uwe Bar- schel, var staðinn að því að hafa látið njósna um einkalíf andstæðings síns, Björns Eng- holms, leiðtoga jafnaðarmanna í fylkinu, auk þess sem Barschel beitti ýmsum öðrum miður vönduðum meðölum til að klekkja á Engholm. Þetta mál sem á köflum minnti á ýkjufullan farsa endaði með því að Uwe Ba- rschel fannst látinn á hóteli í Genf. Við krufningu kom í ljós að dánarorsökin var ofnotkun róandi lyfja. Talið var víst að þessi valdafíkni og gæfulausi stjórnmálamaður hefði stytt sér aldur, þótt raddir væru uppi um að hann hefði verið ráðinn af dögum. Það er enginn vafi á að persónulegar vin- sældir Björns Engholms áttu stóran þátt í þeim glæsilega kosningasigri sem jafnaðar- menn unnu í Slésvík-Holtsetalandi. Frá því að Barschel-málið kom upp, hefur Engholm verið tíður gestur í fjölmiðlum. Þrátt fyrir að þessi fyrrum ráðherra í ríkisstjórn Helmuts Schmidts hafi verið hóflega hrifinn af þeirri frægð var hún honum ótvírætt til góðs (sjá viðtal við Björn Engholm í janúarblaði „Þjóðlífs"). I stað 36 setjast nú 46 jafnaðarmenn á fylkisþingið í Kfl. Þingmönnum kristilegra demókrata fækkar úr 33 í 27 og flokkur danska minnihlutans í Suður-Slésvík (SSW) heldur sínu eina sæti. Þegar litið er til þessara hlutfalla er Ijóst að Björn Engholm sem tek- ur við embætti forsætisráðherra fylkisins í lok þessa mánaðar þarf ekki að hafa áhyggj- ur af harðri stjórnarandstöðu. Þegar úrslitin komust á hreint lýsti Eng- holm yfir því, að hann liti á þennan dóm kjósenda sem sigur fyrir lýðræðið. Hann hef- ur ávallt lagt áherslu á að brýnt sé orðið að stokka upp valdahlutföll í fylkinu en kristi- legir demókratar hafa verið við völd í Slés- vík-Holtsetalandi í 38 ár. Svo langri valdatíð eins flokks fylgir jafnan hætta á margvíslegri spillingu og það er mál manna hér ytra að Engholms bíði ærinn starfi við að stinga út það tað sem hefur safnast fyrir í valdastofn- ununi fylkisins á undanförnum áratugum. Arthúr Björgvin Bollason, Munchen. Úrslitin í tölum: hlutföll: bingsæti: 1987 SPD (45,2) 54,8% 46 CDU (42,6) 33,3% 27 FDP ( 5,2) 4,4% — Gríine ( 3,9) 2,9% — SSW ( 1.5) 1,7% 1 Aðrir ( 1.5) 2,9% — 34

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.