Þjóðlíf - 01.04.1989, Page 54

Þjóðlíf - 01.04.1989, Page 54
MENNING Olga Rottberger áttræð Eini núlifandi gyðingurinn sem vísað var frá íslandi fyrir stríð Olga Rottberger er lesendum Þjóðlífs sennilega enn í fersku minni. f júlíhefti Þjóðlífs á sl. ári birtist viðtal við hana um líf hennar; flóttann til íslands, brottreksturinn þaðan, líf henn- ar undir stöðugum ofsóknum nasista í Þýskalandi og Dan- mörku. Hún varð áttræð fyrsta mars síðastliðinn og Þjóðlíf lieim- sótti hana að heimili hennar í Konstanz í tilefni af því. Vorið byrjaði snemma í Suður- Þýskalandi þetta árið; varla má merkja að veturinn hafi nokkurn tíma látið sjá sig. Fyrsta mars var sannkallað vorveður í borginni Konstanz við Bodenvatn, sólskin og blíða, vatnið spegilslétt og blikandi. Olga Rottberger hefur búið í Konstanz síðan 1955, er hún fluttist til Þýskalands á ný frá Danmörku. Þegar við spjölluð- um saman á afmælisdaginn rifj- aði hún upp söguna af því hve erfitt það hafði verið að flytjast til baka, tekið hafði langan tíma að öðlast þýskan ríkisborgararétt á ný og kannski var það einmitt hápunktur kaldhæðninnar, að það fólk sem hraktist frá Þýska- landi undan nasistum átti alls ekki greiðan aðgang að þjóðfé- lagi eftirstríðsáranna; það var horfið af öllum pappírum og eins og hverjir aðrir útlendingar í aug- um yfirvalda. Hún hefur átt við mikil veik- indi að stríða undanfarið og dval- ist á sjúkrahúsi. Afmælisdegin- um eyddi hún samt með ættingj- um sínum, þrátt fyrir vanlíðan. Ég tjáði henni frá þeim miklu viðbrögðum, sem frásögn hennar vakti á íslandi og hún endurtók það, sem hún sagði mér í fyrra, að hún vonaðist til að frásögn sín ætti ennþá erindi við fólk, þótt langur tími væri liðinn. Hún tjáði mér líka, að frasögnin hefði kost- að sig heilabrot; síðan hefðu þessir hlutir, minningarnar, sótt harðar að henni en áður. Hún lét mér í té gamlar myndir frá Islandi, sem hún hafði fundið og birtast hér á síðunni. Önnur myndin er tekin nálægt heimili þeirra á Holtsgötunni árið 1937, Olga Rottberger á heimili sínu í Konstanz á afmælisdaginn 1. mars. hin á siglingunni til Danmerkur í maí 1938. Börnin tvö, sem eru á myndunum Eva og Felix, eru bæði búsett í Suður-Þýskalandi. Eva er húsmóðir en Felix hefur umsjón með kirkjugarði gyðinga í Freiburg. „Við erum gamla kynslóðin", sagði Olga Rottber- ger. „Þið eruð nýja kynslóðin og ráðið með hvaða augum þið lítið á fortíðina. En fortíðin er samt nytsamleg, — til að læra af henni“. Einar Heimisson/Freiburg. Hans Rottberger með Evu á skip- inu á leið til Dan- merkur eftir að þeim var vísað úr landi í maí 1938. Á Holtsgötunni sumarið 1937 með Evu og Felix.

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.