Þjóðlíf - 01.04.1989, Síða 9

Þjóðlíf - 01.04.1989, Síða 9
INNLENT RITSKOÐUN — eða óþolandi ærumeiðing Opinbert sakamál er nú rekið fyrir Sakdómi Reykjavíkur. Ákæruvaldið er ríkissaksóknari en sakborningur er Hallur Magnússon, blaðamaður og varaborgarfulltrúi Framsóknarflokksins. Sakargiftin er brot á 108. gr. almennra hegningarlaga. í henni segir m.a.: „Hver sem hefur í frammi skammaryrði, aðrar móðganir í orðum eða ærumeiðandi aðdróttanir við opinberan starfsmann þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu, eða við hann eða um hann út af því, skal sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að þremur árum“. Tilefni ákærunnar er blaðagrein sem Hallur skrifaði í Tímann þann 14. júlí 1988, þar sem hann gagnrýndi harkalega framkvæmdir borgaryfírvalda á kirkjugarðinum í Viðey sl. sumar. Dregur hann staðarhaldarann í Viðey, séra Þóri Stephensen dómkirkjuprest, til ábyrgðar og segir hann m.a. hafa unnið skemmdarverk á garðinum. Telur athæfí hans ókristilegt og vera af pólitískum toga en ekki kristilegum náungakærleik. Séra Þórir telur að veist hafí verið að æru sinni vegna opinberra starfa sinna. Áður en til málaferlanna kom hafði lög- maður Póris Stephensen, Guðmundur Pét- ursson, sent Halli bréf, dagsett 27. júlí 1988, og krafist þess að hann dragi orð sín til baka. Orðrétt segir í bréfinu: ...,,Nú hefur séra Þórir tilkynnt mér, að ef þér fallist á að aftur- kalla blaðagreinina opinberlega með yfirlýs- ingu í Tímanum og biðjist velvirðingar og afsökunar á móðgandi orðum yðar og meið- andi ummælum, og greiðið lögfræðikostnað, þá muni hann sætta sig við þá lausn, að sjálf- sögðu með þeim fyrirvara að afsökunar- beiðni yðar verði talin fullnægjandi af hon- um og mér undirrituðum áður en hún birt- ist.“ í samtali við Pjóðlíf kvaðst Hallur engan veginn geta sætt sig við að vera stillt upp við vegg með þessum hætti, enda stæði hann við hvert orð sem í greininni stendur. Hallur telur sig geta fært sönnur á mál sitt og hafn- aði því þessum „valkosti“. í kjölfarið sendi lögfræðingur séra Þóris bréf (dags. 15 september 1988) til ríkissak- sóknara þar sem borin er fram krafa um að höfðað verði opinbert mál á hendur Halli. Að auki er þess krafist að ritstjóri Tímans, Indriði G. Þorsteinsson, verði látinn sæta ábyrgð fyrir að breiða út meiðandi ummæli um séra Þóri. Lögmaður séra Þóris telur að þar sem veist hafi verið að Þóri á ærumeiðandi hátt, sem dómkirkjuprest og starfsmann Reykjavíkur- borgar, falli málið undir almenn hegningar- 9

x

Þjóðlíf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.