Þjóðlíf - 01.04.1989, Side 42
MENNING
Sigríður Ragnarsdóttir, Jónína Guðmundsdóttir, Ingólfur Arnarson og Jón Sigurpáls-
son við opnun Slunkaríkis fyrir fjórum árum.
Slunkaríki fjögurra ára
Slunkaríki á ísafirði var stofnað 1. mars 1985
af Myndlistarfélaginu á staðnum. í tilefni
fjögurra ára afmælisins var haldin yfirlits-
sýning á verkum Hreinns Friðfinssonar.
Slunkaríki er eitt lífseigasta gallerí í land-
inu og fyrir því hefur skapast ákveðin hefð í
ísfirsku bæjarlífi. Haldnar eru 15 sýningar á
ári, sem sóttar hafa verð að 150 til 200 manns
að jafnaði. Á þessu ári hafa sýnt hjá Slunka-
ríki auk Hreins þau Sarrha Pucci og Erla
Ólafs.
í sjtórn Myndlistarfélagsins eru þau Pétur
Guðmundsson, Jóhann Hinriksson, Jón Sig-
urpálsson, Katrín Jónsdóttir og Gísli J.
Hjartarson. Félagið hefur notið styrkja frá
menningarráði bæjarins og hefur staðið fyrir
sýningum öll þessi ár.
Áður en Slunkaríki kom til sögunnar voru
myndlistarsýningar haldnar í bókasafninu á
ísafirði. Á síðasta ári sýndu í Slunkaríki eft-
irtaldir listamenn: Birgir Andrésson, Sigríð-
ur Ásgeirsdóttir, Huig de Groot, Erla Sig-
urðardóttir, Elísabet Gunnarsdóttir, Erla
Þórarinsdóttir, Guðmundur Thoroddsen,
Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Ólafur Lár-
usson og Hulda Hákon.
Áhugi á myndlist er mikill á ísafirði og
félagið hefur verið öflugt. Það hefur t.d.
staðið fyrir námskeiðum og rekur galleríð af
þrótti. Á neðri hæð í Slunkaríki eru samsýn-
ingar á vegum félagsins. Galleríið hefur vak-
ið athygli víða um land fyrir vandaðar og
metnaðarfullar sýningar.
- óg
Hanna Dóra Ásgeirsdóttir við opnunina.
Hreinn Friðfinnsson myndlistamaður við opnun afmælissýn-
ingarinnar ásamt Jóni Sigurpálssyni.
Kristana Samúelsdóttir, Margrét Gunnarsdóttir og Gústaf Lár
usson við opnun Slunkaríkis
42