Þjóðlíf - 01.05.1988, Page 51
VIÐSKIPTI
Tölvuframleiðsla og dreifing er mjög fjölþjóðleg í eðli sínu. Tage Frisk aðstoðafostjóri IBM telur að Evrópumenn hafi tekið sjálfa
sig í hnakkadrambið á sviði vísindamála og fjáls innri markaður 1992 eigi eftir að skiia árangri.
Evrópukreppa
samtaka launafólks
„Evrópubandalagið hefur mest verið kjaftakvörn fram að þessu,“
segir Rune Molin varaforseti Aiþýðusambandsins í Svíþjóð í viðtali
við Dagens Industri (7/3 “88), „en nú er EB-kvörnin farin að snúast
um ákvarðanir sem skipta miklu um framtíð okkar allra.“ Frá sjón-
arhóli verkalýðshreyfingar sem hefur þorra vinnandi fólks innan
sinna vébanda, og er mikils ráðandi um framvindu þjóðmála, væri
það skelfílegt ef öll norræn fyrirtæki flyttu aðalstöðvar sínar til
meginlands Evrópu, en eftir sæti forysta samtaka launafólks áhrifa-
laus í sínum gömlu vígjum og berðist við vindmyllur. Rune Molin
telur nauðsynlegt að samtök launafólks um alla Evrópu berjist sam-
eiginlega fyrir kröfunni um samnings- og meðákvörðunarrétt gagn-
vart stjórnum fjölþjóðlegra Evrópufyrirtækja.
Einar
Karl
Haraldsson
skrifar
Ýmsir aðrir og minni spámenn meðal for-
ystumanna launafólks á Norðurlöndum eru
tortryggnir í garð nánari Evrópusamvinnu:
Hvers vegna eiga þjóðir sem búa við velsæld,
atvinnuöryggi og skaplegt vinnuumhverfi að
rugla reitum saman við þjóðir sem hrjáðar
eru af stórfelldu atvinnuleysi, hafa mun
minni þjóðarframleiðslu á mann og standa
langt að baki Norðurlöndum í umhverfis-
málum, innan veggja sem utan? Mat á þeim
aðstæðum sem hasla launafólki völl og sú
framtíðarsýn sem menn kjósa að draga upp
ræður miklu um svör við spurningum af
þessu tagi.
Evrópa aftur í tísku
Gamla góða Evrópa hefur ekki verið í tísku
um hríð. Hún hefur enda mikið á samvisk-
49