Þjóðlíf - 01.05.1988, Side 58
VIÐSKIPTI
„Lesið Kaldaljós.
Pað verður enginn
svikinn af því.“
Eiríkur Brynjólfsson, Alþýðublaðið.
Kaldaljós eftir Vigdísi
Grímsdóttur 453 bls.
Verð kr. 2.290.-
„Þessi fyrsta skáldsaga Vigdísar Grímsdóttur
er mikið verk og vel unnið. Hæfileikar hennar
njóta sín hér mjög vel. Kaldaljós er saga sem er
skrifuð af miklum næmleik; tilfinningarík.
sterk og snertir mann.“
Margrét Eggertsdóttir, Pjóðviljinn.
„Frásagnarandinn í bókinni er einstakur. Mér
fannst ég ekki vera að lesa heldur var eins og
einhver hvíslaði að mér. Hún talar við les-
andann, þessi bók, því hún á við okkur erindi.
Bókin byggir á sannsögulegum atburðum en
þeir eru færðir til í tíma og rúmi þannig að þær
fyrirmyndir skipta ekki máli lengur. Aðeins
örlög fólksins skipta máli, og manni er ekki
sama um Grím Hermundsson en verður samt
að játa fyrir sér í lokin að öðruvísi gat ekki
farið.“
Eiríkur Brynjólfsson, Alþýðublaðið.
„Kaldaljós er óður til fegurðar, trúnaðar,
grimmdar, óvenjulega margslungin saga, saga
ástar og dulúðar og þó raunsæis. Unnin af
mikilli list. Henni skal ekki líkt við neitt. Um
sumar bækur á ekki að nota of mörg orð. Því
að eins og Vigdís Grímsdóttir skilur manna
bezt; orð geta verið hættuleg. Og stöku höf-
undum tekst svo að það er sálarbætandi að lesa
orðin og allt sem að baki þirra felst. Þannig er
Kaldaljós fyrir mér. Listaverk eftir Grím sem
ég vildi hafa upp á vegg.“
Jóhanna Kristjónsdóttir, Morgunblaðið.
j---------------------V.
5vortáímtu
’i--------------------r*
Ágóði af
alkóhólisma
Yfir 80 milljónir ígjaldeyristekjur
Islendingar eru taldir hagnast um 80 mill-
jónir króna í gjaldeyristekjum á ársgrund-
velli á nýjum atvinnuvegi, meðferð alkóhól-
ista. Þegar hafa myndast biðlistar á Fitjum
og vaxandi eftirspurn er eftir „íslensku leið-
inni“ í meðferð alkóhólista.
Til skamms tíma voru starfandi tvær með-
ferðarstöðvar fyrir erlenda alkóhólista á ís-
landi; Von með starfsemi við Bárugötu í
Reykjavík og íslenska meðferðarstöðin sf
með starfsemi á Fitjum á Kjalarnesi. Mikil
samkeppni ríkti milli þessara tveggja aðila,
en þeir unnu báðir ákveðið frumkvöðulsstarf
á þessum vettvangi. Reksturinn gekk hálf
brösulega hjá báðum, enda við tvöfaldan
stofnkostnað að etja. En brautin var rudd og
um síðustu áramót sameinuðust aðilarnir um
rekstur á nýrri stöð að Fitjum, sem rekin er
undir nafninu Meðferð hf með helmingsað-
ild beggja fyrrnefndra fyrirtækja en eldri
starfsemi þeirra var lögð niður. Stærstu hlut-
hafar í íslensku meðferðarstöðinni eru þeir
Bjarni Steingrímsson, Brynjólfur Hauksson,
Bergur Guðnason og Skúli Thoroddsen. Þeir
eiga einnig Fitja hf sem er eignafélag hús-
næðisins að Fitjum. Flúsið er yfir 800 fer-
metrar að stærð og hentar vel rekstri með-
ferðarstofnunar. Húsnæðið var áður í eigu
Kristins Finnbogasonar, en þar áður Hilm-
ars Helgasonar. Þeir sem standa að Von eru
nú þeir Grétar Haraldsson, Kristján Ómar
Kristjánsson og Grettir Gunnarsson.
Meðferð hf og fyrirrennarar þess hafa lagt
gífurlega vinnu í„ markaðssetningu", ef svo
má að orði komast um öflun sjúklinga á er-
lendum vettvangi til meðferðar á íslandi.
Alkóhólistarnir hafa komið frá Grænlandi,
Færeyjum og nú síðast Svíþjóð. Skúli Thor-
oddsen hefur stjórnað vinnunni í Svíþjóð.
Þar eru starfandi skrifstofur með sænskum
starfsmönnum sem sjá um upplýsingastarf-
semi, eftirmeðferð sjúklinga og fjölskyldu-
námskeið. Skrifstofurnar eru í Vallberg í
Hallandi þar sem búa um 260 þúsund manns
og í Falun í Dölunum þar sem búa um 220
þúsund manns. Starfsemi þessi hefur notið
vaxandi trausts, sérstaklega eftir að reynslan
hafði leitt í ljós betri árangur íslensku með-
ferðarinnar en þekkist í Skandinavíu.
Landsstjórnirnar í Færeyjum og á Græn-
Bjórinn hefur bæst við hér á landi en
nágrannar okkar hafa verið í nánum
kynnum við hann um langan aldur. Eftir
of nána viðkynningu þurfa sumir Skand-
inavar sækja sér lækningu að Fitjum.
landi hafa stutt mjög við bakið á þeim lönd-
um sínum sem til íslands fara til að leita sér
lækninga og bæjarstjórnir í Svíþjóð og hér-
aðsþing þarlendis eru í vaxandi mæli að taka
þátt í þessari starfsemi. Eftirspurnin er þegar
orðin það mikil að biðlistar hafa myndast og
er fullbókað á Fitjum á þessu ári. í Noregi
hefur einnig vaknað áhugi á þessari íslensku
meðferðarstofnun, og mun ætlunin að opna
skrifstofu í Osló í júnímánuði.
Þessi atvinnugrein byggist á „íslensku hug-
viti" á vettvangi sem flestar þjóðir þurfa að
fást við. Reynslan hefur sýnt, að íslendingar
hafa náð meiri árangri á tiltölulega skömm-
um tíma en aðrir og virðist það nú vera að
skila sér í atvinnulífi og gjaldeyristekjum
þjóðarinnar.
Óskar Guðmundsson