Þjóðlíf - 01.05.1988, Blaðsíða 41
MENNING
hélt titlinum frá 1886 þar til hann tapaði fyrir
Lasker árið 1894. Lasker hélt titlinum lengur
en nokkur annar hefur gert— í 27 ár. Garrí
Kasparov er þrettándi heimsmeistarinn frá
Steinitz að telja.
Heimsmeistarar verða ekki gerðir að frek-
ara umtalsefni að sinni: heldur vikið að skák-
manni sem áreiðanlega var sterkastur allra
um hríð þótt hann fengi aldrei titil því til
staðfestingar. Karl Ernst Adolf Anderssen
(1818-1879) sigraði á fyrsta skákmótinu sem
haldið var í heiminum, í London 1851 og
aftur í London 1862 og Baden Baden 1870.
Anderssen var skákmaður af rómantíska
skólanum. þar sem fórnir, fléttur og glæsi-
leiki skiptu höfuðmáli. Og hann er höfundur
tveggja skáka sem sagan geymir með alveg
sérstakri lotningu og hefur valið nöfn við
hæfi: Skákin sígræna og skákin ódauðlega.
Það var áðurnefndur Wilhelm Steinitz sem
skírði þá fyrrnefndu og komst vel að orði
sem endranær.
Skákin var tefld í Berlín árið 1852 og and-
stæðingur Anderssens var Jean Dufresne
(1829-1893), misheppnaður skáldsagnahöf-
undur en ágætur skákmaður.
Hvítt: Anderssen
Svart: Dufresne
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. b4 Bxb4 5. c3
Ba5 6. d4 exd4 7. 0-0 d3 8. Db3 Df6 9. e5
Dg610. Hel Rge711. Ba3 b512. Dxb5 Hb813.
Da4 Bb6 14. Rbd2 Bb7 15. Re4 Df5 16. Bxd3
Dh517. Rf6+ gxf618. exf6 Hg819. Hadl Dxf3
20. Hxe7 Rxe7 21. Dxd7 Kxd7 22. Bf5+ Ke8
23. Bd7+ Kf8 24. Bxe7 mát.
Skákina ódauðlegu tefldi Anderssen við
Lionel Adelberto Bagration Felix Kieser-
itzky, (1806-1853) en hann var kunnur kaffi-
húsaskákmaður í París — að vísu svo illa
þokkaður að þess er sérstaklega getið í heim-
ildum að enginn mætti í jarðarför hans nema
útfararstjórinn.
Hvítt: Anderssen
Svart: Kieseritzky
1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Bc4 Dh4+ 4. Kfl b5 5.
Bxb5 Rf6 6. Rf3
Dh6 7. d3 Rh5 8. Rh4 Dg5 9. Rf5 c610. g4 Rf6
U. Hgl cxb5 12. h4 Dg6 13. h5 Dg5 14. Df3
Rg8 15. Bxf4 Df6 16. Rc3 Bc5 17. Rd5 Dxb2
(Anderssen hefur þegar fórnað biskupi en
lætur ekki þar við sitja og nú fjúka báðir
hrókarnir!) 18. Bd6 Bxgl 19. e5 Dxal+ 20.
Ke2 og svartur gafst upp. Framhaldið hefði
getað orðið á þessa leið: 20. ... Ra6 21.
Rxg7+ Kd8 22. Df6+ Rxf6 23. Be7 mát.
Svona tefla vitaskuld engir nema snilling-
ar: og margir hafa glaðst yfir þessari skák á
þeim 137 árum sem liðin eru frá því hún var
tefld. Svona taflmennsku munu tölvuraldrei
geta leikið eftir, sama hversu öflugar þær
annars verða.
Hrafn Jökulsson
Stórmeistarapartí
í haust
Næsta haust verður haldið hérlendis firna-
sterkt skákmót með þátttöku átján stór-
meistara. Mótið er liður í heimsbikarkeppni
stórmeistarasambands Kasparovs og félaga.
Verðlaunin eru hærri en áður hefur þekkst:
Alls fjórar milljónir króna. Og allir fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð — sá sem lendir í neðsta
sæti fær fyrir vikið 2000 dollara, eða í kring-
um hundrað þúsund krónur.
Af hálfu íslendinga er Jóhann Hjartarson
þátttakandi í heimsbikarkeppninni og teflir á
fjórum af sex mótum sem gengist er fyrir. Pá
mun Margeir Pétursson verða sérstakur
gestur, enda er hann nú bæði íslands- og
Norðurlandameistari.
Það er Stöð 2 sem hefur umsjón með mót-
inu í samvinnu við fleiri aðila. Borgarleik-
húsið verður vígt á þcnnan hátt og er vel við
hæfi.
Það eru engir aukvisar sem heimsækja
okkur af þessu tilefni. Þar ber auðvitað hæst
Garí Kasparov heimsmeistara, en nú er Iiðin
rúmlega tuttugu ár síðan ríkjandi heims-
meistari tefldi hérlendis síðast. Þá var það
Mikaíl Tal og hann verður raunar einnig
meðal þátttakenda nú. Aðrir Sovétmenn
sem verða með er þessir: Beljavsky, Ehlvest,
Sokolov og Jusupov. Tveir fyrrverandi liðs-
rnenn Rússa tefla einnig á mótinu: Korchnoi
frá Sviss og Spassky sem nú gengur erinda
Frakka. Þá eru aðeins ótaldir Júgóslavinn
Nikolic, Englendingarnir Nunn og Speelm-
an. Ungverjarnir Portisch. Ribli og Sax og
svo loks Timman frá Hollandi.
Meðalstigafjöldi keppenda verður að öll-
um líkindum í kringum 2600 stig og verður
fróðlegt að sjá hvernig okkar mönnurn reiðir
af í þeim félagsskap. Jóhann Hjartarson
virðist í ágætu formi, en þó hann sé á uppleið
getur hann ekki státað af mörgum vinning-
um gegn sterkustu skákmönnum heims.
Nema auðvitað Korchnoi...
TABAC ORIGINAL
Sígildur ilmur
fyrir alla herra alstaðar..
SNYKTIVOSfk
Sundaborg 9, simi 681233