Þjóðlíf - 01.04.1989, Síða 38
ERLENT
Dansað alla nóttina á klúbbi í Hamborg.
Nýjungar í næturlífinu
í mörgum stórborgum Vestur-
landa hefur ný bylgja fariö um
næturlífið. í stað hefðbundinna
diskóteka, eða öllu heldur í fram-
haldi af diskóinu, hafa sprottið
upp klúbbar, sem hafa opið frá
ellefu á kvöldin og fram undir
morgun. Þetta eru ekki hefð-
bundnir næturklúbbar, heldur
taka einhverjir húsnæði á leigu,
stundum í mötuneytum, veitinga-
húsum, baðstöðum eða hvar
sem rými er til. Kostnaður er í
lágmarki og áhætta lítil; sá sem
tekur salinn á leigu sér um
drykkjarföng og hagnast af sölu
þeirra. Sá sem stofnar til sam-
kvæmisins selur svo aðgang aö
klúbbnum. Sums staðar eru
meðlimakort, annars er fyrir-
komulagið nokkuð á reiki. Á vest-
urlandatungum er þetta nýja
fyrirbæri kallað „klúbbur" eða
„partí“ og hefur því verið tekið
fagnandi. Tímaritiö Tempó í
VÞýskalandi, sem fjallar um það
sem efst er á baugi meðal ungs
fólks þar í landi segir: „Diskóið er
dautt, lifi klúbburinn". Þessir næt-
urklúbbar vilja ekki vera eins og
Tískufígúran Freddy Krueger.
venjulegir klúbbar og diskótek,
en heldur ekki allt öðruvísi. Talað
er um að tilfinningin fyrir breyti-
legum smáatriðum sé orðin
sterkari, þar skiptir t.d. tónlistin
sem leikin er máli og tegund
drykkjarins sem er á boðstólum.
Sums staðar tekur þessi þörf fyrir
„eitthvað sérstakt" í klúbbnum á
sig sérstæðar myndir. Það á t.d.
við í Berlín í Þýskalandi, þar sem
nýverið var efnt til klúbbhátíðar
um barnamorðingjann Freddy
Krueger (Freddy þessi er snar-
brjálaður barnamorðingi með
brennt andlit og líkari skrímsli en
manni og hefur kvikindið orðið
frægt í bandarískum kvikmynda-
flokki „Nightmare on Elm Street",
en fjórar myndir hafa komið á
hvíta tjaldið um þetta fyrirbæri).
Hljómsveitin The Fat Boys gerði
lag um viðrinið frægt „Are you
ready for Freddy?“ sem nýtur
mikilla vinsælda. Annars staðar
en í Berlín eru svona svakalegar
uppákomursjaldgæfari. Þarsem
kúbbarnir hafa komið sér upp
föstum aðsetursstað fá þeir föst
nöfn, Love Club, Dorian Gray,
Techno Club og svo framvegis.
Eigendur diskóteka hafa víða
farið í stríð við þessa starfsemi
og sakað aðstandendur um að
greiða ekki nægan skatt til sam-
félagsins, en aðrir eigendur dis-
kóteka hafa farið út í sam-
keppni...
Spiegel/óg
TRYGGING HF
LAUGAVEG1178 SIMI621110
38